F. 3-4
500 gr. risarækjur, hráar, skelflettar, en með sporðskelinni ef hún er á
2 tsk. af hvoru, kóríander og cumin, fín möluðu
1 tsk. af hverju, kanil, turmerik og chili dufti
1/2 tsk. reykt paprika
5 cm. ferskt engifer, gróf saxað
4 hvítlaukrif gróf söxuð
3 msk. tómatmauk
2 msk. af hvoru ferskur sítrónu safi og ólívu olía
1/2 bolli grísk jógúrt
1/4 tsk. salt
1/3 af gúrku
1 bolli grísk jógúrt
1 tsk. gul sinnepsfræ
1/2 tsk. garam masala
1/2 bolli kóríander lauf, fínt söxuð
1 grænt chili, fín saxað
1 hvítlauksrif, fín saxað
2 msk. lime safi
1 msk. ólívu olía
1/4 tsk. garam masala
Sjávarsalt
Naan bauð ef þú vilt
Hér er á ferðinni flottur en léttur kvöldverður, þegar þig langar að kveikja upp í grillinu og fá þér eitthvað gott og svolítið framandi. Venjulega er það kjúklingur sem er tandoori kryddaður, en rækjur eru dásamlegan þannig. Endilega prófaðu :-)
Rækjurnar: Allt þurrkryddið er steikt á þurri pönnu þar til að fer að ilma vel. Sett í lítinn blandara, ásamt engifer, hvítlauk, tómatmauki, sítrónusafa, olíu, jógúrt og salti og maukað það til það er slétt og kekkjalaust. Rækjurnar eru settar í rúmgóða skál og kryddmaukinu hrært saman við, svo það þeki allar rækjurnar, látnar marinerast í allavega 2 tíma. Þá eru rækjurnar þræddar á góða grillpinna og síðan grillaðar á úti grilli í ca. 2 mín. á hvorri hlið. Bornar á borð með raita sósunni og græna chutneyinu.
Raita sósan: Gúrkan er rifin á grófu rifjárni. Gott er að kreista mestan safa úr gúrkunni, í hnefanum, síðan er öllu hráefni í sósuna blandað saman.
Græna chutneyið: Öllu hráefninu er blandað saman í skál.