Valgreinar í Höfðaskóla
skólaárið 2024-2025


Hér fyrir neðan má sjá þær valgreinar sem í boði verða fyrir nemendur á mið- og unglingastigi skólaárið 2024-2025 ásamt stundatöflu fyrir þær greinar sem kenndar eru í töflu og skráningarblaði.  

Nemendur í 5.-6. bekk velja sér þrjár stundir.

Nemendur í 7. bekk velja sér tvær stundir

Nemendur í 8. bekk velja sér fjórar stundir.

Nemendur í 9. og 10. bekk velja sér fjórar stundir.

Fyrir unglingastig: List- og verkgreina vikur uppfylla tvær stundir, valgreinadagar uppfylla tvær stundir, heimanámsaðstoð er bundið val hjá 7 og 8. bekk og uppfyllir eina stund, skyndihjálp er bundið val hjá 9. og 10. bekk og uppfyllir eina stund og stækkaðu framtíðina er bundið val hjá 8.-10. bekk og uppfyllir eina stund.

Upplýsingar um hversu margar stundir hver valgrein telur koma fram hér að neðan. 

Skyndihjálp
Umsjónaraðili: Rauði Krossinn

Skyndihjálparnámskeið fyrir
9. og 10. bekk
Bundið val. 

Heimanámsaðstoð
Umsjónaraðilar: Dagný Rósa og Gísli

Lærdómsaðstoð.
Kennt á miðvikudögum frá 14:00-14:40
Bundið val fyrir 7. og  8. bekk.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig.

Stækkum framtíðina
Ýmsir gestafyrirlesarar

Nemendur kynnast hinum ýmsu störfum. Við fáum í heimsókn fólk úr mismunandi starfsgeirum sem kynna bæði starfið sitt og hvaða leið þarf að fara til að fá réttindi til að starfa í viðkomandi starfi. Dæmi um gestaafyrirlesara eru lögreglumenn, einstaklingar úr heilbrigðisgeiranum, iðnaðarmenn og margt fleira.
Bundið val fyrir unglingastig.
Telst sem ein stund í vali.
Kennt utan töflu

Íþróttaæfingar
UMF FRAM

Nemendur sem æfa íþróttir hjá UMF Fram mega nýta það sem eina stund í vali.
Mæta verður að lágmarki á 23 æfingar yfir veturinn. 
Í boði fyrir miðstig.

Skólablað
Umsjónaraðili: Sara Diljá og Vigdís Elva

Nemendur safna  og semja efni og gefa út tvö skólablöð yfir skólaárið.
Kennt á fimmtudögum frá 14:00-15:20 eftir áramót
Telst sem ein stund í vali.  
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

Borðspil
Umsjónaraðili: Guðrún elsa

Nemendur læra ýmis borðspil.
Kennt á fimmtudögum frá
14:00-15:20 fyrir áramót.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

Forritun
Umsjónaraðili: Dagný rósa

Nemendur læra að forrita og að tileinka sér hugsunina á bakvið forritun.
Kennt á mánudögum frá
14:00-15:20 fyrir áramót.

Hámarksfjöldi 10 nemendur

Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

tónlistarskóli

Nemendur sem eru í Tónlistarskóla A-Hún geta nýtt það sem einn tíma í vali.
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

Frístund

Nemendur aðstoða í frístund í 32 kennslustundir yfir skólaárið. Tímasetningar ákveðnar í samráði við starfsmenn frístundar.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig. 

Snyrtifræði
Umsjónaraðili: Fjóla Dögg

Nemendur læra undirstöðuatriði í húðumhirðu og förðun.
Kennt á fimmtudögum frá 12:30-14:00 eftir áramót.
(mögulega færist hluti tímanna utan töflu).
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig.

Fatahönnun
Umsjónaraðili: Halla María 

Nemendur hanna flík/ur. Notast verður við efni sem verið er að endurvinna.
Kennt á fimmtudögum frá
12:30-14:00 fram að áramótum.

Hámarksfjöldi 6 nemendur.

Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

Bakstur
Umsjónaraðili: Vigdís Elva

Nemendur baka hinar ýmsu kræsingar :)
Kennt á miðvikudögum frá
12:30-14:00 eftir áramót.

Hámarksfjöldi 8 nemendur.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig.

Íþróttakynningar
Umsjónaraðili: Finnbogi 

Nemendur kynnast fjölbreyttum íþróttagreinum og prufa þær.
Kennt á  mánudögum frá  14:00-15:20 eftir áramót.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir mið- og unglingastig.

Nemendafélagið og félagsmál
Umsjónaraðili: Gigga &
Eva Dís

Þeir nemendur sem mynda stjórn nemendafélagsins og félagsmiðstöðvarinnar nýta það sem eina stund í vali. (Bundið val).

Stjórnin skipuleggur ýmsa viðburði fyrir samnemendur sína ásamt því að læra grunnatriði í viðburðastjórnun og fleiru tengdu félagsmálum.

Í boði fyrir unglingastig.

Sköpunargleði
Umsjónaraðili: Gigga

Við ætlum að prufa að vinna með alls kyns föndurefni föndra úr plastflöskum, skrapp (pappírs föndur, kort og fleira), gifs, málningartækni, leir, tie dye og ýmislegt fleira

Hámarksfjöldi 15 nemendur

Kennt á þriðjudögum frá
14:40-16:00 eftir áramót.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig.

Smíðar
Umsjónaraðili: Gigga

Hámarksfjöldi 8 nemendur

Kennt á þriðjudögum frá
14:40-16:00 eftir áramót.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir unglingastig.

Útivist og skíði
Umsjónaraðili: Fjóla Dögg og Sara Diljá 

Farið í gönguferðir,  leiki og ýmislegt spennandi utandyra.
Stefnt að því að fara á skíði.

Hámarksfjöldi 15 nemendur

Kennt utan töflu.
Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir mið- unglingastig.

Dungeons and dragons
Umsjónaraðili: Gísli

Kennt á fimmtudögum frá 12:30-14:00 á fimmtudögum fyrir áramót.

Hámark 8 nemendur

Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir 7.-10. bekk

Tilraunir
Umsjónaraðili: Gísli

Nemendur framkvæma ýmsar tilraunir

Kennt á fimmtudögum frá 12:30-14:00 á fimmtudögum eftir áramót.

Hámark 8 nemendur

Telst sem ein stund í vali.
Í boði fyrir 7.-10. bekk