Grundarfjarðarbær hefur hlotið Evrópustyrk (LIFE-ICEWATER) til að leysa fráveitumál í bænum með blágrænum ofanvatnslausnum. Þetta eru lausnir sem hafa gefið góða raun víða í nágrannalöndunum. Bærinn vinnur jafnframt að gerð rammahluta aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir.
Hér má kynna sér leiðarljós verkefnisins og hvernig blágrænar ofanvatnslausnir verða nýttar til að fegra bæinn og verja gegn aukinni úrkomu á hagkvæman hátt.
Fyrsta skrefið í innleiðingu á LIFE-ICEWATER verkefninu er gerð rammahluta aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir, sem nú er í vinnslu. Í rammahluta aðalskipulags er útfærð nánari stefna á afmörkuðu svæði í sveitarfélaginu.
Með rammahluta aðalskipulags fyrir blágrænar ofanvatnslausnir er mótuð stefna um tilhögun fráveitu og meðferð ofanvatns í þéttbýli Grundarfjarðarbæjar. Rammahlutinn mun leggja línurnar fyrir skipulag og framkvæmdir í almenningsrýmum bæjarins, sem nauðsynleg eru fyrir skilvirka meðhöndlun ofanvatns.
Markmiðið er að flétta blágræna innviði, sem geta tekið við og veitt ofanvatni á yfirborði, saman við almenningsrými og aðra græna innviði Grundarfjarðarbæjar. Þannig verður bærinn grænni, meira aðlaðandi og þolnari gagnvart loftslagsbreytingum. Þessi sýn endurspeglast í þremur leiðarljósum rammahlutans sem sjá má hér að neðan; gróskumikill, framsækinn og vistvænn Grundarfjörður.
Stefna rammahlutans verður nánar útfærð í deiliskipulagi og hönnun. Sjá hönnun og framkvæmd.
Grundarfjörður verður grænni, gróðursælli og gönguvænni.
Regnvatnið er notað til að næra gróður, grænka og fegra götur og almenningsrými, í stað þess að leiða það í lagnir neðanjarðar.
Fjárfest er í grænni og vænni bæ og komist hjá því að eyða fé í sífellt stærri lagnir undir yfirborði.
Grænna og fallegra umhverfi hvetur til útiveru, stuðlar að bættri lýðheilsu, styrkir vistkerfið og eykur líffræðilega fjölbreytni.
Létt verður á fráveitukerfinu með blágrænum lausnum í stað regnvatnslagna neðanjarðar.
Grundarfjörður verður í farabroddi á Íslandi við innleiðingu nútímalegra fráveitulausna.
Blágrænar regnvatnslausnir eru nýttar til að létta á fráveitukerfinu, sem ekki annar álagi, í vaxandi bæjarfélagi.
Skólphreinsun verður auðveldari og hagkvæmari.
Náttúrumiðaðar lausnir draga úr flóðahættu og hreinsa mengun.
Náttúrumiðaðar lausnir binda vatn og jarðveg og draga úr álagi vegna aukinnar úrkomu.
Mengun af götum síast úr regnvatninu áður en það berst út í sjó.
Innleiðing blágrænna lausna er bæði mótvægisaðgerð og mikilvæg aðlögun að loftslagsbreytingum.
Í þéttbýli er yfirborð gatna og gangstétta yfirleitt ógegndræpt. Þetta þýðir að ofanvatn (regnvatn og snjóbráð), sem fellur til jarðar, safnast fyrir eða rennur á yfirborðinu í stað þess að seytla niður í jarðveginn með náttúrulegum hætti. Hefðbundna lausnin er að veita vatninu í fráveitulagnir neðanjarðar.
Í stað hefðbundinna fráveitukerfa er orðið æ algengara í nágrannalöndum okkar að nota blágrænar ofanvatnslausnir. Lögð er áhersla á að ofanvatn sígi hægt og rólega ofan í jarðveginn eins nærri þeim stað sem það fellur og unnt er.
Sjá nánari upplýsingar um blágrænar ofanvatnslausnir.
Gegndræpt yfirborð og gróðurbeð þar sem vatn á greiða leið niður í jarðveginn.
Vatn rennur í regnbeð meðfram götum þar sem það síast niður eða rennur áfram milli beða í átt að viðtaka, s.s. lækjum eða sjó.
Svæðin eru hönnuð þannig að vatn geti safnast þar á öruggan hátt í miklum rigningum.
Grundarfjörður fékk styrk úr stóru Evrópusambandsverkefni sem nú stendur yfir á Íslandi, sem kallast LIFE-ICEWATER, til þess að framkvæma metnaðarfulla framtíðarsýn í loftslagsmálum m.t.t. meðhöndlunar ofanvatns.
Styrkurinn sem Grundarfjörður hlaut nemur um 330 m.kr. til 6 ára, þ.e. til 2030. Styrkurinn er veittur til að skipuleggja uppbyggingu á blágrænum ofanvatnslausnum (BGO) í Grundarfjarðarbæ, framkvæma þær á skilgreindum lykilsvæðum, útbúa leiðbeiningar, fræða og hafa samráð við íbúa.
Umhverfis- og orkustofnun (UOS) leiðir verkefnið í heild með 22 samstarfsaðilum, en heildarstyrkurinn nemur um 3,5 milljörðum króna.
Sjá nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins.