F. 4-5
1 lítill poki gulrætur
5 meðalstórar steinseljurætur
1-2 rauðlaukar
10 sósló hvítlaukar
1-2 greinar ferskt rósmarýn
1-2 greinar fersk timían
Góður slurkur góð ólívu olía
Sjávarsalt og númalaður svartur pipar
Mér finnst ofnbakað rótargrænmeti, sem er rétt byrjað að karamellast á jöðrunum rosalega gott með góðri steik. Það eru allskonar möguleikar á grænmetis blöndu, en mér finnst þessi mjög góð, smá anís keimur af steinseljurótunum, sæta úr gulrótunum og svo er hvítlaukurinn alveg dásamlegur. Endilega prófaðu:-)
Ofninn er hitaður í 200°C. Gulræturnar, og steinseljuræturnar eru skrældar og síðan skornar eftir endilöngu í miðlungsþykkar langar ræmur. Laukurinn er skorinn í báta, en passaðu að hann hangi saman á rótinni. Tekið utan af hvítlauknum, en hann er hafður heill. Kryddjurtagreinar, eru skolaðar undir rennandi vatni og teknara í sundur. Þegar allt grænmetið er tilbúið er það sett í ofnskúffu ásamt kryddjurtunum, olíunni er dreift yfirsaltað og piprað. Ofnskúffunni er stungið í ofninn og grænmetið bakað í um 40-50 mín. Borið á borð sjóðheitt.