Rófufræ

Rófufræ hefur verið ræktað í Stóru-Sandvík frá árinu 1970. 
Á þessum tíma hefur þróast nýr íslenskur stofn af rófum sem kallast sandvíkur-rófur.  Rófurnar þola vel frost á vorin, eru fljótsprottnar og bragðgóðar.

Við erum þau einu á Íslandi sem rækta fræ til sölu.

Fræið er nú flokkað í tvo flokka. Annarsvegar stærra fræ og svo hinsvegar smærra fræ. Munurinn á þessum tveimur flokkum er aðallega sá að stærra fræið er aðeins fljótsprottnara, það er að segja rófurnar verða aðeins fyrr fullvaxta. Aftur á móti fást fleiri fræ af smærri flokknum miða við sömu þyngd af stærriflokknum. 

Verðflokkarnir eru því tveir

Stærra fræið er á 60 þúsund kílóið. 

Smæra fræið er á 50 þúsund kílóið.

Í smásölu er er annað verð. Við miðumst við að sala frá 10gr. upp í 100gr sé smásala. Hvert gramm af smáa fræinu er á 85kr og af stærri flokknum á 100kr.  Fyrir venjulega heimaræktun duga sirka 10.gr af fræi og kostar þá 850kr smærra fræið og stærra fræið á 1000kr. 

Verðin eru án vsk. sem er 25,5%                                                                                                                                                    Mynd af frærófu í blóma. 

Mynd af uppskeru rófufræs 2010












     


Vöxtur frærófa í eldra gróðurhúsi sumarið 2010

Vöxtur frærófa í nýrra gróðurhúsi sumarið 2010