1. Kynning (2 stig)
Heiti og höfundur/ar verkefnis.
Viðfangsefni, markmið og tilgangur verkefnis.
2. Glærur eða önnur framsetning efnis og flutningur (3 stig)
Gögn eru vel gerð og skýr og uppsetning og útlit eru aðlaðandi.
Texti er skipulega settur fram og í hæfilegu magni.
Flutningur er skýr og öruggur og heldur athygli áheyrenda.
Tímamörk eru í góðu lagi og flæði ber vott um þekkingu á efninu.
3. Umfang og umfjöllun (5 stig)
Flytjendur nálgast efnið á sjálfstæðan hátt.
Umfjöllunin ber vott um djúpan skilning á meginhugtökum og efninu í heild.
Farið er skipulega í flesta eða alla þætti viðfangsefnisins.
Tengingar í heimildir og lesefni námskeiðsins eru viðeigandi.
Umfjöllunin er áhugaverð, gagnrýnin, frumleg og fræðandi.