SAMSKÓLAVAL
Stop motion fyrir 8. - 10. bekk
Stop motion fyrir 8. - 10. bekk
Stop motion fyrir 8. - 10. bekk
Viðfangsefni valgreinarinnar er eftirfarandi:
hugmyndavinna (eða velja ákv. sögu, t.d. þjóðsögu)
handrit
Skissur (storyboard)
búa til leikmynd, leikmuni, persónur
útfæra lýsingu
Hreyfing-myndataka (animera)
klipping
eftirvinnsla
Valgrein fyrir þá sem hafa raunverulega áhuga, eru tilbúnir að leggja á sig vinnu og sýna þrautseigju og þolinmæði við að fullvinna verkefni sín.
Gerð er krafa um frumkvæði, áhuga og vinnusemi nemenda. Ætlast er til að nemendur útfæri sínar eigin hugmyndir í samráði við kennara - með fyrirvara um að framkvæmd þeirra sé raunhæf.
Námsmat: Lokið / ólokið með umsögn.
Valgreinin er kennd í Lundarskóla á mánudögum kl. 14 á haustönn