Nám stutt af neti í Foldaskóla

Á þessari síðu er að finna upplýsingar varðandi sveigjanlegt nám stutt af neti í Foldaskóla

Í glærunum hér fyrir neðan finnið þið helstu upplýsingar til að geta sinnt náminu heima við, s.s. upplýsingar um aðgangsmál og leiðbeiningar um grunnatriði þeirra kerfa sem notuð eru við vinnuna.
Þið getið smellt á glærurnar til að fletta á milli eða smellt á spilunarhnappinn til að spila í gegnum þær.

Aðgangsmál

Smelltu á mynd til að finna efni tengt viðeigandi árgangi

Námsumhverfi

G Suit skólaumhverfið

Aðgangur að öllum helstu lausnum Google s.s. Drive - Skjalageymslu, Docs - Ritunarviðmót, Sheets - Töflureikni og Slides - Glærur og kynningar

Hér er að finna greinagóðar upplýsingar um G Suit ásamt kennslumyndböndum fyrir hverja lausn.


Office.com

Allir nemendur hjá Reykjavíkurborg hafa aðgang að Office-pakkanum yfir netið.

Þar hafa þeir aðgang að Outlook tölvupósti, Word, Power Point, Microsoft Teams og öðrum forritum MS.

Hér má finna upplýsingar um aðgang að Office.com


Mentor - skólakerfi

Hér hafa nemendur og aðstandendur aðgang að námsmati, ástundun, heimavinnuáætlunum og fleiru sem tengist námsferlinu.

Handbók fyrir aðstandendur

Handbók fyrir nemendur

Google Classroom er námsumsjónarkerfi til að leggja fyrir og taka á móti verkefnum frá nemendum

Fjarfundabúnaður

Grunnskólar í Reykjavík hafa aðgang G Suite for Education sem býður upp á leiðir til nútímalegra náms- og kennsluaðferða og auka samskipti og samvinnu nemenda og kennara. Hér eru upplýsingar til foreldra um G Suit.