Villi


Ef þið af einhverri ástæðu hafið eitthvað að segja gerið það hér

28 júlí

Sítrónu svaðilför

Fyrir 2

  • 3 Kjúklingabringur
  • 1 bakki sveppir
  • 1/2 púrrlaukur
  • 1 paprika
  • handfylli af litlum gulrótum
  • 1 bakki kasjúhnetur 
  • 1 peli matreiðslurjómi
  • 2 Sítrónur
  • mikið af Timian 

Takið grænmetið og skerið það niður í "bite-size" einingar, takið kjúklingabringurnar (ég mæli með að nota skinnlausar bringur) og kryddið til marineringar með

  • salti
  • pipar
  • smá paprikukryddi
  • smá soja sósu
  • safanum úr einni sítrónu
  • smá aromat

Leyfið þessu að marinerast í 10-15 min, á meðan það tjillar takið þið kasjú hneturnar og steikið á pönnu með smá smjörklípu, ef þið viljið þá er líka hægt að nota þurra pönnu en smjörið gefur bara svo nice bragð. þegar þær eru orðnar fallega brúnar takið þær af og setjið til hliðar, síðan takið þið smá olíu og setjið á pönnuna (sem er btw mjög heit) og setjið góðan slatta af timian kryddinu í olíuna og leyfið kryddinu að brúnast, síðan skellið þið grænmetinu á í þessari röð, sveppir, laukur, gulrætur, paprika. Fyrstu 3 itemin fara á svipuðum tíma en paprikan seinast. þegar grænmetið er orðið VIP takið þið bringurnar úr glögginum og skellið á pönnuna (síðan skuluð þið lækka á pönnunni um leið og þið setjið þær á) sem eins og grænmetið fékk smolíu á sig ásamt timiani, þið gefið bringunum alveg 5-7 min á hvorri hlið (ef fólk er ekki visst á steikingunni er eina leiðin að skera í eina til að gá hvort að hún sé ekki steikt í gegn)þegar þær eru ready þá er bara að kippa þeim af og leyfa þeim að hvílast á meðan sósan er gerð.

ef fólk er ekki að kveikj á því þá er þetta allt gert á einni pönnu, sósan líka. þið takið smá sveppi og smá lauk og skellið á pönnuna með smá olíu, síðan í rólegheitunum hellið þið smám saman svona 5/7 af innihaldi pelans á pönnuna og hrærið á meðan. Voilá, verði sósa... hins vegar er hún ekki alveg tilbúin... takið eina sítrónu og kreistið safann úr henni í sósuna og setjið svona 4-5 dropa af vanilludropum út í!!!

síðan fer slatti af timian, grófmöluðum pipar og salti til að krydda til sósuna. hún er sett í ílát og allt er frábært, áður en farið er að borða takið þið grænmetið allt (með hnetunum líka) og skellið á pönnuna til að skjóta aðeins á það og ná allri sósunni... síðan er þetta Fini!

verði ykkur að góðu

Villi "Le Chef"

23 júlí

Ok, ég er á lífi.

Málið er að ég er ekki með internetið þar sem ég gisti á meðan húsið mitt er í byggingu, (ye, whatever) og þess vegna er ég ekkert sérstaklega heitur fyrir því að eiða tímanum í að blogga.

En svona fyrir þá sem hafa áhuga þá eru dagar mínir frekar einsleitir, ég er í vinnunni, ef ég er ekki í vinnunni er ég að undirbúa mig fyrir vinnuna með einum eða öðrum hætti, þannig verður þetta svona næstu 4 árinn, án gríns. 

Þannig að fyrir ykkur öll cry babies sem vilja fá allt upp í hendurnar og ást og frið og hamingju og Whatever, þá segi ég bara...


lokið á ykkur þverrifunni og gerið þetta sjálf

Annars er það bara þannig að ég drap viljandi í fyrsta skipti lífveru um daginn, það var mjög merkileg lífsreynsla. Strákarnir á Grillinu voru búnir að vera að bíða eftir sendingu af ferskum Humri sem hafði seinkað, og til að útskýra ferskan þá meina ég þetta

"Hæ, ég er humar, rétt áðan var ég að tjilla í Atlantshafinu að nasla einhverja kjellingu þegar mér var bara snakeað upp úr sjónum og settur í kassa... núna er ég einhvers staðar á Íslandi og það er eitthvað fífl að horfa á mig"

já við erum að tala um mjög lifandi specimens, allavega, ég var bara að massa í rólegheitunum þegar inn labbar Bjarni, eða Mr. V.I.P., eða ein af 25 bestu kokkum Evrópu og yfirmaður á Grillinu..

Hann segir, "Hey þú, hefuru séð Natural Born Killers?"

Ég "já"

Hann "Góð mynd, allavega, ef þú ætlar að vinna í þessum bissness þá þarft þú að vera Natural born Killer, hérna eru þrír kassar af humar, ég vil að þú takir hvern einasta og byrjir á því að rífa af honum klærnar og síðan skalltu rífa hann til helminga"

Ég "ok"

Á svona næstu 20 min. drap ég hátt í 40 humra, gaman af því...

Síðan ég byrjaði að vinna á Sögu hef ég lést um hátt í 8 kíló sem er alveg frekar undarlegt af því að ég er farinn að nota föt sem ég hef ekki notað í svona 4 ár, hressandi...

ein góð sagaq, ég var í vinnunni um daginn og á 15 min voru spiluð eftirfarandi lög, 

John Coltrane - Giant Steps

Pendulum - Fasten your seatbelts

Alto et Factotum (fígaro arían) úr rakaranum frá Sevilla

AC/DC - Hells Bells

ég er ekki að grínast, gaurarnir sem vinna þarna hlusta á allt... allt frá house til Klassík, frá Jass til Rokks, Frá D/B til Reggea, frá Scooter til Jaques Loussier, frá Slayer til N.e.r.d. og þeir þekkja allt í þaula um tónlist, það er svo sérstök samsetning á fólki þarna. Ég meina ég lennti í rosa athyglisverðum samræðum við einn vinnufélaga minn á tveimur tímum um eftirtalinn málefni

Jackson Pollock

Hegðun og lífshlaup skordýra

Bernaise sósuna

og þessi ótrúlega cultiveraði gaur veit allt um allt... til að mynda gaf Megas honum the anarcists cook book í 12 ára afmælisgjöf... hversu svalt er það...


allavega, ég er hættur að blogga, ég hef ekki tíma í þetta, ég mun skella inn myndum hérna af og til, þegar ég nenni og hef tíma... annars ekki, síðan kannski blogga ég ef ég hef 

EKKERT

betra að gera, þannig að þið þurfið ekki að hafa áhyggjur um að þið séuð að missa af einhverju...

þangað til einhvern tíman

Villi "Le chef"


 

 

 

      Hlekkir

 

Fólk 

Jónas 

Ken 

Katrín 

Dagur Kári

Ásta 

Tumi 

Atli Viðar 

Stóri Jón

Jökull  

   Tónlist  

  Myndir 

Skíðaför 

Þjóðarstoltið 

Hjólbörur

Lappirnar á Ken

  Eldri færslur

- til 26-02-2006 

Sign in  |  Recent Site Activity  |  Terms  |  Report Abuse  |  Print page  |  Powered by Google Sites