Hvanneyri er ört stækkandi bær rétt fyrir utan Borgarnes.
Um 285 manns* búa á Hvanneyri allt árið en bæjarbúar fara yfir 600+ þegar Landbúnaðarháskólinn er í gangi.
Framkvæmdir byrjaðar hér og þar í bænum og hægt er að sjá nánar hvernig deiluskipulagið er hér → (Hvanneyri)
Á Hvanneyri gerast góðir hlutir, börnin leika sér úti, nágrannar spjalla saman. Í göngu ferð um bæinn getur þú rekist á hesta, beljur, hænur, hunda og ketti. Einstakt fuglalíf er á Hvanneyri og glæsileg náttúra. Yndislegt sveitalíf allt í kring.
Já, á Hvanneyri er gott að búa - verið velkomin
Skólamál og menntun:
Á Hvanneyri er stór og fallegur leikskóli sem gengur undir nafninu Andabær og eru í honum þrjár deildir, Goðheimar, Hulduheimar og Álfheimar.
Grunnskóli er á Hvanneyri og fer fram kennsla fyrir 1-5 bekk en 6-10 bekk fer fram á Kleppjárnsreykjaskóla og er skólabíl fyrir þá nemendur.
Menntaskóli er einungis um 10mín frá en hann er staðsettur í Borgarnesi.
Landbúnaðarháskóli Íslands er lítill háskóli sem einnig markar honum sérstöðu. Andrúmsloft kennslunnar og félagslífsins verður þar af leiðandi mun persónulegra en ella enda mikið um hópavinnu og sameiginlega úrlausn verkefna.
Ljósleiðari var tengdur á Hvanneyri sumarið 2019.
Verslun:
Á Hvanneyri er dásamlegt kaffi hús rekið yfir sumarið sem heitir Skemman og er ekkert eins yndislegt eins og að skella sér í smá kaffi með flottu útsýni.
Skemmtilegur pub er á Hvanneyri sem heitir Hvanneyrar pub og er mikið sóttur af háskólafólki sem og bæjarbúum.
Bókaloftið er skemmtileg bókasala þar sem bæjarbúar og gestir geta komið og gluggað í bækur en bókaloftið er staðset í Halldórsfjósi í Landbúnaðsrsafni Íslands.
Ullarselið á Hvanneyri er verslun með vandað handverk, ullarvörur úr íslenskri ull og gæðahandverk úr íslensku hráefni.
Aðeins eru um 10 mín akstur er í Bónus og Nettó ásamt fleiri verslunum í Borgarnesi.
Íþróttir:
Á Hvanneyri er starfrækt ungmennafélag - Ungmennafélagið Íslendingur
Stórir fallegir gras sparkvellir
Girtur sparkvöllur með gervigrasi
Körfuboltavöllur
Frisbígólf
Söfn og afþreying:
Landbúnarðarsafn Íslands er byggt á grunni Búvélasafnsins sem starfað hafði á Hvanneyri um langt árabil.
Búvélasafnið rakti sögu sína til ársins 1940. Landbúnaðarsafn Íslands leggur sérstaka áherslu á sögu landbúnaðarins frá byrjun tæknialdar í landbúnaði með rannsóknum sem og almennri kynningu á sögu hans og stöðu og hvers konar miðlun hennar.
Gestastofa fyrir friðland fugla í Andakíl - 1.Áfangi
Mikið er af allskonar afþreyingu í nágrenni Hvanneyrar eins og t.d. Steðja, Krauma, Fossatún, Snorrastofa, Húsafell, Háafell, Landnámssetur Íslands o.s.frv.
Hvanneyri er partur af sveitarfélaginu Borgarbyggð
Sveitarfélögin Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Hvítársíðuhreppur og Kolbeinsstaðahreppur sameinuðust í eitt sveitarfélag við sveitarstjórnarkosningarnar vorið 2006.
Sveitarfélagið er um 4.926 ferkílómetrar að stærð og íbúar eru rúmlega 3700.
Lítil tjörn við Tungutúnslæk með trjágróðri, svokallaður Vigdísarlundur, þar sem Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti plantaði þremur birkitrjám árið 1989.
Skjólbeltið á Hvanneyri þar sem meðal annars er að finna indíánatjald og fuglaskoðunarhús,
frábær staður til að skoða.
*samkvæmt hagstofu íslands í enda árs 2018