posted 27 Nov 2010 06:57 by Omar Omar Agustsson
Intersport Þrekmótaröðinni 2010 er nú formlega lokið, en nú um helgina fór fram síðasta mót ársins, 5x5 Áskorunin, í Vestmannaeyjum.
Keppnin gekk einstaklega vel og átökin voru gríðarleg í öllum flokkum. Allar aðildarstöðvar mótsins stóðu saman sem ein og liðsheildin var til algerrar fyrirmyndar. Eftirvæntingin fyrir mótaröð næsta árs er strax farin að byggjast upp. Næsta mót er annars Lífsstílsmeistarinn í mars 2011.
Helstu úrslit úr 5x5 Áskoruninni:
Einstaklingsflokkur karla - opinn flokkur: 1. Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Bootcamp) 2. Ómar Ómar Ágústsson (Bootcamp) 3. Daði Hrafn Sveinbjarnarson (Bootcamp)
Einstaklingsflokkur kvenna - opinn flokkur: 1. Annie Mist Þórisdóttir (CrossFit BC / Bootcamp) 2. Ásta Ósk Stefánsdóttir (Bootcamp) 3. Ingunn Lúðvíksdóttir (CrossFit Sport)
Einstaklingsflokkur karla 39+ 1. Sigurjón Gunnsteinsson (CrossFit) 2. Birgir Skúlason (Bootcamp) 3. Þorkell Sigurgeirsson (CrossFit)
Einstaklingsflokkur kvenna 39+ 1. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll) 2. Ólafía Kvaran (Bootcamp) 3. Steinunn Linda Jónsdóttir (CrossFit Reykjavík)
1.sæti liða karla: Techno Vikings (Bootcamp) 1.sæti liða kvenna: Rx (CrossFit Reykjavík) 1.sæti liða karla 39+ : Djakkson Fæv (CrossFit Sport) 1.sæti liða kvenna 39+ : CrossFit Bombur (CrossFit Sport)
------------------------------------------------------
Sigurvegarar Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010:
Hraustasti karl Íslands: Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Bootcamp) Hraustasta kona Íslands: Ásta Ósk Stefánsdóttir (Bootcamp) Hraustasta kona Íslands 39+: Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll) Hraustasti karl Íslands 39+: Sigurjón Gunnsteinsson (CrossFit Reykjavík)
Hraustasta lið karla: BC Drumbar (Bootcamp) Hraustasta lið kvenna: Rx (CrossFit Reykjavík) Hraustasta lið karla 39+: 5 Tinda Goldmembers (Bootcamp) Hraustasta lið kvenna 39+: Dirty Nine (Lifsstíll)
------------------------------------------------------
Nánari upplýsingar úr 5x5 eru væntanlegar þar sem fjöldi hringja kemur fram hjá hverjum og einum keppanda.
Þeir sem kepptu eða voru viðstaddir keppnina, vinsamlegast gefið okkur endurgjöf hér til hægri :) |
|
|