Þróun á rófnaræktinni

Rófnarækt hefur lengi verið stunduð á Íslandi og hefur Kálfafellsrófan verið hvað lengst í ræktun. Sá stofn kemur til ræktunar frá Kálf­a­f­elli í Fljóts­hverfi um miðja síðustu öld. Kálfafellsrófur hafa reynst mjög vel við íslenskar aðstæður. Sandvíkurrófur eiga upphaf sitt í Kálfa­fells­róf­unni með þeirri erfða­vísa­blöndun sem hún varð fyrir á árunum þegar hún var ræktuð til frætöku kyn­s­lóð fram af kyn­s­lóð í Danmörku. Fræræktun hennar hófst um 1970 og hefur erfða­breyti­leikinn verið nýttur til markviss úr­vals. Sand­víkur­rófan á í sam­keppni við norska yrkið Vige, en það hefur átt bróður­partinn af ís­lenskri rófna­ræktun undan­farin ár.  Frærækt af Sandvíkurrófu stuðlar að varðveislu rófnastofns sem hefur reynst vel í ræktun hér á landi enda kominn af gömlum íslenskum stofni og valin af rófum sem ræktaðar eru við íslenskar aðstæður. Sandvíkurrófur eru einnig eftirsóttar af neytendum.