Nemendur velja sig í hópa (sérfræðingahópar-litur í skjalinu hérna fyrir neðan) í Canvas eða kennari getur skipað þeim í hópa.
Kennari eða nemendur velja lesefni sem nemendur munu kynna sér ítarlega (verða sérfræðingar í).
Kennari eða nemendur para saman sérfræðingahópa og efni.
Sérfræðingahópar vinna að kynningum.
Sérfræðingahópunum er skipt upp í "þverfræðilega" hópa (númer í skjalinu hérna fyrir neðan) þar sem hver og einn úr hverjum hópanna kynna efnið úr sínum sérfræðingahópi.
Til verða þrjár glærukynningar, hver um sig er með öllu efninu sem liggur til grundvallar vinnunni. Nemendur geta nýtt sér þær í eftir að vinnunni lýkur þegar þeir dýpka sig enn frekar í efninu, t.d. vinna að öðrum verkefnum námskeiðsins eða undirbúa sig fyrir próf.
Dæmi:
Nemendur fá kynningu á fyrirkomulaginu, slóð þessarar vefsíðu er dreift til nemenda. Nemendur fá nokkra daga til að velja sig saman í sérfræðingahópa.
Nemendur fá tíma, t.d. tvær vikur til að kynna sér lesefnið, búa til kynningu og æfa sig.
Nemendur mæta í tíma (á netinu eða í kennslustofu) og hittast í "þverfræðilegu" hópunum og halda kynningarnar sínar.
Sérfræðingahópar (litur) - þverfræðilegir hópar (númer)