Næsta mót




 

447days since
Næsta mót



Fréttir


Úrslit 5x5 og Þrekmótaraðarinnar 2010

posted 27 Nov 2010 06:57 by Omar Omar Agustsson


Intersport Þrekmótaröðinni 2010 er nú formlega lokið, en nú um helgina fór fram síðasta mót ársins, 5x5 Áskorunin, í Vestmannaeyjum.

Keppnin gekk einstaklega vel og átökin voru gríðarleg í öllum flokkum. Allar aðildarstöðvar mótsins stóðu saman sem ein og liðsheildin var til algerrar fyrirmyndar. Eftirvæntingin fyrir mótaröð næsta árs er strax farin að byggjast upp. Næsta mót er annars Lífsstílsmeistarinn í mars 2011.



Helstu úrslit úr 5x5 Áskoruninni:

Einstaklingsflokkur karla - opinn flokkur:
1. Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Bootcamp)
2. Ómar Ómar Ágústsson (Bootcamp)
3. Daði Hrafn Sveinbjarnarson (Bootcamp)

Einstaklingsflokkur kvenna - opinn flokkur:
1. Annie Mist Þórisdóttir (CrossFit BC / Bootcamp)
2. Ásta Ósk Stefánsdóttir (Bootcamp)
3. Ingunn Lúðvíksdóttir (CrossFit Sport)

Einstaklingsflokkur karla 39+
1. Sigurjón Gunnsteinsson (CrossFit)
2. Birgir Skúlason (Bootcamp)
3. Þorkell Sigurgeirsson (CrossFit)

Einstaklingsflokkur kvenna 39+
1. Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll)
2. Ólafía Kvaran (Bootcamp)
3. Steinunn Linda Jónsdóttir (CrossFit Reykjavík)

1.sæti liða karla: Techno Vikings (Bootcamp)
1.sæti liða kvenna: Rx (CrossFit Reykjavík)
1.sæti liða karla 39+ : Djakkson Fæv (CrossFit Sport)
1.sæti liða kvenna 39+ : CrossFit Bombur (CrossFit Sport)

------------------------------------------------------

Sigurvegarar Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010:

Hraustasti karl Íslands: Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Bootcamp)
Hraustasta kona Íslands: Ásta Ósk Stefánsdóttir (Bootcamp)
Hraustasta kona Íslands 39+: Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll)
Hraustasti karl Íslands 39+: Sigurjón Gunnsteinsson (CrossFit Reykjavík)

Hraustasta lið karla: BC Drumbar (Bootcamp)
Hraustasta lið kvenna: Rx (CrossFit Reykjavík)
Hraustasta lið karla 39+: 5 Tinda Goldmembers (Bootcamp)
Hraustasta lið kvenna 39+: Dirty Nine (Lifsstíll)

------------------------------------------------------

Nánari upplýsingar úr 5x5 eru væntanlegar þar sem fjöldi hringja kemur fram hjá hverjum og einum keppanda.

Þeir sem kepptu eða voru viðstaddir keppnina, vinsamlegast gefið okkur endurgjöf hér til hægri :)

5x5 Áskorunin - Dagskrá móts

posted 30 Oct 2010 06:07 by Omar Omar Agustsson

Nú hefur skráningu lokið á fyrstu 5x5 Áskorunina og jafnframt síðasta mót Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010. Þátttakan er vægast sagt frábær og ljóst að mikil eftirvænting er fyrir þessari nýju keppni.

Dagskrá keppninnar og tími ráshópa má finna HÉR
Keppandalista má finna HÉR


ATHUGIÐ!!!
FUNDUR FYRIR KEPPNI ER STUNDVÍSLEGA KL.9:00
(látið berast, röng tímasetning var gefin upp áður)

Dagskrá keppninnar:
kl.09:00 - Fundur með dómurum
kl.10:00 - Einstaklingskeppni KK
kl.11:15 - Einstaklingskeppni KVK
kl.12:30 - Parakeppni
kl.13:30 - Liðakeppni KK
kl.14:00 - Liðakeppni KVK
kl.15:00 - Móti formlega lokið

Lokahóf Intersport Þrekmótaraðarinnar
kl.19:00 - Húsið opnar fyrir veislugesti (forsala miða, 4.000kr)
kl.20:00 - Verðlaunaafhending 5x5 Áskorunarinnar
kl.21:30 - Verðlaunaafhending Intersport Þrekmótaraðarinnar
kl.23:30 - Húsið opnar fyrir dansleik (1.500kr)

Sjáumst í feiknarstuði í Vestmannaeyjum !!!

Keppendur bera ábyrgð á að vera tilbúnir þegar kemur að þeirra rástíma. 
Það verður ræst inn í brautina á 5 mín fresti, þ.a. þeir keppendur sem mæta 3 mín of seint missa einfaldlega þann tíma úr 1. boxi. Það verður ekki hægt að hliðra til rásröð. Fínt að þetta komi fram á vefsíðunni þ.a. það sé alveg á hreinu hjá öllum. 

5x5 Áskorunin 2010

posted 28 Oct 2010 15:20 by Omar Omar Agustsson

Laugardaginn 30.október nk. fer fram fyrsta 5x5 Áskorunin, sem jafnframt er lokamót Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010.
Mótið fer fram í Vestmannaeyjum.  Um kvöldið verður svo veglegt lokahóf mótaraðarinnar haldið þar sem verðlaun verða afhent og erfiði ársins uppskorin með glæsibrag.

Skráningu er formlega lokið. Stefnir í frábæra keppni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulag á keppnisdag væntanlegt :)

Sendið okkur póst á threkmot@threkmot.is með skráningu!
Skráið fullt nafn, kennitölu, æfingastöð og nafn  á liði ef þú ert í liði. Staðfesting á skráningu er greiðsla í banka (sjá verð á threkmot.is): kt.450210-2770, banki 115-05-060705. Sendið vinsamlegast rafræna kvittun á threkmot@threkmot.is.

Einstaklings: 3.000 kr
Parakeppni: 4.000 kr
Lið (5 manns): 10.000 kr (ATH. Greiðsla frá einum aðila innan liðs)



5x5 Áskorunin
Keppnin skiptist í 5 "box" (hólf) sem hvert um sig einkennist af æfingastöð/stíl. Framkvæmt er æfingu í hverju box í 4 mínútur, þá er klukkan stöðvuð og keppandi fær 1 mínútu til að ganga frá tækjum og tólum og koma sér svo fyrir í næsta boxi þar sem sama fyrirkomulag gildir.  Stig eru gefin fyrir hvert box og gildir heildarfjöldi stiga úr öllum 5 boxum.

Í öllum hólfum telur að fara eins marga hringi af æfingum og hægt er á 4 mínútum. Stig eru gefin fyrir hvert hólf og heildar stigatalan gildir.

Liðakeppni
Í liðakeppni framkvæma tveir liðsmenn æfingar í hverju boxi, allir liðsmenn taka því þátt í tveimur boxum, valið er frjálst.  Í öllum lotum nema síðustu framkvæmir fyrri aðilinn æfingarnar í 2 mínútur og þá tekur seinni aðilinn við í þeirri endurtekningu sem komið var upp í. Í síðasta boxinu rær annar aðilinn en hinn gerir hnébeygjurnar strax að róðri loknum og þar til tími er liðinn.

Parakeppni
Í parakeppni er sama fyrirkomulag og í liðakeppni, þ.e. 2 mínútur í hverju boxi og svo skipt, og annar aðilinn róir en hinn tekur hnébeygjurnar.
 
Keppt verður í 39+ flokkum í einstaklings- og liðakeppni beggja kynja.

BÚNINGAKEPPNI!!
Í tilefni af Hrekkjavöku þessa síðustu helgi október verða gefin verðlaun fyrir bestu búningana í ÖLLUM flokkum.

Stigagjöf
Hver hringur og hver endurtekning telur. Hver endurtekning umfram heilan hring telur sem hlutfall af heildarendurtekningum í hverju boxi fyrir sig.

Stig fyrir hring í hverju boxi:
#1 (Lífsstíll) - 30
#2 (KettleBells Iceland) - 25
#3 (Bootcamp) - 35
#4 (CrossFit Reykjavik) - 10
#5 (CrossFit Sport) - 13 (hnébeygjur)

Dæmi:
Lífsstíll (30 endurtekningar) : jón náði að klára 3 hringi og 10 spretti og 3 bekkjarhopp, þá fær hann 3 stig + (13/30)0,43 = 3,43 stig
KB (25 endurtekningar): Jón náði að klára 2 hringi og 10 snatch, 10 sveiflur og 3 deck squat, þá fær hann 2 stig + (23/25)0,92 = 2,92 stig
Bootcamp (35 endurtekningar, hverjir 5m í hlaupi eru 1 endurtekning): J tók 3 hringi, 10 arm, 15 froska og hljóp 25m, þá 3 stig + (30/35)0,86 = 3,86 stig
Crossfit (10 endurtekningar) J tók 3 hringi og 5 lyftur og 4 burpes, þá 3 stig +(9/10)0,9 = 3,9 stig
Crossfit (13 hnébeygjur = hringur) Jón smókaði þessa æfingu og náði 55 hnébeygjum og fékk 4 stig + (3/13)0,23 = 4,23 stig

Heild = 3,43 + 2,92 + 3,86 + 3,9 + 4,23 = 18,34 hringi eða stig



BOX#1 (Lífsstíll):
10x 6m sprettir (snerta línu með hendi á báðum endum)
10x bekkjahopp (halda við bekk, hoppa yfir og til baka, hvert hopp yfir og til baka telur og því eru þetta alls 20x stök hopp í umferð)
10x uppsetur (snerta verður eyrun allan tíman og olnbogar eiga að snerta læri efst við hné

BOX#2 (Kettlebells Iceland):
[kk: 20kg bjalla, kvk: 12kg]

10x einnar handar snörun (frjáls skipting milli h & v,  
handleggur þarf að vera lóðréttur í efstu stöðu og nema við eyru. Lausa hendin má ekki styðja við líkamann
)
10x sveiflur ( Handleggur beinn, miðja bjöllu nokkurn vegin í nef-hæð)
5x Decksquats (Með ketilbjölluna í höndunum við brjósthæð, er komið niður í djúpa hnébeygju, lagst afturábak og í liggjandi stöðu fer bjalla upp fyrir höfuð um leið og mjöðmum er lyft og fætur eru í gólfi. Svo er komið tilbaka í hnébeygjustöðu og staðið upp, án þess að nota hendur til að stjaka sér. Rétta þarf alveg úr mjöðmum í standandi stöðu.)
Sjá video af greininni hér

BOX#3 (Boot Camp):
10x  armbeygjur (Bringa verður að snerta rofa í neðstu stöðu, karlar gera dýpri armbeygjur hendur á sandpokum)
15x  froskar (

Byrjað er í armbeygjustöðu með beinan líkama. Hoppað er jafnfætis fram svo hné snerti olnboga. Beygja þarf hnén vel í fremstu stöðu svo að rassinn sígi niður að hælum. Rass þarf að fara niður fyrir axlahæð. Þá er hoppað aftur jafnfætis út í armbeygjustöðu, svo niður fyrir axlahæð. Þá er hoppað aftur jafnfætis út í armbeygjustöðu svo líkaminn sé beinn frá öxlum niður að hælum).


Sandpokahlaup: kk með 2x15kg sandpoka, kvk með 1x15kg sandpoka, 50 metra.

BOX#4 (CrossFit Reykjavík):
[kk: 40kg stöng, kvk: 25kg]

5x jörð-til-yfirhöfuð (frjáls aðferð, bannað að henda frá sér þyngdinni, gagnaugu sjást framfyrir hendur í efstu stöðu)
5x burpees (kassi og læri snerta í neðstu stöðu, rétta úr líkamanum í efstu stöðu og klappa fyrir ofan haus í hoppi)

BOX#5 (CrossFit Sport):
kk: 800m róðurkvk: 650m róður
Hnébeygjur þar til 4 mínútur klárast (Fjöldi hnébeygja telja bara stigin, ekki róðurinn. Nári niður fyrir 90° í neðstu stöðu)
 
 
Laus gistipláss:

 ABCDEF
1GistingsímiVerðfjöldilaust 
Hótel Eyjar8958350400040víbúðir
3Hvíld8989673350025vrúm
4Heimir8466500400030vrúm
5Árný8992582400050vrúm
6Hreiðrið6998945300024vrúm
7Gistihús kirkjuvegi 2886440208000-1100016víbúð
8Gistihús Bárustíg 68921304310015-20víbúð
9Íbúðargisting, Kirkjuvegi 10a4811568/8919641?   
10Smáhýsi4811109/6952309?   
11Eyjabústaðir8642064/4811664?   
12   185  
ATH. Skemmtilegast er ef hver og ein stöð hópar sig saman á gistiheimilin (þó eru engar kvaðir um slíkt).

Bannað verður að nota "kalk" á keppninni, þó er leyft að nota fljótandi gripgel líkt og Dry Hands.

Ferðir með Herjólfi eru á venjulegu verði. Hægt er að fá afsláttarkort í ferjuna ef menn hópast saman um kaupin eða fá sína stöð til að gera það.

Nánar um stigagjöf fyrir hvert box kemur inn fljótlega - byrjið endilega undirbúninginn sem fyrst því hér er um mjög taktíska keppni að ræða.

Lokahóf Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010

posted 19 Oct 2010 07:56 by Omar Omar Agustsson   [ updated 19 Oct 2010 15:21 ]

Staður: Höllin - Vestmannaeyjum
Tími: kl. 19:00 > matur hefst kl.20:00
Verð: 4.000

Miðarnir fást hjá:
Bootcamp - CrossFit Sport - CrossFit Reykjavík - Lífsstíl Keflavík - Kettlebells Iceland
Hafið samband við einhverja þessara stöðva til að tryggja ykkur miða, ATH takmarkaður miðafjöldi.

Ef þú kemur ekki í matinn:
Verð: 1.500 kr
Opnar kl: 00:00
Staðgreitt í reiðufé við inngang (ekki kort)

Verðlaunaafhending fyrir mótaröðina:
Hraustasti maður Íslands
Hraustasta kona Íslands
Hraustustu lið Íslands
ÓGLEYMANLEG SKEMMTUN FRAM Á NÓTT!!

Aðalréttur:
Beikonraspaðar kjúklingabringur, fylltar með sinnepsosti, ferskt salat, parmesan krydduð hrísgrjón og sinnepssósa
Eftirréttur:
Frönsk súkkulaðikaka, hvítsúkkulaðiís og ávaxtasalsa.
 *þeir sem éta ekki kjúlla, látið okkur sérstaklega vita með pósti á threkmot@threkmot.is

Næsta mót, 5x5 áskorunin, 30.okt

posted 15 Sep 2010 16:20 by Omar Omar Agustsson

Nú er komið að síðasta og eflaust mest spennandi móti Intersport Þrekmótaraðarinnar 2010, en það er "5x5 Áskorunin" og mun fara fram í Vestmannaeyjum 30.október nk.
 
Uppbygging keppninnar er að öllu leiti ólík öllum fyrri mótum nema flokkarnir verða þeir sömu. Sama kvöld verður svo lokahóf mótaraðarinnar haldið með mjög svo veglegum hætti og enginn ætti að láta það framhjá sér fara.
 
Keppnisgjöld verða þau sömu og venjulega og tilboð verður á gistingu.
 
Nánari upplýsingar um fyrirkomulag og keppnisgreinar væntanlegt, takið daginn frá !!

Boot Camp Keppnin 2010 - helstu úrslit

posted 8 Sep 2010 01:37 by Omar Omar Agustsson

Helstu úrslit eru:

Karlar - opinn flokkur:
1.sæti: Sveinbjörn Sveinbjörnsson (Boot Camp)
2.sæti: Elvar Þór Karlsson (Boot Camp)
3.sæti: Arnar Sigurðsson (Boot Camp)

Karlar 39+:
1.sæti: Sigurjón Gunnsteinsson (CrossFit Reykjavík)
2.sæti: Þorkell Sigurgeirsson (Boot Camp)
3.sæti: Birgir Skúlason (Boot Camp)

Konur - opinn flokkur:
1.sæti: Ásta Ósk Stefánsdóttir
2.sæti: Helga Torfadóttir (CrossFit Reykjavík)
3.sæti: Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll)

Konur 39+:
1.sæti: Kristjana Hildur Gunnarsdóttir (Lífsstíll)
2.sæti: Steinunn Linda Jónsdóttir (CrossFit Reykjavík)
3.sæti: Ólafía Kvaran (Boot Camp)

Liðakeppni karla:
1.sæti: BC Drumbar (Boot Camp)
2.sæti: Megaliðið (Boot Camp)
3.sæti: Black Box (CrossFit Reykjavík)

Liðakeppni karla 39+:
1.sæti: Expendables (CrossFit Reykjavík)
2.sæti: 5 Tinda Goldmembers (Boot Camp)

Liðakeppni kvenna:
1.sæti: Rx (CrossFit Reykjavík)
2.sæti: BC Wonder (Boot Camp)
3.sæti: 5 Fræknar (Lífsstíll)

Parakeppni:
1.sæti: Gunnar og Essý (Boot Camp)
2.sæti: Ívar Ísak og Hrönn (CrossFit Reykjavík)
3.sæti: Brynja og Bjarni (Kettlebells Iceland)

Bootcamp Keppnin - 28.ágúst

posted 3 Sep 2010 13:08 by Omar Omar Agustsson

Önnur árlega Boot Camp Keppnin verður haldin hátíðleg í Mosfellsbæ laugardaginn 28.ágúst

Hægt er að sjá keppnisflokkana og uppbyggingu keppninnar með því að smella hér.

Smelltu á viðeigandi tengla til að nálgast frekari upplýsingar um þennan viðburð:

KEPPNIN
KEPPNISGREINAR
UPPLÝSINGAR
SKRÁNING

Úrslit CrossFit Leikanna 2010

posted 4 Aug 2010 03:27 by Omar Omar Agustsson

CrossFit leikarnir 2010 fóru fram í blíðskaparveðri á heimasvæði CrossFit Sport í Kópavoginum, laugardaginn 5.júní.  Vegna öskumengunar var ákveðið að flytja keppnina frá Elliðárdalnum og var fyrirkomulagi keppninnar einnig breytt eftir aðstæðum.  Keppnin tókst gríðarlega vel, enda gott skipulag, mikið keppnisskap og góð stemmning á svæðinu.


Tafla með úrslitum og uppfærð stigatafla kemur síðar á threkmot.is

Næsta mót: BootCamp Keppnin, 28.ágúst í Mosfellsbæ

CrossFit leikar 5.júní - keppnisgreinar

posted 20 Jun 2010 04:51 by Omar Omar Agustsson   [ updated 20 Jun 2010 04:52 ]


Eftir vandlega íhugun hafa aðstanendur CrossFit leikanna 2010 ákveðið að gera grundvallarbreytingar á para- og liðakeppni leikanna. Það er von okkar að þessum breytingum verði vel tekið, enda teljum við þær gera keppnina fjölbreyttari, skemmtilegri og meira spennandi fyrir áhorfendur, fjölmiðla og, ekki síst, keppendur sjálfa. Að neðan eru einnig upplýsingar um þátttökugjöld, skráningu og frest til að skrá sig til keppni.

*Einstaklingskeppni (óbreytt)
*/WOD1
/AMRAP 12 (fjöldi umferða á 12 mínútum):
10 burpees
10 thrusters (60/40 kg)
35 tvöföld sipp

/WOD2
/Fimm umferðir á tíma af:
15 ketilbjöllusveiflur (32/24 kg)
15 Sumo deadlift high pull með ketilbjöllu (32/24 kg)
Brekkusprettur (frá brekkurótum í kringum ljósastaur uppi og niður aftur).

*Reglur: *Stig til einstaklingskeppni Þrekmótaraðar eru aðeins veitt fyrir keppni í meistaraflokki.
Keppni í sköluðum flokkum 1 og 2 fer fram með léttari þyngdum, sbr. frétt að neðan.
Keppt er í aldursflokki 39+.

Keppendur fá úthlutað stigum fyrir það sæti sem þeir lenda í í hvoru WODdi (1 stig fyrir 1. sæti o.s.frv.).
Sá keppandi sem hlýtur fæst stig eftir tvö WOD sigrar keppnina.
Verði tveir keppendur jafnir í WODdi fá þeir meðaltal þeirra stiga sem sæti þeirra segja til um.
Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir að keppni lokinni sigrar sá sem lenti í hærra sæti í WODdi.
Sé enn jafnt sker bráðabani úr um úrslitin.

*Parakeppni*
Keppnin hefst á því að annar aðilinn (kona eða karl) hleypur af keppnissvæðinu upp brekkuna, í kringum ljósastaur efst í brekkunni og beint niður aftur. Á meðan má hinn aðilinn gera burpees og fær parið 1 sek í frádrátt af heildartíma fyrir hvern burpees sem kláraður er áður en hlauparinn kemur til baka á keppnissvæðið. Þá taka við:

4 umferðir af
21 thruster (30/20 kg)
21 ketilbjöllusveiflur (24/16 kg)

Hér skiptast karlinn og konan á, hvort klárar heila umferð í einu. Pörin þurfa sjálf að skipta um lóð á stöngum.

Þegar thrusterum og ketilbjöllusveiflum er lokið hleypur sá sem hljóp ekki í upphafi brekkusprett, á meðan gerir hinn burpees og fær eina sekúndu í frádrátt fyrir hvern burpees sem kláraður er. Það lið sem er með minnstan heildartíma þegar tekið hefur verið tillit til fjölda burpeesa sigrar keppnina.

*Liðakeppni*
Liðakeppnin hefst á því að allir fimm liðsmenn hlaupa af keppnissvæði, upp brekkuna, í kringum ljósastaur efst í brekkunni og beint niður aftur. Þegar a.m.k. tveir liðsmenn eru komnir á keppnissvæðið mega þeir hefjast handa við eftirfarandi verkefni sem liðið leysir í sameiningu:

100 thrusterar (40 / 25 kg)
150 ketilbjöllusveiflur (24/16 kg)
200 Sumo deadlift high pull með ketilbjöllum (24/16 kg)
250 tvöföld sipp.

Að hámarki tveir liðsmenn mega vinna samtímis. Gera verður æfingarnar í ofangreindri röð (þ.e. ljúka verður thrusterum áður en tekið er til við ketilbjöllusveiflur o.s.frv.). Liðið hefur að öðru leyti algerlega frjálsar hendur um það hvernig það skiptir verkefninu á milli liðsmanna.

/Burpees á mínútunni: /Meðan á verkefninu stendur, alltaf á heilu mínútunni, þurfa allir liðsmenn að hætta því sem þeir eru að gera og taka 5 burpees í takt hver við annan. Ekki þarf að gera burpees meðan á brekkuspretti stendur.

Þegar liðið hefur lokið síðasta tvöfalda sippinu leggja liðsmenn af stað í seinni brekkusprettinn. Þegar síðasti liðsmaður skilar sér yfir marklínuna er klukkan stöðvuð. Það lið sem fer hraðast í gegnum þrautina sigrar.

*Keppnisgjald*
Einstaklingskeppni: 3.000 kr.
Parakeppni: 4.000 kr. fyrir hvert par.
Liðakeppni: 10.000 kr. fyrir hvert lið.

*Skráning*
Skráning fer fram með því að greiða þátttökugjöld inn á neðangreindan reikning OG senda kvittun á skraning@crossfitsport.is þar sem fram kemur nafn keppanda/pars/liðs og aldursflokkur. Dæmi: „Jólasveinar, 39+“. Skráningu lýkur á miðnætti þriðjudaginn 1. júní.

Reikningur: 115-05-060705
Kennitala: 450210-2770

Kvittun sendist á skraning@crossfitsport.is

*ATH! *Pör og lið þurfa að greiða þátttökugjald í einu lagi.
*ATH!* Þátttakendur í fleiri en einni keppni eru vinsamlegast beðnir um að notið sér innlögn fyrir hvern flokk sem þið takið þátt í. Dæmi: Þátttakandi í einstaklings- og parakeppni leggur tvisvar inn á reikninginn, annars vegar 3.000 kr með skýringunni „Evert Víglundsson, meistarafl..“, og hins vegar 4.000 kr með skýringunni „Evert og Rúrý“.

Heimasíða keppninnar: crossfitleikar.is

CrossFit leikar - 5.júní

posted 25 May 2010 01:51 by Omar Omar Agustsson

CrossFit leikar Intersport Þrekmótaraðarinnar fara fram í skíðabrekkunni í Elliðaárdal (Ártúnsbrekkan) þann 5. júní frá kl. 9-17. Keppt verður í einstaklings-, para og liðakeppni.

Í einstaklingskeppninni framkvæma keppendur tvö WOD. Samanlögð röð keppenda í WODdunum tveimur ræður úrslitum. Verði tveir keppendur efstir og jafnir í stigasæti ræður bráðabani úrslitum.
Í einstaklingskeppninni gefst kostur á að gera æfingarnar samkvæmt forskrift (Meistaraflokkur), eða með tvenns konar skölun (almenningsflokkur og byrjendaflokkur).

Í parakeppni keppa saman karl og kona, og í liðakeppni fimm manna lið.

Nákvæm lýsing á WODdum verður gefin upp rétt fyrir keppni, en hér að neðan er upplýst um þær æfingar sem notaðar verða, ásamt þyngdum.


Æfing

Mfl. (kk/kvk)

Alm. (kk/kvk)

Byrj. (kk/kvk)


Skalanir fyrir mfl, alm og byrj:

32/24, 24/16, 16/12 kg.

Thruster
60/40 kg
45/30 kg
35/20 kg

Ketilbjöllusveifla
32/24 kg
24/16 kg
16/12 kg

Tvöfalt sipp

Brekkuhlaup

Burpees

Sumo deadlift high pull
24/16 kg (pör og lið)

Fyrirkomulag skráningar og greiðslu kemur síðar

Tímasetning: Laugardagurinn 5. júní, frá 9 - 17.
Staðsetning: Skíðabrekkan í Elliðaárdal (Ártúnsbrekkan)

Heimasíða keppninnar: crossfitleikar.is

1-10 of 24