Að gerast félagi
Við tökum vel á móti öllum sem hafa áhuga á að kynnast starfseminni.
Það eru margar góðar ástæður fyrir því að ganga til liðs við Lionshreyfinguna
Samkvæmt könnun meðal Lionsfélaga er ánægja með að gera samfélaginu gagn, vera með vinum sínum í sjálfboðastarfi, og að reyna eitthvað nýtt helstu ástæður þess að fólk gerist félagar í Lions. Þau verkefni sem veittu félögunum mesta ánægju eru:
Heilbrigðismál
Menntamál
Málefni aldraðra
Málefni fatlaðra
Umhverfismál
Lionshreyfingin gefur félögum sínum tækifæri til þess að sækja ýmis námskeið tengd félagsstörfum og styrkja sig á þeim vettvangi. Öllum verðandi stjórnarmönnum gefst kostur á því að sækja formannaskóla, ritaraskóla og gjaldkeraskóla. Þá má nefna að verðandi svæðisstjórar sækja sinn skóla einnig. Það má því segja að félögum í Lionshreyfingunni gefist kostur á að efla þekkingu sína og kunnáttu með þátttöku sinni í hreyfingunni. Þá rekur hreyfingin öflugt námskeið á vegum Leiðtogaskólans, þar sem gefst kostur á að vinna verkefni í hópavinnu.
Í Lionshreyfingunni eignast félagar vini og kunningja til lífstíðar og eins og sagt er, þá er maður manns gaman, enda er Lionsstarfið ekki bara skemmtileg vinna, heldur skemmta menn sér saman og eiga góðar stundir. Algengt er að fólk mæti á kynningarfund í nálægum lionsklúbbi og fái frekari kynningu á félagsskapnum og starfinu. Í því felst engin skuldbinding um inngöngu í lionsklúbb.
Í Lions er margt í boði
Í Lions gefst kostur á að gera samfélagi og nærumhverfi gagn.
Lionsstarfið er mjög skemmtilegt.
Það er gefandi.
Heilbrigðismál, menntamál, málefni aldraðra og fatlaðra hafa notið ríkulegs stuðnings Lionshreyfingarinnar. Auk þess hafa lionsfélagar lagt mikinn skerf til umhverfismála, svo nokkuð sé nefnt.
Í Lions verða til vinabönd og dýrmæt tengsl. Sem endast oftast til lífstíðar.
Lionshreyfingin býður félögum sínum uppá fræðslu og þjálfun í félagsmálum. Þar á meðal er sérstakur sérstakur Leiðtogskóli. Þeir sem taka að sér stjórnarstörf í Lions er boðið upp á tilheyrandi fræðslu.
Lionsstarfið er ekki bara skemmtileg vinna, heldur skemmta menn sér saman og eiga góðar stundir.