F. 2-3
15 tígrisrækjur, með haus og skel
1 msk. ólívu olía
2 msk. ferkst engifer, smátt saxað
1 msk. hvítlaukur, smátt saxaður
1 msk. þurrt Sherrý
4 msk. saltlítil soyja sósa
1/2 msk. sykur
1 tsk. nýmalaður svartur pipar
2 msk. vatn
2 mak. ferkur kóríander, saxaður
Við á mínu heimili elskum rækjur í flestum myndum. Klassískar í hvítlaukssmjöri með góðu brauði, eru alltaf frábærar, svo það er gott að brjóta upp vanann og gera eitthvað nýtt. Hér eru á ferðinni tígrisrækjur með austurlenskum keim, engifer, Sherrý, soja og hvítlauk. Endilega prófaðu, þær eru geggjaðar ;-)
Hausinn er tekinn af flestum rækjunum, en það er gott að geyma 2-3 með haus og skel til að skreyta með. Skelin er klippt upp á bakinu og tekin af nema síðasti liðurinn með sporðinum, svarta röndin er tekin úr og skelinni hent. Hvítlaukur og engifer er skorið fínt. Olían er hituð á pönnu á meðalhita og hvítlaukurinn og engiferið er steikt í 1/2 -1 mín., þar til það fer að gefa frá sér góðan ilm. Rækjunum er bætt á pönnuna og þær steiktar í 1-2 mín., á meðan þú hrærir í pönnunni. Sherrýinu er hellt á pönnuna og látið malla í augnablik, þá er sojunni hellt á pönnuna. Sykri, vatni og pipar er bætt á pönnuna og hitinn hækkaður upp og látið sjóða í ca. 2 mín., á meðan hrært er í pönnunni, svo sósan þeki allar rækjurnar, tekið af hitanum. Rækjurnar eru tilbúnar þegar þær eru orðnar rauðar og hættar að skreppa saman. Söxuðu kóríander er dreift yfir pönnuna og borið á borð með núðlum eða hrísgrjónum.