SAMSKÓLAVAL

Sumba fyrir 8.-10. bekk


Sumba fyrir 8.-10. bekk

Í zumba verða kennd skemmtileg og einföld spor í takt við suðræna og aðra tónlist. Í þessum tímum er mikið stuð og mikið fjör og hér er hægt að fá útrás fyrir dansgleðina. Zumba er fyrir alla sem vilja skemmta sér vel og dansa við góða tónlist. Það þarf að hafa með sér í zumba þægileg íþróttaföt, lítið handklæði, vatnsbrúsa og það mikilvægasta GÓÐA SKAPIÐ! ;)

Námsmat: Mætingar og áhugi og frammistaða í kennslustundum.

Kennt verður í Oddeyrarskóla á miðvikudögum á haustönn.