rófu-uppskriftir

Hér má nálgast uppskriftir sem innihalda gulrófur.

Ef þið viljið koma ykkar uppskrift (sem inniheldur rófur)  hér inn sendið hana þá endilega á fjolasigny@gmail.com

Eftirfarandi er tekið af síðunni: http://www.islenskt.is/?pageid=43&uid=196

Rófur
Geymsla
 
Rófur þarf að geyma í kæli. Besti geymsluhiti er 0-2°C. Rófum er hætt við að tapa vökva, því er best að sveipa þær plastfilmu eða geyma þær í poka.
 
Notkun
 
Gulrófu má nýta á ýmsan hátt, bæði hráa og soðna. Hún er skorin í sneiðar eða teninga til að nota í súpur eða pottétti. Einnig er hún tilvalin til að rétta krökkum að narta í. Soðnar gulrófur eru bornar fram í sneiðum eða teningum sem meðlæti eða hafðar í rófustöppu með saltkjöti, saltfiski og sviðum, svo eitthvað sé nefnt. Þær eru líka góðar með lambasteik eða „roast beef“ – þykkar sneiðar eru penslaðar með feiti og látnar í fatið síðasta klukkutímann í steikingunni.
Hægt er að fríska upp á sneiðar af linum rófum með því að leggja þær í ísvatn í 30 mínútur. Eitthvað af vítamínum tapast þó við þetta.
 
Er hægt að fyrsta gulrófu?
 
Gulrófur eru fáanlegar allt árið, þannig að ekki verður séð að þörf sé á að frysta þær. Auk þess henta rófur ekki til frystingar eins og þær koma fyrir, en hægt er að frysta þær sem stöppu eða í teningum. Þó er nokkuð víst að árangurinn verður ekkert sérstakur, því þær verða vatnskenndar og bragðvondar eftir frystingu í samanburði við ferskar rófur.
 
Hvaða hluta er hægt að borða ?
 
Allt nema hýðið.

bakaðargulrófuroggulrætur.doc
View Download
bakaðar gulrófur og gulrætur  35k v. 1 4 Jul 2010 14:34 Fjóla Hannesdóttir
Bakaðursaltfiskur.doc
View Download
Bakaður saltfiskur  39k v. 1 4 Jul 2010 14:44 Fjóla Hannesdóttir
eplasalatárófubeði.doc
View Download
Eplasalat á rófubeði  32k v. 1 4 Jul 2010 14:32 Fjóla Hannesdóttir
gulrófusalat.doc
View Download
  27k v. 1 4 Jul 2010 13:40 Fjóla Hannesdóttir
Léttbaunasúpa.doc
View Download
Létt baunasúpa  36k v. 1 4 Jul 2010 14:42 Fjóla Hannesdóttir
saltkjötogbaunir.doc
View Download
saltkjöt og baunir  36k v. 1 4 Jul 2010 14:40 Fjóla Hannesdóttir