Dæmi um yfirlitsskjal fyrir skráningu á grunnfærni nemenda á yngsta stigi í grunnskóla. Um leið og nemandi hefur öðlast grunnfærni er hægt að byrja að meta viðkomandi barn inn á framfarastigann fyrir yngsta og miðstig. Það er persónubundið hvenær það gerist. Með því að fylgjast vel með grunnfærninni er reynt að tryggja að nemendur hafi þá hæfni sem þarf til að geta fótað sig vel á miðstiginu.
Annað skref
Þegar grunnfærninni er náð er hægt að fara að skrá færni nemenda inn á framfarastiga eitt. Það er ekki víst að færni í læsi og stærðfræði náist á sama tíma. Mikilvægt er að miða við að lang flest börnin séu komin með framfarastiga í 3. bekk - sum löngu fyrr. Nemendur eru með sömu framfarastigana út miðstigið.
MASTER 2 stig - Yngsta og miðstig - framfarastigar - 2026 Læsi og stærðfræði
Við lok 4. bekkjar - Skráning á raunstöðu nemenda
Á þessum tímamótum eru allir nemendur metnir út frá matsviðmiðum aðalnámskrá grunnskólannavið lok 4. bekkjar. Staða nemenda er metin með þeim hætti sem kennurum þykir heppilegast, með prófum, samtölum, símati eða athugunum og skráningum í framfarastiga. Mikilvægt er að það sé tekið fram hvernig viðkomandi þáttur er metinn.
Master Mat við lok 4. bekkjar - Matsviðmið úr Aðalnámskrá VÆGI
Erlend tungumál
Í Höfðaskóla er kennd enska og danska. Enskukennsla hefst í XX. bekk og dönskukennsla í XX. bekk. Þegar nemandi hefur nám í erlendu tungumáli bætast framfarastigar viðkomandi tungumáls við þá framfarastiga sem þegar eru hluti af námsmati hans. Framfarastigarnir fylgja nemandanum eftir því sem færni hans í tungumálinu eykst og endurspegla þannig stöðu hans og framfarir óháð aldri eða árgangi. Unnið er með sömu framfarastiga í erlendum tungumálum frá upphafi náms til lok 10. bekkjar.
Við lok 7. bekkjar - Skráning á raunstöðu nemenda
Við lok 7. bekkjar eru allir nemendur metnir út frá matsviðmiðum aðalnámskrá grunnskólanna. bekkjar. Staða nemenda er metin með þeim hætti sem kennurum þykir heppilegast, með prófum, samtölum, símati eða athugunum og skráningum í framfarastiga. Mikilvægt er að það sé tekið fram hvernig viðkomandi þáttur er metinn.
Master- Lokamat 7. bekkur - Matsviðmið úr Aðalnámskrá VÆGI
Við upphaf unglingastigs
Þegar nemendur færast upp á unglingastig vinna þeri með framfarastiga sem byggður er á matsviðmiðum aðalnámskrá grunnskóla við lok 10. bekkjar og viðmiðum skólans í læsi og stærðfræði. Þessir framfarastigar bætast þá við þá framfarastiga sem nemendur eru nú þegar að vinna með.
Staða hvers og eins nemenda er metin reglulega yfir skólaárið og skráð á vitnisburð við lok hvers skólaárs.
MASTER 3 stig - Unglingastig forgangsmarkmið Læsi og Stæ
Við lok 10. bekkjar - Skráning á raunstöðu nemenda
Lokamat 10. bekkur - Matsviðmið úr Aðalnámskrá VÆGI
Við lok grunnskólagöngu eru allir nemendur metnir út frá matsviðmiðum aðalnámskrá grunnskólanna við lok 10. bekkjar. Staða nemenda er metin með þeim hætti sem kennurum þykir heppilegast, með prófum, lokaverkefnum, samtölum, símati eða athugunum og skráningum í framfarastiga. Mikilvægt er að það sé tekið fram hvernig viðkomandi þáttur er metinn.