F. 4
2 bollar sushi grjón, eða sama magn af blómkálshrísgrjónum
4 vorlaukar, í þunnum sneiðum
2 msk. smjör, brætt
3 msk. ljóst miso
2 msk. hunang
1 msk. olía
1 msk. ferskur engifer, rifinn
2 tsk. rifinn börkur af bleiku grapefruit
1 msk. ferskur grapefruit safi
700 gr. roðflettur lax, skorinn i 4 sneiðar
Sjávarsal og nýmalaður svartur pipar
Kimchi
Kewpie majónes
Nori, í sneiðum
Gúrkusneiðar
Radísur
Avocado
Ferskt kóríander, saxað
Lime bátar
Chili crisps í olíu eða þunnskorið rautt chili
Ég féll fyrir poke skál í fyrsta sinn sem ég smakkaði þetta dásamlega gúmmelaði. Svo létt í magann, fallegt og bráð hollt. Þetta er frábær sumarmatur (ef sumarið kemur 🥴) Ég borða ekki mikið af hrísgrjónum, í stað þeirra borða ég blómkálshrísgrjón, sem mér finnst koma fullkomlega í staðinn. Svo blandar þú þínu uppáhalds grænmeti út í og hefur "hitann" eins og þér sýnist best, með geggjuðum chili crisps og olíunni. Ef þú færð hana ekki er frábært að nota rautt chili í þunnum sneiðum í staðinn.
Hrísgrjónin eru skoluð vel undir bunu af rennandi vatni, þar til varnið rennur svo til hreint. Soðin skv. leiðb. á pakka. Ef þú notar blómkálshrísgrjón, eru þau soðin skv. leiðb. á pakka. Á meðan fgrjónin sjóða, er miso-ið hrært upp með hunanginu, olíu, engifer, smá salti, safa og berki af grape-inu, í rúmgóðri skál. Laxinn er settur í skálina og honum velt varlega upp úr marineringunni. Kveikt er á grillinu í ofninum og grind sett í efstu stillingu í ofninum. Olíu spreyjaður álpappír, er settur á grindina og laxinn er lagður á álpappírinn og restinni af marineringunni, smurt á laxinn. Laxinn er grillaður þar til hann brúnast, í ca. 5-7 mín., það er rosalega gott að leyfa honum að ristast vel. Þegar hrísgrjónin eru soðin eru þau losuð í sundur með gaffli, smjörinu og vorlauknum er blandað sama við þau, smakkað til með salti og pipar. Hrísgrjónunum er skipt á milli 4 skála, laxastykki er sett ofan á þau og síðan seturðu það grænmeti sem þér finnst best ,ofan á, ásamt ciliolíu og kewpie mæjó ef þú vilt, geggjað gott.