Myndlist 2 – fyrir þá sem eru búnir með myndlist 1


Myndlist 2 – fyrir þá sem eru búnir með myndlist 1

Fyrir þá sem eru lengra komnir – eða hafa áður verið í Myndmennt sem kjörsviðsgrein.

Markmið: Að þjálfa og þroska huga og hendur nemenda til að tjá eigin hugmyndir, tilfinningar, þekkingu og reynslu í margskonar efnivið. Að geta fylgt hugmynd til endanlegs verks. Þekkja fjölbreytni (mynd-) listar.

Námsefni: Listabækur, t.d. Listasaga Fjölva, Listasafn Íslands 1884 - 1994, Líf og list, t.d. Picasso, Monet, van Gogh, Manet.

Kennsluaðferðir: Að geta nýtt sér í eigin myndsköpun grunnþætti myndlistar, s.s. útfærslu línunnar, skraut­skrift, myndbyggingu, áferð, grafik, málun, rými, fjarvídd, lita- og formfræði mynd­byggingar, andlitsteiknun, fígúrur. Nemendur þurfa að eiga litla skissubók sem þeir teikna í heima. Helstu viðfangsefni eru að teikna eftir fyrirmynd, munsturgerð, túlkun tilfinninga, formfræði, óhlutbundnar myndir, pennateikningar, skrautskrift, litafræði, málun á striga, vatnslitamálun, o.fl. Farið verður í vettvangsferðir á listsýningar og ýmis skemmtileg verkefni unnin.

Námsmat: Símat eftir hvert verkefni. Tekið verður mið af einbeitingu, tækni og hugmyndaflugi og sjálfstæði í vinnubrögðum, engin próf.

Kennari og myndlistarmaður: Joris Rademaker – stofa 206