Næsta mót




 

447days since
Næsta mót



Fréttir‎ > ‎

5x5 Áskorunin 2010

posted 28 Oct 2010 15:20 by Omar Omar Agustsson
Laugardaginn 30.október nk. fer fram fyrsta 5x5 Áskorunin, sem jafnframt er lokamót Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010.
Mótið fer fram í Vestmannaeyjum.  Um kvöldið verður svo veglegt lokahóf mótaraðarinnar haldið þar sem verðlaun verða afhent og erfiði ársins uppskorin með glæsibrag.

Skráningu er formlega lokið. Stefnir í frábæra keppni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á keppnisdag væntanlegt :)

Sendið okkur póst á threkmot@threkmot.is með skráningu!
Skráið fullt nafn, kennitölu, æfingastöð og nafn  á liði ef þú ert í liði. Staðfesting á skráningu er greiðsla í banka (sjá verð á threkmot.is): kt.450210-2770, banki 115-05-060705. Sendið vinsamlegast rafræna kvittun á threkmot@threkmot.is.

Einstaklings: 3.000 kr
Parakeppni: 4.000 kr
Lið (5 manns): 10.000 kr (ATH. Greiðsla frá einum aðila innan liðs)



5x5 Áskorunin
Keppnin skiptist í 5 "box" (hólf) sem hvert um sig einkennist af æfingastöð/stíl. Framkvæmt er æfingu í hverju box í 4 mínútur, þá er klukkan stöðvuð og keppandi fær 1 mínútu til að ganga frá tækjum og tólum og koma sér svo fyrir í næsta boxi þar sem sama fyrirkomulag gildir.  Stig eru gefin fyrir hvert box og gildir heildarfjöldi stiga úr öllum 5 boxum.

Í öllum hólfum telur að fara eins marga hringi af æfingum og hægt er á 4 mínútum. Stig eru gefin fyrir hvert hólf og heildar stigatalan gildir.

Liðakeppni
Í liðakeppni framkvæma tveir liðsmenn æfingar í hverju boxi, allir liðsmenn taka því þátt í tveimur boxum, valið er frjálst.  Í öllum lotum nema síðustu framkvæmir fyrri aðilinn æfingarnar í 2 mínútur og þá tekur seinni aðilinn við í þeirri endurtekningu sem komið var upp í. Í síðasta boxinu rær annar aðilinn en hinn gerir hnébeygjurnar strax að róðri loknum og þar til tími er liðinn.

Parakeppni
Í parakeppni er sama fyrirkomulag og í liðakeppni, þ.e. 2 mínútur í hverju boxi og svo skipt, og annar aðilinn róir en hinn tekur hnébeygjurnar.
 
Keppt verður í 39+ flokkum í einstaklings- og liðakeppni beggja kynja.

BÚNINGAKEPPNI!!
Í tilefni af Hrekkjavöku þessa síðustu helgi október verða gefin verðlaun fyrir bestu búningana í ÖLLUM flokkum.

Stigagjöf
Hver hringur og hver endurtekning telur. Hver endurtekning umfram heilan hring telur sem hlutfall af heildarendurtekningum í hverju boxi fyrir sig.

Stig fyrir hring í hverju boxi:
#1 (Lífsstíll) - 30
#2 (KettleBells Iceland) - 25
#3 (Bootcamp) - 35
#4 (CrossFit Reykjavik) - 10
#5 (CrossFit Sport) - 13 (hnébeygjur)

Dæmi:
Lífsstíll (30 endurtekningar) : jón náði að klára 3 hringi og 10 spretti og 3 bekkjarhopp, þá fær hann 3 stig + (13/30)0,43 = 3,43 stig
KB (25 endurtekningar): Jón náði að klára 2 hringi og 10 snatch, 10 sveiflur og 3 deck squat, þá fær hann 2 stig + (23/25)0,92 = 2,92 stig
Bootcamp (35 endurtekningar, hverjir 5m í hlaupi eru 1 endurtekning): J tók 3 hringi, 10 arm, 15 froska og hljóp 25m, þá 3 stig + (30/35)0,86 = 3,86 stig
Crossfit (10 endurtekningar) J tók 3 hringi og 5 lyftur og 4 burpes, þá 3 stig +(9/10)0,9 = 3,9 stig
Crossfit (13 hnébeygjur = hringur) Jón smókaði þessa æfingu og náði 55 hnébeygjum og fékk 4 stig + (3/13)0,23 = 4,23 stig

Heild = 3,43 + 2,92 + 3,86 + 3,9 + 4,23 = 18,34 hringi eða stig



BOX#1 (Lífsstíll):
10x 6m sprettir (snerta línu með hendi á báðum endum)
10x bekkjahopp (halda við bekk, hoppa yfir og til baka, hvert hopp yfir og til baka telur og því eru þetta alls 20x stök hopp í umferð)
10x uppsetur (snerta verður eyrun allan tíman og olnbogar eiga að snerta læri efst við hné

BOX#2 (Kettlebells Iceland):
[kk: 20kg bjalla, kvk: 12kg]

10x einnar handar snörun (frjáls skipting milli h & v,  
handleggur þarf að vera lóðréttur í efstu stöðu og nema við eyru. Lausa hendin má ekki styðja við líkamann
)
10x sveiflur ( Handleggur beinn, miðja bjöllu nokkurn vegin í nef-hæð)
5x Decksquats (Með ketilbjölluna í höndunum við brjósthæð, er komið niður í djúpa hnébeygju, lagst afturábak og í liggjandi stöðu fer bjalla upp fyrir höfuð um leið og mjöðmum er lyft og fætur eru í gólfi. Svo er komið tilbaka í hnébeygjustöðu og staðið upp, án þess að nota hendur til að stjaka sér. Rétta þarf alveg úr mjöðmum í standandi stöðu.)
Sjá video af greininni hér

BOX#3 (Boot Camp):
10x  armbeygjur (Bringa verður að snerta rofa í neðstu stöðu, karlar gera dýpri armbeygjur hendur á sandpokum)
15x  froskar (

Byrjað er í armbeygjustöðu með beinan líkama. Hoppað er jafnfætis fram svo hné snerti olnboga. Beygja þarf hnén vel í fremstu stöðu svo að rassinn sígi niður að hælum. Rass þarf að fara niður fyrir axlahæð. Þá er hoppað aftur jafnfætis út í armbeygjustöðu, svo niður fyrir axlahæð. Þá er hoppað aftur jafnfætis út í armbeygjustöðu svo líkaminn sé beinn frá öxlum niður að hælum).


Sandpokahlaup: kk með 2x15kg sandpoka, kvk með 1x15kg sandpoka, 50 metra.

BOX#4 (CrossFit Reykjavík):
[kk: 40kg stöng, kvk: 25kg]

5x jörð-til-yfirhöfuð (frjáls aðferð, bannað að henda frá sér þyngdinni, gagnaugu sjást framfyrir hendur í efstu stöðu)
5x burpees (kassi og læri snerta í neðstu stöðu, rétta úr líkamanum í efstu stöðu og klappa fyrir ofan haus í hoppi)

BOX#5 (CrossFit Sport):
kk: 800m róðurkvk: 650m róður
Hnébeygjur þar til 4 mínútur klárast (Fjöldi hnébeygja telja bara stigin, ekki róðurinn. Nári niður fyrir 90° í neðstu stöðu)
 
 
Laus gistipláss:

 ABCDEF
1GistingsímiVerðfjöldilaust 
Hótel Eyjar8958350400040víbúðir
3Hvíld8989673350025vrúm
4Heimir8466500400030vrúm
5Árný8992582400050vrúm
6Hreiðrið6998945300024vrúm
7Gistihús kirkjuvegi 2886440208000-1100016víbúð
8Gistihús Bárustíg 68921304310015-20víbúð
9Íbúðargisting, Kirkjuvegi 10a4811568/8919641?   
10Smáhýsi4811109/6952309?   
11Eyjabústaðir8642064/4811664?   
12   185  
ATH. Skemmtilegast er ef hver og ein stöð hópar sig saman á gistiheimilin (þó eru engar kvaðir um slíkt).

Bannað verður að nota "kalk" á keppninni, þó er leyft að nota fljótandi gripgel líkt og Dry Hands.

Ferðir með Herjólfi eru á venjulegu verði. Hægt er að fá afsláttarkort í ferjuna ef menn hópast saman um kaupin eða fá sína stöð til að gera það.

Nánar um stigagjöf fyrir hvert box kemur inn fljótlega - byrjið endilega undirbúninginn sem fyrst því hér er um mjög taktíska keppni að ræða.