Þessi vefsíða er í vinnslu og munum við jafnóðum bæta fleiru hingað inn. Það má endilega heyra í okkur ef þið hafið hugmyndir um hvað væri gagnlegt að hafa hér inni!
Tilgangur síðunnar er tvískiptur en hún er annars vegar hugsuð sem aðgengileg leið að praktískum upplýsingum fyrir foreldra og nemendur í Víkurskóla en einnig fyrir áhugasama kennara úr öðrum skólum sem vilja kynna sér útfærsluna okkar hér í Víkurskóla.
Öfugt við það sem sumir kunna að halda þá fundu stærðfræðikennarar Víkurskóla ekki upp á aðferðafræðinni hugsandi skólastofu (e. thinking classroom). Hugmyndafræðin kemur frá kanadísk-/sænska prófessornum Peter LIljedahl og eru áratugir af rannsóknum að baki.
Í bókinni á myndinni dregur Peter aðferðafræðina saman í 14 skref og kemur þessu frá sér í formi leiðbeininga til kennara um hvernig má útfæra hugsandi skólastofu á sem áhrifaríkastan máta. Hvert skref fær sinn eigin kafla. Í hverjum kafla fléttar höfundur saman hvaða markmiði er reynt að ná fram í kaflanum, hvaða aðferðir voru reyndar og hvers vegna aðferðin sem endað er með virkar betur en hinar. Í þriðja kafla tekur hann til dæmis fyrir hvers vegna unnið er standandi við töflur frekar en sitjandi við borð. Í 11 kafla tekur hann fyrir hvernig er best að láta nemendur glósa í hugsandi skólastofu.
Bókin hefur einnig verið þýdd á íslensku og hvetjum við áhugasama kennara/foreldra/nemendur til að kynna sér aðferðafræðina nánar.
hér er hlekkur á dæmi um hvar er hægt að nálgast bókina.
Mynd tekin á námskeiði með Peter vorið 2025
Ýmsir hlekkir í engri sérstakri röð:
Verkfræðideild HR byrjuð að nota hugsandi skólastofu:
https://www.ru.is/frettir/hugsandi-skolastofa-ny-nalgun-til-ad-auka-virkni-nemenda?fbclid=IwY2xjawUbZxVwZG9mBWV4dG4DYWVtAjEwAGJyaWQRMFplSDhLdlZVUnRhQVBRZ3NzcnRjBmFwcF9pZBAyMjIwMzkxNzg4MjAwODkyAAEeIH6_25pa8VcDrxUeoMVeepfJmIuGFhSQ6GxicXdRT4WjTob9ZZqrxnTxqgs_aem_ik-kyRR2nb6yZy4ck07mgQ
Rannsókn kennara við MK:
Grein eftir Bjarnheiði og Ingólf úr Skólaþráðum:
Samantekt á hugsandi skólastofu frá vefnum Flatarmál
B.Ed ritgerð eftir Irmu Rún Blöndal
Grein eftir Eyþór úr Skólaþráðum
https://skolathraedir.is/2024/10/08/reynsla-kennara-ad-byggja-upp-hugsandi-skolastofu/