F. 6
3 dl matreiðslurjómi
65 gr. syrkur
Salt á hnífsoddi
3 eggjarauður
1 msk. maismjöl
3 msk. smjör
150 gr. suðusúkkulaði með karamellukurli og sjávarsalti
1/2 tsk. vanillu dropar
5 Oreo kökur, muldar gróft
2 1/2 dl rjómi, þeyttur
Hér er frábær eftirréttur á ferðinni, sem ungir jafnt sem aldnir elska, enda hvað er ekki að elska, gott kex, súkkulaði og þeyttur rjómi? Alls ekkert ☺️ Það má gera hann fyrir fram og skreyta hann svo, þegar hann á að fara á borðið. Endilega prófaðu ;-)
Súkkulaðibúðingurinn: Matreiðslurjóminn er settur í pott, ásamt 1 1/2 msk. af sykrinum og salti og hitað rólega að suðu á meðan þú hræri í pottinum. Eggjarauðurnar eru þeyttar í skál, ásamt maísmjölinu og restinni af sykrinum, þar til það er flauels slétt og mjúkt. Heita rjómanum er hellt í mjórri bunu út í eggjarauðurnar, á meðan hrært er stöðugt í. Blöndunni er hellt í pott og hún er látin malla á lágum hita, á meðan hrært er stöðugt í, í um 1/2 mín. Tekið af hitanum og smjöri, súkkulaði og vanillu er bætt út í og hrært í þar til súkkulaðið og smjörið er bráðið og blandan slétt og kekkjalaust. Blöndunni er hellt í gegnum sigti í hreina skál og plastfilma sett beint á súkkulaði búðinginn svo það myndistekki skán ofan á honum. Skáin er sett í ísskápinn og látið kólna í minnst 1 klst., eða allt upp í 3 daga.
Samsetning: Þegar þú ætlar að bera pæið á borð eru Oreo kökurnar muldar með bolla eða glasi, miðlungs fínt og 1 msk. af mylsnu dreift á milli skála eða glasa. Búðingurinn er settur í sprautupoka og honum sprautað ofan á kexmylsnuna. Rjóminn er þeyttur og honum er síðan sprautað ofan á súkkulaðibúðinginn og restin af kökumylsnunni, sett ofan á rjómann.