Tæknidagur fjölskyldunnar er tileinkaður tækni, vísindum, nýsköpun og þróun á Austurlandi og miðast dagskráin við alla aldurshópa. Hann er haldinn árlega og er það Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað sem stendur að honum. 

Tæknidagurinn var haldinn í fyrsta sinn þann 16. mars 2013 sem liður í verkefni Háskólans í Reykjavík og var tilgangurinn að efla menntasamfélag á Austurlandi. Dagurinn heppnaðist svo vel að Verkmenntaskólinn og Austurbrú ákváðu að endurtaka leikinn og hefur Tæknidagurinn verið haldinn alla tíð síðan. Gestum hefur fjölgað á ári hverju og 2018 voru þeir um 1300 talsins og hafa aldrei verið fleiri.

Í ár er dagurinn haldinn þann 5. apríl og verður dagskráin opin öllum milli kl. 12-16.

Styrktaraðilar Tæknidagsins í ár eru Síldarvinnslan, SÚN, Fjarðabyggð, Landsvirkjun, Alcoa, Uppbyggingarsjóður Austurlands og Sparisjóður Austurlands.