Nú hefur skráningu lokið á fyrstu 5x5 Áskorunina og jafnframt síðasta mót Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010. Þátttakan er vægast sagt frábær og ljóst að mikil eftirvænting er fyrir þessari nýju keppni. Dagskrá keppninnar og tími ráshópa má finna HÉR Keppandalista má finna HÉR ATHUGIÐ!!! FUNDUR FYRIR KEPPNI ER STUNDVÍSLEGA KL.9:00 (látið berast, röng tímasetning var gefin upp áður) Dagskrá keppninnar: kl.09:00 - Fundur með dómurum kl.10:00 - Einstaklingskeppni KK kl.11:15 - Einstaklingskeppni KVK kl.12:30 - Parakeppni kl.13:30 - Liðakeppni KK kl.14:00 - Liðakeppni KVK kl.15:00 - Móti formlega lokið Lokahóf Intersport Þrekmótaraðarinnar kl.19:00 - Húsið opnar fyrir veislugesti (forsala miða, 4.000kr) kl.20:00 - Verðlaunaafhending 5x5 Áskorunarinnar kl.21:30 - Verðlaunaafhending Intersport Þrekmótaraðarinnar kl.23:30 - Húsið opnar fyrir dansleik (1.500kr) Sjáumst í feiknarstuði í Vestmannaeyjum !!! Keppendur bera ábyrgð á að vera tilbúnir þegar kemur að þeirra rástíma. Það verður ræst inn í brautina á 5 mín fresti, þ.a. þeir keppendur sem mæta 3 mín of seint missa einfaldlega þann tíma úr 1. boxi. Það verður ekki hægt að hliðra til rásröð. Fínt að þetta komi fram á vefsíðunni þ.a. það sé alveg á hreinu hjá öllum. |

