V3.is - Húsbók eignar 
NÝR NOTANDI?   Gjörðu svo vel að skrá þig og búa til viðhaldsbók án endurgjalds á www.V3.is   SKRÁ INN

V3.is - Húsbók

Um vefinn

Viðhaldsbók eignar

Viðhaldsbók húsfélags

Verkbók fagmanns

Fróðleikur

Dæmi

Skrá inn

Nýr notandi 

Spjallborð V3.is

Tenglar:

Lundabaggar

Brautargeng.systur

Emporis.com -húsa gagnagrunnur

www.V3.is 

Framkvæmdir á heimilum

Það er mikilvægt að skipuleggja framkvæmdir á heimilum vel hvort sem þær eru smávægilegar eða stórar. T.d. ef setja á flísar á gólfið í baðherberginu eða leggja parket á stofuna. Kannski er tímabært að mála stofuna áður en parketið er lagt og ef til vill þarf að eiga eitthvað við pípulagnirnar á baðherberginu áður en flísarnar eru lagðar.

Vistvænt efni

Þegar farið er í framkvæmdir, vilja margir velja vistvænt efni. Það er skynsamlegt að velja vörur sem auðvelt er að halda við og sem eru endingargóðar. Það er einnig dýrmætt að halda til haga upplýsingum um efnið sem maður notar, hvenær verkið var unnið og jafnvel hver vann verkið fyrir mann! Gott efni ætti að endast í alla vega 10 ár og það ætti að vera hverjum húseiganda kappsmál að halda vel utan um allar sínar framkvæmdir, frá upphafi og til enda.

Gott efni endist oftast lengi og er þarmeð umhverfisvænt og góðir umhverfisvænir húseigendur henda ekki út nýlegum hlutum. Það ætti þessvegna að vera hverjum fasteignaeiganda kappsmál að halda til haga upplýsingum um framkvæmdir sem hann hefur staðið í og hvaða efni hann hefur valið. Því við erum ótrúlega fljót að gleyma og eftir smá tíma, munum við ekki lengur hvenær við stóðum í framkvæmdinni sem við stöndum í í dag! Ef við búum okkur til viðhaldsbók getum við hvenær sem er flett upp í henni og séð hvenær hlutirnir voru gerðir, hver vann  fyrir okkur og hvaða efni voru notuð. Og metið hvort tími sé kominn á nýtt viðhald.

Viðhaldsbók eignar og/eða húsfélags

Viðhaldsbók sem einu sinni er búin til (á V3.is) fylgir viðkomandi fasteign þótt hún skipti um eigendur. Húseigandi og félagar í húsfélögum, geta fært viðhald á eignum sínum til bókar með því að skrá sig og nota vefinn, www.V3.is.

Skráningin og notkun er notendum að kostnaðarlausu. Notandi býr til viðhaldsbók fyrir eignina sína og skráir síðan í hana upplýsingar um viðhaldsverk, efni sem eru notuð og fleira sem á við hverju sinni. Ef hlutir eru í ábyrgð, geta notendur skráð hvenær þeir voru keyptir og hve langur ábyrgðartíminn er, í viðhaldsbókina sína.

Vara sem er annað hvort háð tísku, eða er léleg, úreldist hratt og kallar á að henni sé skipt út. Það leiðir til meiri auðlindanotkunar, meiri útgjalda og er ekki umhverfisvæn stefna. Húseigendur ættu að huga að umhverfinu, velja endingargóða og vandaða hluti inn á heimili sín, hvort sem um gólfefni, lagnir eða húsgögn er að ræða og halda bókhald yfir öll verkin, efnið og fagmennina sem vinna fyrir þá á heimili þeirra.

Verkbók fagmanns

Fagmönnum stendur til boða að skrá upplýsingar um sig og verk sín, í verkbók fagmanns. Þegar fasteignaeigandi þarf á fagmanni að halda, getur hann annað hvort leitað að fagmanni sem aðrir eigendur mæla með í Viðhaldsbók eiganda eða leitað í verkbók fagmannsins.

Skráning og notkun viðhaldsbókar er án endurgjalds

Þú getur leitað að fagmanni sem aðrir notendur mæla með

Þú getur skoðað viðhaldsbók eignar sem er í sölu

V3 vaktin

V3 pósthópur

Fyrirspurn

Spjallborð húseigenda