F. 2-3
1 grísalund, sinahreinsuð
Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar
1 msk. olía
1/2 bolli appelsínusafi
1/ bolli púðursykur
1/2 tsk. kanill
1 tsk. sítrónusafi
2 msk. hunang
1 appelsína, í sneiðum
Gula salatið
Hér er á ferðinni dásamlega góð uppskrift af grísalundum með appelsínu, og sætum kanilgljáa. Það tekur enga stund að elda hana, svo hún er tilvalin í kvöldmatinn. Lundirnar eru frábærar með Gula salatinu og hrísgrjónum, endilega prófaðu ;-)
Ofninn er hitaður i 180°C. Lundin er sinahreinsuð, söltuð og pipruð. Olían er hituð í rúmgóðri pönnu, á háum hita og lundinni lokað og hún brúnuð á öllum hliðum. Tekin af hitanum og sett til hliðar. Hitinn er lækkaður og pönnunni leyft aðeins að kólna, síðan er appelsínusafanum hellt á pönnuna, ásamt púðursykrinum og hrært í þar til hann leysist upp. Kanil, sítrónu og hunangi er bætt út í sósuna og látið malla í henni í um 5 mín. Ofnskúffa eða stórt fat, er klætt með bökunarpappír og appelsínusneiðunum raðað á pappírinn, síðan er lundin sett ofan á sneiðarnar og sósunni hellt yfir lundina. Stungið í ofninn og lundin bökuð í 20 mín. Tekin úr ofninum og látin hvílast í 5 mín. áður en hún er skorin. Sósan er sett í skál og borin á borð með kjötinu, ásamt hrísgrjónum og góðu salati.