Ertu að fara á ferðalag
Hvar eru allir að skemmta sér
Hvert eru allir að fara
Hvar eru útihátíðirnar um allt land
Hátíðir um allt land
Hér getur þú séð hvað er að gerast og hvar allar skemmtilegu hátíðirnar eru.
Hér birtast hátíðir sem haldnar eru árlega en ekki stakir viðburðir.
Góða skemmtun
- Áætluð dagskrá 2026 -
Vetrarhátíðin - fer fram í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni.
Food and Fun - Matarhátíð í Reykjavík. Kokkar keppast um að matreiða flottasta diskinn. Ekki kannski þessi týpíska útihátíð en hér þarf að flakka á milli staða enda ekkert sumarveður úti.
Aldrei fór ég suður er sannkölluð rokkhátíð alþýðunnar sem haldin er um páskana ár hvert. Frábærir tónleikar og fjöldi fólks í fallegum lopapeysum.
Vor í Árborg - Bæjar- og menningarhátíð haldin í kringum sumardaginn fyrsta ár hvert í Sveitarfélaginu Árborg.
Sumardagurinn fyrsti - Fögnum nú að sumarið er að koma og höldum Sumarhátíðir víða um land
Cocktail Week - Stærsta Kokteilhátíð Íslands.
Þriðja helgin í Maí (15-17)
Fjör í Flóa - í Flóahreppi, fjölskyldu- og menningarhátíð.
Fjórða helgin í Maí (22-25)
Hvítasunnuhelgin - Oft fyrsta ferðahelgin.
Fimmta helgin í Maí (20-31)
Reykjavík Airshow - Flughátíð á Reykjavíkurvelli, topgun hvað
Fyrsta helgin í júní (5-7 júní):
Sjómannadagurinn - Grindavík
Sjómannadagurinn - Reykjavík
Sjómannadagurinn - Hafnarfirði
Sjómannadagurinn - Bolungarvík
Sjómannadagurinn - Akranes
Sjómannadagurinn - Ólafsfirði
Sjómannadagurinn - Skagaströnd
Sjómannadagurinn - Sauðárkróki
Sjómannadagurinn - Neskaupstað
Sjómannadagurinn - Vestmannaeyjum
Sjómannadagurinn - Patreksfirði
Sjómannadagurinn - Skagaströnd
Sjómannadagurinn á fleiri stöðum - sjá nánar hér
Fjör í Flóa - Fjölskyldu- og menningarhátíð sem haldin er í Flóamannahreppi, morgunmatur, markarðir, listasýningar, kökubazar, dýr, landbúnaðarvélar og margt fleira. Já nú er sko sumarið að byrja.
Bjórhátíð á Hólum - Segir sig svolítið sjálft - skál
Sátan - Alvöru metal hátíð fyrir þá hörðustu.
Prjónagleði - er hátíð fyrir áhugafólk um prjónaskap, handavinnu og garn.
Önnur helgin í júní (12-14)
Enginn dagskrá þessa helgi.
Á milli
17 Júní - Þjóðhátíðardagur Íslendinga. Hátíðarhöld í öllum bæjum og í borg.
Þriðja helgin í júní (19-21):
Hamingjudagar - Frábær Bæjarhátíð á Hólmavík fyrir alla fjölskylduna.
Á fætur í Fjarðabyggð - Fjölskylduvæn gleði- og skemmtivika með úrvalsgönguferðum og afþreyingu við allra hæfi.
Skógardagurinn mikli - Fjölskylduhátíð í Hallormstaðaskógi, Íslandsmeistaramót í skógarhöggi, grillveisla, og margt fleira.
Kjalarnesdagar - Fjölskylduhátíð á Kjalarnesi með fjölbreyttri dagskrá.
Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri - Á hátíðinni bjóða Kópaskersbúar og nærsveitamenn gestum heim og skemmta sér og öðrum, haldnir verða margvíslegir menningarviðburðir, sýningar, kjötsúpukvöld og fleira.
Sumarsólstöður í Grímsey - Grímseyingar halda hátíð í tilefni af sumarsólstöðum og bjóða gestum og gangandi að taka þátt í hátíðarhöldunum með sér.
Hofsós heim - Bæjarhátíð á Hofsósi sem vert er að skoða. Varðeldur, sjósund, markaðir og margt fleira.
Víkingahátíðin í Hafnarfirði - Á hátíðinni eru bardagasýningar, leikjasýningar, sögumenn, bogfimi, handverk, markaður og víkingaskóli barna. Bara fullt að gera og það er engin brandari.
Bíladagar á Akureyri - Hátíð bifreiðaunnenda. Þar er keppt í kappakstri í mörgum flokkum og bílar sýndir.
Upp í sveit - Sveitahátíð í Skeiða og Gnúpverjahreppi.
Fjórða helgin í Júní (26-28):
Humarhátíðin - Bæjarhátíð á Höfn í hornafirði, humarsúpa og fjölbreytta dagskrá í sveitarfélaginu.
Bakkafest - Stígvélin á og upp með hattinn, skemmtileg hátíð á Bakkafirði.
Brákarhátíð - Fjölskylduhátíð í Borgarnesi. Bílasýningar, latarbæjarsafnið, markaðir og margt fleira.
Jónsmessuhátíð á Eyrarbakka - Stórkostleg fjölskylduhátíð sem vert er að skoða. Varðeldur, markaðir, leiktæki og margt fleira.
Rababarahátíðin á Blönduósi - Það verða tónlistaratriði, sölubásar frá smáframleiðendum, fræðslu-og skemmtigöngur, listasmiðjur fyrir börn og fullorðna, uppskriftakeppni, gestakokkur að störfum og hjólaferð svo eitthvað sé nefnt.
Berjadagar - Tónlistarhátíðin sem er haldin árlega í Ólafsfirði.
Fyrsta helgin í júlí (3-5):
Írskir dagar - Bæjarhátíð á Akranesi með fjölbreyttri skemmtun. Ekki gleyma brekkusöngnum.
Markaðshelgin í Bolungarvík er blanda af öflugu markaðstorgi og yfirgripsmikilli tónlistar- og fjölskylduskemmtun.
Bryggjuhátíð á Stokkseyri - Varðeldur og bryggjusöngur ásamt fjölbreyttri fjölskyldudagskrá.
Heim í Búðardal - Bæjarhátíð í Búðardal, Haldin annað hvert ár. Er það áríð í ár ?.
Bíldudals grænar baunir - Hátíð í Bíldudal sem er haldin annað hvert ár. - er árið í ár sem þú ferð ?.
Allt í blóma - Fjölskyldu og menningarhátíð í Hveragerði
Eiríksstaðarhátíð - Munda víkingasverð, borða víkinga mat og margt annað.
Goslokahátíð Vestmannaeyja - Bæjarhátíð í Vestmannaeyjum þar sem endalokum eldgossins á Heimaey 1973 er fagnað.
Þjóðlagahátíð á Siglufirði er boðið upp á dansa, námskeið og tónleika.
Sumartónleikar í Skálholti - Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu og einn stærsti menningarviðburður sem fram fer á Suðurlandi yfir sumartímann.
Sumarhátíð UÍA - Íþróttahátíð sem haldin er á Egilsstöðum.
Önnur helgin í júlí (10-12):
Hríseyjarhátíð – boðið er upp á fjölskylduvæna dagskrá sem felst m.a.í óvissuferðum um eyjuna, fjöruferð, kvöldvöku, varðeld og söng.
Kótelettan - Fjölskyldu- og tónlistarhátíð sem haldin er á Selfossi. Þar er sýnd framleiðsla bænda á Íslandi ásamt fjölbreyttri skemmtidagskrá.
Flughátíðin - Skemmtileg fjölskylduhátíð á Hellu. Stanslaust flug alla helgina, karamellurigning, grillveisla og skýlisball.
Náttúrubarnahátíð á ströndum - Skemmtileg fjölskylduhátíð.
Vopnaskak - Bæjarhátíð á Vopnafirði, varðeldur, brekkusöngur og fullt af dagskrá fyrir fjölskylduna.
Dýrafjarðardagar - Bæjarhátíð dýrfirðinga fyrir alla fjölskylduna.
Heima í Hólmi - Tónlistarhátíð á Stykkishólmi.
Støð í Stöð - Bæjarhátíð á Stöðvarfirði.
Ólafsvíkurvaka og Sandara- og rifsaragleði. Í Snæfellsbæ eru tvær hátíðir haldnar til skiptis. Ein á ári hverju.
Þriðja helgin í júlí (17-19):
Húnavaka - Bæjarhátíð sem haldin er á Blönduósi.
Hlaupahátíð á Vestfjörðum er kept í hlaupum, hjólreiðum, sjósundi og þríþraut.
Miðaldadagar á gásum – Kaupskapur, handverk og leikir. Ómar fortíðar hljóma og lykt af alls kyns iðnaði, kolagerð og brennisteinsvinnslu berst um svæðið.
Kátir dagar - Bæjarhátíð Þórshafnar.
Bryggjuhátíð á Drangsnesi - Bæjarhátíð á Drangsnesi þar sem að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Dorgveiðikeppni, sjávarréttasmakk, barnaskemmtun, brekkusöngur og ball, allt á einum stað!.
Götubitahátíð - Hver verður besti bitinn í ár, hátíð með ýmsum uppátækjum.
Sumar & bjórhátíð LYST - Bjór smökkun, veitingar og partý í Lystigarðinum á Akureyri.
Ögurhátíð - í Ísafjarðardjúpi, þar sem boðið er upp á rabbarbaragraut með rjóma í danspásum. Verður bara a skoða.
Franskir dagar - Bæjarhátíð á Fáskrúðsfirði er menningarleg hátíð með frönsku ívafi.
Sápuboltinn - Já þú last það rétt, þessi hátíð er á Ólafsfirði.
Mannfólkið breytist í slím - Menningarhátíð sem haldin er á Akureyri í ár.
Fjórða helgin í júlí (24-26):
Trilludagar – Fjölskylduhátið á Siglufirði, útsýnissiglingar, trilluball, matur og markaðir, já og margt fleira.
Bræðslan er sannkölluð tónlistarveisla á Borgarfirði Eystri.
Mærudagar - Bæjarhátíð af bestu gerð á Húsavík. Tivolí - Froðurennibraut - Barnafjör á bryggjunni - Mærudagstónleikar og margt margt fleira.
Eldur í Húnaþingi - Bæjarhátíð á Hvammstanga.
Á góðri stund á Grundarfirði - Bæjarhátíð í Grundarfirði, Kvöldvaka, bryggjuball, fjölskylduskemmtanir og margt fleira.
Reykholtshátíðin - Tónlistarhátíð sem leggur áherslu á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld.
Fyrsta helgin í ágúst (31 Júlí-3 Ágúst):
Verslunarmannahelgin
Innipúkinn í Reykjavík - innihátíð fyrir þá sem ekki nenna að skella sér í útilegu enda bráluð dagskrá.
Neistaflug - Fjölskylduhátíð á Neskaupstað, tjaldmarkaður, skrúðganga, strandblaksmót, flugeldasýning og brunaslöngubolti og margt fleira.
Þjóðhátíð í eyjum - Þjóðhátíð í Vestmanneyjum hefur löngum verið ein vinsælasta útihátíðin um verslunarmannahelgina. Þar eru þekktir fastir liðir eins og brenna á fjósakletti á föstudegi, flugeldasýning á laugardegi og brekkusöngur á sunnudegi.
Unglingalandsmót UMFÍ - Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta og fjölskylduhátíð. Keppt verður í hinum ýmsu greinum svo sem frjálsum íþróttum, golfi, körfubolta, dansi og fleiru.
Síldarævintýri á Siglufirði - Síldarævintýrið er einstök fjölskylduhátíð þar sem hægt er að finna fullt af viðeigandi skemmtun fyrir unga jafnt sem aldna.
Sæludagar KFUK og KFUM - Þessi hátíð hefur fest sig í sessi sem áhugaverður og vímulaus hátíð við Eyrarvatn.
Kotmót Hvítasunnukirkjunar - Kirkjulækjarkoti í Fljósthlíð , Kotmót er kristilegt fjölskyldumót sem haldið er af Hvítasunnukirkjunni á Íslandi.
Ein með öllu og Íslensku sumarleikarnir á Akureyri - Alls kyns jaðaríþróttir, þrekraunir, útivist og leikir, verða í brennidepli á Íslensku sumarleikunum. Auk þess verður skemmtidagskrá með tónleikum og dansböllum.
Norðanpönk í Laugarbakka Vestur-Húnavatnasýslu - Árlegt ættarmót paunkara.
Flúðir um versló - Bæjarhátíð á Flúðum. Furðubátakeppni, brenna og brekkusöngur, traktorstorfæra og margt fleira.
Hraunborgir í Grímsnesi - Sundlaugarpartý, sveitamarkaðir, tónleikar, mínigolf, brekkusöngur og fleira.
Skjaldborg - Íslensk heimildamyndahátíð sem haldin er á Patreksfirði. Hátíðinni er ætlað að vera tækifæri fyrir kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn til að koma saman.
Fljótahátíð - Fjölskylduskemmtun í fljótunum í Skagafirði - haldin annað hvert ár.
Önnur helgin í ágúst (7-9):
Act Alone - Leiklistarhátíð sem er haldin árlega á Suðureyri.
Hamingjan við hafið - Fjölskylduhátíð í Þorlákshöfn, með útitónleikum, flugeldasýningu, dorveiði og margt fleira.
Sumar á Selfossi - Bæjarhátíð á Selfossi, mikið um húlum hæ um allan bæ.
Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga sem eru haldnir eru í Reykjavík og er 6 daga hátíð.
Hvanneyrarhátíð - Traktorssýningar og margt fleira.
Þriðja helgin í ágúst (14-16):
Töðugjöld - Bæjarhátíð á Hellu á Rangárvöllum. Markaðir, skemmtanir, kvöldvaka, flugeldasýning og margt fleira.
Blómstrandi dagar - Bæjarhátíð í Hveragerði, Ísdagurinn mikli hjá Kjörís, blóm og markaðir um allan bæ og margt fleira.
Sveitasæla - Landbúnaðar- og bændahátíð sem haldin er á Sauðárkróki.
Fjölskyldudagar í Vogum - Bæjarhátíð í Vogum vatnsleysuströnd, útitónleikar, varðeldur, flugeldasýning og margt fleira.
Útsæðið - Bæjarhátíð á Eskifirði, kassabílarallý, kvöldvaka, flugeldasýning og margt fleira.
Reykhóladagar - Bæjarhátíð með fjölbreyttri dagskrá, súpu í heimahúsum, kassabílarallýi og balli o.m.fl.
Danskir dagar - Bæjarhátíð á Stykkishólmi.
Hvalfjarðardagar - Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Fjórða helgin í ágúst (21-23):
Bæjarhátíð Seltjarnarness - Bæjarhátíð á Seltjarnarnesi, óskalagatónleikar og margt fleira alla helgina.
Álfahátíð - Haldin í Hellisgerði ár hvert.
Menningarnótt í Reykjavík. Tónleikar, skemmtanir og flugeldasýning.
Grímsævintýri - Ævintýraleg fjölskylduhátíð í Borg í grímsnesi.
Fimmta helgin í ágúst (28-30):
Akureyrarvaka – Menningarhátíð á Akureyri.
Blús milli fjalls og fjöru - Skemmtileg blúshátíð á Patreksfirði.
Í túninu heima – Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, flugsýningar, gamlir bílar, tónleikar ,flugeldasýning o.m.fl.
Vitadagar - hátíð á milli vita - Bæjarhátíð í Suðurnesjabæ.
Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli, kjötsúpa og súpurölt, brenna og brekkusöngur, fjölskylduskemmtun og flugeldasýning o.m.fl.
Reykjavík Jazz - Jazzhátíð í Reykjavík.
Fyrsta helgin í September (4-6)
Ljósanótt - Menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar, tónleikar, stórkostleg flugeldasýning. o.m.fl.
Uppskeruhátíðin á Flúðum - Þar er boðið upp á matvæli úr heimabyggð, handverk, menningu og listir.
Önnur helgin í September (11-13)
Ormsteiti bæjarhátíð - Uppskeruhátíð sem haldin er á Egilsstöðum og vítt og breytt um Fljótsdalshérað.
Októberfest - 3 daga tónlistarhátíð í Reykjavík
Þriðja helgin í September (18-20)
Fjórða helgin í September (25-27)
Réttað er í Laufskálarétt í Hjaltadal síðustu helgina í september. Þar er skemmtun og á laugardeginum taka allir sem vettlingi geta valdið þátt í réttarstörfum.
Fyrsta helgin í Október (3-5):
Menningar- og hrútardagar á Raufarhöfn - Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Dömulegir dekurdagar á Akureyri, Þar njóta vinkonur, systur, mæðgur, frænkur og vinnufélagar þess að gera eitthvað skemmtilegt saman.
Önnur helgin í Október (10-12):
Piff - The Pigeon International Film - Kvikmyndahátíð á Vestfjörðum.
Þriðja helgin í Október (17-19):
Haustfagnaður Félags sauðfjárbænda í Dölum - Haldin fyrsta vetrardag ár hvert.
Norðurljósahátíðin - Norðurljósin Menningarhátíð í Stykkishólmi haldin annað hvert ár.
Kjötsúpudagurinn - Alltaf haldin fyrsta vetrardag ár hvert. Tilvalið að hita sér upp og gæða á góðri kjötsúpu.
Safnahelgi á Suðurlandi er haldin ár hvert fyrstu helgina í nóvember. Þá er boðið upp á fjölbreytta viðburði um allt Suðurland.
IcelandAirwaves - Tónlistarhátíð í Reykjavík.
Nú eru Jólin bara framundan og kuldakast ....... brrrrrr Sjáumst á næsta ári
Flest allar bæjar- og útihátíðir á Íslandi á einum stað. Most all festivals in Iceland, all in one place.
Hér eru fleiri skemmtilegar síður
Frábær síða fyrir alla sem eru að fara til Spánar eða þau sem búa á Spáni.
Jólasíðan ...... opnist bara þegar þú hefur ekkert annað að gera.
Erþaðekkibara.