Forsíðan...   er hérna!


Flýtirinn: myndir

hér eru hlekkirnir...

 




Kíkjið í gestabókinak
Skrifið í gestabókina

2006-06/05

Sumarið komið, hitinn er kominn í um 20°. það erum komnar myndir á myndasíðuna

2006-03/05

Er enn að læra á þetta heimasíðudæmi, en er búinn að henda inn gestabók, þar sem þið getið kvittað, og sent kveðjur... 

2006-02/05

Eldri strákurinn búinn að vera veikur, í gær, og ég hélt honum þá heima í dag líka. Annars er sumarið að koma, það er verið að lofa yfir 20° á morgun, og frábærri helgi. Við erum að fara í sirkus á fimmtudaginn, og þá koma tengdó líka í heimsókn, ásamt föruneiti. Það eru nokkrar myndir af strákunum hérna...

2006-29/04

Ekki var nú gaman að sjá Chelsea taka Man. Utd. í kennslustund áðan, 3-0 endaði það og Chelsea meistarar aftur. En allaverga til hamingju. Annars er maður bara að gera klárt fyrir flutninga í sumar, og fyrir HM í fótbolta. Ég er búinn að gera smá excel skjal, þar sem hægt er að spá og stúdera aðeins... skjalið er hægt að nálgast hérna. Það þarf bara að fylla út gráu svæðin, og þá geturðu þéð hver mætir hverjum.

2006-28/04

Þá er búið að segja upp í vinnuni, og panta miða aðra leið til Færeyja í sumar. Vorið komið, (+10°) og Fifararnir byrjaðir að sparka úti. 

2006-26/04
Jæja, það er ekki mikið að frétta, nema kanski að það hrundi brú á mótorveginn, rétt hjá okkur, í gær. Brúin sem átti að vera tilbúin 15. júní, verður sennilegast ekki tilbúin á
tilsettum tíma. En án gríns, þá dó einn byggingaverktaki, og 7 á sjúkrahús, þar af 3 lagðir inn. Þannig að þetta hefði getað farið mikið verr, en það gerði. Ekki er vitað hvervegna brúin hrundi. Það er hægt að sjá myndir hérna og á myndasíðunni

2006-26/04
Ég er margoft búinn að lofa familíuni heima á klakanum að fara að gera heimasíðu, og það er þá gert.  Ég ætla að reyna að koma með smá fréttir af okkur, og svo legg ég einhverjar myndir af okkur út líka.

 

2006-26/4
Það er farið að styttast í færeyjaflutningana. 
Við byrjum sennilegast á að búa hérna

Sign in  |  Recent Site Activity  |  Terms  |  Report Abuse  |  Print page  |  Powered by Google Sites