Næsta mót




 

447days since
Næsta mót



Um Þrekmótaröðina

Tilgangurinn

Tilgangur Þrekmótaraðarinnar er að beina íbúum landsins í farveg heilbrigðari lífsstíls með því að setja af stað röð íþróttamóta fyrir almenning. Þrekmótaröðin gefur spræku fólki á öllum aldri skemmtilegan vettvang til að setja sér markmið, æfa af krafti og etja kappi við aðra í skemmtilegum þrekkeppnum.

Mótaröðin samanstendur af fjórum ólíkum íþróttakeppnum sem eiga það sammerkt að reyna á ystu mörk þreks, styrks og þols keppenda.

Reglur Þrekmótaraðarinnar

Reglur Þrekmótaraðarinnar: 

Þrekmótaröðin samanstendur af fjórum sjálfstæðum mótum: 
- Lífsstílsmeistarinn (haldið af Lífsstíl í mars) 
- CrossFit leikar (haldið af CrossFitSport og CrossFit WorldClass í maí) 
- Boot Camp (haldið af Boot Camp í ágúst/september) 
- Keppni 4 - breytilegt milli ára. Auglýst þegar nær dregur (nóvember)

Aðstandendur hverrar keppni bera ábyrgð á framkvæmd keppninnar og því að hún lúti reglum Þrekmótaraðarinnar.

Stigagjöf

Keppendum og liðum er veitt stig fyrir árangur í hverju móti. 
Mótin hafa jafnt vægi og stigagjöf fyrir hvert mót verður sem hér segir: 

1.sæti 14 stig 
2.sæti 11 stig 
3.sæti 9 stig 
4.sæti 7 stig 
5.sæti 6 stig 
6.sæti 5 stig 
7.sæti 4 stig 
8.sæti 3 stig 
9.sæti 2 stig 
10.sæti 1 stig 

Heildarstigatala úr mótunum fjórum ræður stigaröð keppenda á mótaröðinni. Ekki þarf að taka þátt í öllum mótum mótaraðarinnar til að vera með.

Verði tveir keppendur jafnir í verðlaunasæti telst sá ofar sem varð oftar í 1. Sæti. Sé enn jafnt telst sá ofar sem oftar varð í 2. Sæti og svo koll af kolli. Verði ekki hægt að skera úr um röð með þessum hætti verður boðað til bráðabana milli þeirra sem jafnir eru. Bráðabaninn skal fara fram daginn sem lokahóf Þrekmótaraðarinnar fer fram og skal mótanefnd ákveða æfingar bráðabanans og staðsetningu hans. 


Dómgæsla

Stjórn Þrekmótaraðarinnar velur 1 aðila ár hvert til að stjórna þriggja manna yfirdómaranefnd sem ber ábyrgð á eftirliti með dómgæslu á öllum mótum. Dómnefnd þessari ber að fylgja tilmælum keppnishaldara hverju sinni og vinna í samstarfi við þá. Á mótum Þrekmótaraðarinnar ber dómaranefndinni að leggja sitt að mörkum til að jöfn og ströng dómgæsla sé á öllum mótum.

Aldursflokkar 

Keppt verður í tveimur aldursflokkum. 

- Flokkur 38 ára og yngri 
- Flokki 39 ára og eldri (fæðingarárið gildir)

Verðlaunapeningar eru veittir fyrir efstu þjú sætin einstaklings og liða í undir 39 og 39+ í kk/kvk. Bikarsæti er gefið efstu þrjú heildarsætin í liða og einstaklings hvort sem keppendur eru undir eða yfir 39ára.


Liðakeppni 

- Hvert lið samanstendur af að hámarki 8 keppendum. 
- Aðeins 5 úr hverju liði taka þátt í hverri keppni. 
- Ef lið skráir færri en 8 keppendur til leiks fyrir fyrsta mót er liðinu heimilt er að bæta inn keppendum fyrir seinni mót, þó þannig að heildarfjöldi keppenda eins liðs fari ekki yfir 8 á tímabilinu og að þeir keppendur sem bætist í hópinn hafi ekki tekið þátt í mótum með öðrum liðum sem keppa í stigakeppni Þrekmótaraðarinnar það árið. 

Einstaklingur má ekki keppa fyrir fleiri en eitt lið sem tekur þátt í stigakeppni Þrekmótaraðarinnar, en einstaklingum er heimilt að keppa sem gestir í liðum sem ekki taka þátt í stigakeppni Þrekmótaraðarinnar. 


Skráningargjöld

Þátttökugjald í hvert mót er:

Einstaklingskeppni - 3.000 kr
Tvenndarkeppni - 4.000 á lið (2.000 á mann)
Liðakeppni - 10.000 kr. á lið (2.000 á mann)

Sama verð er í öll mót Þrekmótaraðarinnar.
(Tvenndarkeppni tilheyrir ekki stigakeppni Þrekmótaraðarinnar)

Skráningarskilmálar - Þrekmótaröðin 2010



4 einkunnarorð Þrekmótaraðarinnar:

ÞREK
afl - kraftur - þróttur - dugur - skapfesta - hugarstyrkur - kjarkur - hugrekki

STYRKUR
kraftur - afl - sterkur - öflugur til líkama og sálar

ÞOL
þrek - ending - þrautseigja - þolgæði - úthald

SNERPA
vaskleiki - röskleiki - sú hæfni tauga- og vöðvakerfis að yfirvinna mótstöðu með miklum samdráttarhraða