Verkefni um náttúru Íslands
Verkefnið felst í því að fara á vefslóðirnar, lesa sig til og svara eftirfarandi spurningum í ritvinnsluskjaliskjali,
nemendur eru hvattir til að setja inn myndir. Mundu heimildavinnu!
Náttúra Íslands er sérstök á margan hátt, hér eru t.d. fáar einlendar tegundir.
Hvað merkir að vera einlend tegund? ath heimilavinnu... fyrir öll verkefni
Bleikjuafbrygðin í Þingvallavatni mætti segja vera vísi að einlendum tegundum, hvers vegna?
Hvað eru margar tegundir vatnafiska í íslenskum vötnum. Teldu þær upp og bættu myndum í verkefnið þitt.
Ástjörn er eitt merkilegasta vatnið á stór Hafnarfjarðarsvæðinu, hvers vegna er tjörnin friðlýst? Friðlönd
Hefur þú sérð flórgoða (Podiceps auritus) í Hafnarfirði? Hvernig hreiður gerir flórgoðinn sér?
Hefur þú heimsótt Hvaleyrarlón og fjörur Hvaleyrarhöfða? kort Af hverju eru þessi svæðið friðuð?
Segja mætti að íslensk haust einkennist af rauðum reyniberjum og fuglunum sem í þau sækja.
Segðu frá reyni og völdum fugli sem sækir er berin.
Síðla haust fara haustfetar á stjá. Hvað ræður því hvenær við förum að sjá þá? Hvort hefur þú oftar séð kvendýr eða karldýr?
a. Hvað eru margar tegundir blómplantna á Íslandi?
b. Hvaða hópi tilheyra flestar plöntur á Íslandi samkvæmt skilgreiningu vefs flóru Íslands?
Eru allir sammála um að þessi hópur tilheyri plöntum? Hver eru helstu rökin á móti því?
Hér verður þú að nota þá vitneskju sem þú hefur fengið í vetur! Plöntuvefurinn.
Hvað er þjóðarblóm Íslands? Finnst þér annað blóm eiga að vera þjóðarblómið, af hverju?
a. Fjöldi varpfugla á Íslandi er ____? b. Hvaða íslenska fugla þekkir þú? Teldu þá upp og bættu gjarnan við myndum.
a. Hvað er válisti? b. Hvenær var válistinn síðast uppfærður?
c. Af hverju er hrafninn á válista? d. Finnst þér undarlegt að einhverjar þessara fuglategunda séu á válista?
Til hvers eru fuglar merktir?
Fylgst er með ástandi rjúpnastofnsins hér á landi. Hvernig tengjast rjúpa og fálki?
Hvernig hefur varpárangur arna verið undanfarin ár? Fuglavernd um erni.
a. Hvað eru tegundir landspendýra á Íslandi margar samkvæmt Vísindavefnum?
Ert þú sammála þessari tölu? Ef ekki af hverju? Íslensku landspendýrin
b. Hvert er minnsta íslenska spendýrið.
c. Hvaða spendýr nam fyrst land á Íslandi?
Röndótt skordýr, hver er helsti munurinn á garðhumlu og algengustu geitunga tegundinni, trjágeitungi?
Hversu margir eru þjóðgarðarnir á Íslandi og hverjir eru þeir, hefur þú heimsótt þá? Hverju manstu helst eftir?
Eldgosum fylgir stundum brennisteinsmengun sem orsakar súrt regn.
Hvaða áhrif hefur súrt regn á lífríkið? Til dæmis á lífríki Þingvallavatns?
Námsmat: Nemendur eru fyrst og síðast að búa sér til góð námsgöng,
skila skal á Innu fyrir tilgreindan tíma. Munnuleg skil í kennslustund.
@Hólmfríður Sigþórsdóttir