Lesferill er skimunarpróf sem lagt er fyrir 1.bekk í byrjun október. Umsjónarkennari og sérkennari leggja prófið fyrir í 10-14 manna hópum en sérkennari leggur prófið einstaklingslega fyrir þá nemendur sem þess þurfa. Prófið er lagt fyrir í tveim hlutum með eins dags millibili. Umsjónarkennari/sérkennari skilar svo niðurstöðum inn á vef Menntamálastofnunar.