Rúnar Sigurðsson

Rúnar Sigurðsson er verkefnastjóri á Kennslumiðstöð. Hann hefur umsjón með framkvæmd kennslukönnunar HÍ. Að auki sér hann um tæknilega vinnslu heimasíðu Kennslumiðstöðvar og Moodle kennslukerfis og sinnir stuðningi vegna tæknistuddrar kennslu. Rúnar hefur langa reynslu af hljóðupptökum, forritun og uppsetningu á tölvukerfum. Rúnar er meistari í hljóðfærasmíði, margmiðlunarfræðingur með diplómu í forritun og kerfisfræði, og er jafnframt með kennarapróf frá KHÍ. Rúnar hefur unnið við HÍ síðan 2009.