2022- 2025 Gæðahandbók og innleiðingaráætlun
Bæjarstjórn Vesturbyggðar ákvað í byrjun árs 2022 að endurskoða skólastefnu sveitarfélagsins. Rebekka Hilmarsdóttir, Arnheiður Jónsdóttir, Davíð Valgeirsson, Þórkatla Soffía Ólafsdóttir og Friðbjörg Matthíasdóttir voru skipuð í starfshóp og Kristrún Lind Birgisdóttir frá Ásgarði var fengin til að stýra verkinu. Haldnir voru fundir með starfsfólki skólanna, lagðir fyrir spurningalistar og boðað var til opins fundar um endurskoðun skólastefnu. Lagt var upp með að ná breiðri sátt um áherslur og að stefnan næði yfir skólamál sveitarfélagsins en jafnframt íþróttir, félagsmál og menningu barna í sveitarfélaginu.
Viðmið um gæðastarf í grunnskólum Vesturbyggðar
Viðmið um gæðastarf í leikskólum Vesturbyggðar
Samkvæmt starfsáætlun Vesturbyggðar birta leik- og grunnskólar innra mats skýrslur sínar að vori eða við lok skólaársins.
Innra mats skýrslur eru teknar til umfjöllunar og marka tímamót við kerfisbundnar umbætur í skólastarfi skólanna. Skólastjórnendur gera grein fyrir helstu umbótum sem hafa áunnist og til hvaða kerfisbundinna umbóta stendur til með að fara í á komandi skólaári.
Umbótaáætlanir hvers skóla er í senn innleiðingaráætlun skólastefnu Vesturbyggðar enda byggja umbótaáætlanir kyrfilega á gæðaviðmiðum sveitarfélagsins. Sveitarfélagið heldur utanum innleiðinguna í sinni aðgerðaáætlun.
Aðgerðaáætlun Vesturbyggðar - Markmið, mælikvarðar, viðmið og aðgerðir með skólastefnu Vesturbyggðar.
Starfsáætlun fræðslunefndar (kemur).
Leiðbeiningar um innra mat fyrir grunnskóla - Sigríður Sigurðardóttir, MMR;2016.
Leiðbeiningar um innra mat fyrir leikskóla - Sigríður Sigurðardóttir, MMR; 2016