F. 10-12
1 kg. frosið korn
350 gr. bacon, saxað
1-2 tsk. hvítlauksmauk
Chile og lime kryddblanda
1 búnt ferskt kóríander, saxað
Sýrður rjómi
1/2 feta kubbur, mulinn
Lime bátar
Nachos, mulið gróft
Chili garlic Cholula hot sauce, eða þín uppáhalds
Þetta salat er frábært á hlaðboðið, með lambi, kalkún eða kjúklingi. Svo er það geggjað með allskonar grillmat. Ég gerð salatið þegar ég var með skírnarveislu heima. Ég var með hlaðborð, þar sem aðalréttirnir voru m.a. heilsteikt grísasíða og roast beef, það var mjög gott með báðu. Endilega prófaðu ;-)
Baconið er steikt stökkt á rúmgóðri pönnu. Kornið er sett frosið á pönnuna og steikt í bacon feitinni. Korninu er ýtt til hliðar og hvítlauksmaukið steikt í smástund, síðan er því blandað saman við allt á pönnunni. Kryddað til með chili & lime kryddinu og salti ef þar, í lokin er kóríandernum blandað saman við, tekið af hitanum og kælt. Sett á stóran disk og sýrðum rjóma dreift yfir toppinn, ásamt muldum feta osti, nachos, lime bátum og drussi af hot sauce. Borið á borð með góðu kjöti eða öðru sem þú býður upp á. Hægt að gera salatið án þess að setja neitt ofan á það, fyrr um daginn.