Markmið okkar er að stofna eigið fyritæki. Við bæði þorum getum og viljum!
Fyrirtækin okkarBorgir BorgarfirðiEldberaEYELOVEGlætan bókakaffiGrand SpaHexiaJSÓ Járnsmiðja ÓðinsLykkjufallLögronV3.is - ViðhaldsbókVeftaVinun | Haustið 2006Um 40 konur komu saman á kynningarfundi hjá Iðntæknistofnun haustið 2006. Þær voru búnar að skrá sig á námskeið til að læra að gera viðskiptahugmynd að veruleika. Eða til að læra enn betur hvernig reka skal fyrirtæki. Námskeiðið, Brautargengi var haldið á vegum Iðntæknistofnunar (IMPRU). Brautargengi er námskeið fyrir konur sem vilja hrinda viðskiptahugmynd sinni í framkvæmd. Allar mættum við með okkar eigin viðskiptahugmynd í farteskinu og sumar voru þegar búnar að stofna fyrirtæki og vildu læra hvernig þær gætu bætt sinn rekstur. Við komum úr öllum geirum atvinnulífsins, á meðal okkar voru listakonur, verslunarmenn, raungreinakonur og þannig mætti lengi telja. Tvisvar í vikuVið mættum og hlustuðum á Siggu og Jón og fleiri góðar konur og menn. Við lærðum að búa til viðskiptaáætlun og unnum hver um sig með sína hugmynd. Ári síðar, eða í nóvember 2007, ákváðum við að búa til heimasíðu og birta á henni tengla á fyrirtækin okkar. Myndin var tekin þegar við útskrifuðumst í desember 2006 Hinar sem eru ekki með tengil á sitt fyriræki á þessari síðu, eru annað hvort að vinna við eitthvað annað eða eru enn að vinna í því að láta drauminn rætast. Eða eiga eftir að senda inn tengilinn sinn. Það er okkar reynsla, að fyrst er að láta sig dreyma, því næst er að læra hvernig á að gera drauminn að veruleika með því að gera alls konar áætlanir og plön. Og svo er að byrja. Og okkur gengur vel, en lesandi góður, við bjóðum þér að taka þátt í ævintýrinu með okkur og heimsækja síðurnar okkar. ÞJ |
Brautargengissystur-2006 geta sent póst á Pósthópur Brautargengissystra. Aðrir geta sent póst á vbok@vbok.is
