F. 4-6
1 kg. litlra kartöflur, með eins ljósu lýtalausu hýði og þú færð
100 gr. smjör
3 msk. extra virgin ólívu olía
2 sóló hvítlaukar, saxaði fínt
3 tsk. reykt paprika
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
3 vorlaukar, í þunnum sneiðum
Manchego ostur, ef þú færð hann ekki, er mjög gott að nota Feykir 24+, Prima Donna eða Old Amsterdam
Japanskt Kewpie majónes
Þú verður í uppáhaldi hjá öllum sem smakka þessar kartöflur, þær eru sjúllaðar. Þegar ég býð fjölskyldunni upp á þær, með góðri steik, er aldrei afgangur af þeim, þau narta í þær þar til ekkert er eftir nema skálin :-D Það er lítið mál að búa þær til fyrir fram, til að flýta fyrir. En skora á þig að prófa þær ;-)
Það borgar sig að reyna að fá eins góðar og fallegar kartöflur og þú getur og að hýðið sé helt gallalaust. Þær eru þvegnar og burstaðar undir vatnsbunu og síðan eru þær settar í pott með sal vatni og soðnar þar til þær eru soðnar að 2/3. Þær eru kældar lítillega og síðan skornar í tvennt eftir endilöngu. Olían og smjöri er brætt á stórri pönnu, reykta paprikan og hvítlaukurinn er sett á pönnuna og steikt í 1-2 mín. Síðan er kartöflunum raðað á pönnuna, með sárið niður og þær látnar brúnast þannig, við meðalhita í 7-10 mín., án þess að hreyfa þær. Þá má velta þeim varlega og snúa þeim, þar til þær eru vel ristaðar og gegn heitar, saltað og piprað. Kartöflunum er hellt í skál eða á fat, ásamt öllu smjörinu á pönnunni, majónesi er sprautað yfir í tíglamynstri, síðan er fullt af osti rifinn yfir með Microplane járni og í lokin er vorlauknum stráð yfir og grófu sjávarsalti. Borið fram með góðri steik eða grillmat.