| BOBBY FISCHER PÓSTKORT OG FRÍMERKI sjá hér | Þessi heimasíða er fullnýtt (100%) meira kemst ekki á síðunna. Hef stofnað nýja og þ.a.l. þarft þú að flytja þig. (Smella hér) | BOBBY FISCHER PÓSTKORT OG FRÍMERKI sjá hér | ||||||||||
GM Robert Hess Aeroflot Open, Febrúar 2011 Hvítt: GM Jon Ludvik HAMMER (2647) Svart: GM Robert L. HESS (2572) (Úrslit og myndir hér) og Í Gallerý Skák 27.12. 2010 hér Kristján Stefánsson formaður frá 1999 Skák og veiðiferð KR-inga 24. - 26. sept. 2010 (sjá myndir hér) |
(Úrslit hér eldra) Gunnar Kr. Gunnarsson, "kóngurinn Lewis", Sigurður A. Herlufsen, Guðfinnur R. Kjartansson og Einar S. Einarsson.og (Hér) ÆSKAN OG ELLIN 2010 KR-ingar í þremur af fjórum efstu sætunum. (sjá nánar hér) Sjá nánar hér Viðeyjarskákmótið 2010. KR-ingar í fjórum efstu sætunum. (sjá nánar hér) ![]() Skákæfingar hjá KR fyrir börn og unglinga(Sjá nánar hér)Íslandsmót taflfélaga 2010-2011 Skák og veiðiferð 24. - 26. sept. 2010 (sjá myndir hér) Sölumaður með sjómannsblóð Já, eflaust er búsit við troðfullum áhorfendaskara
... :-)
Þegar frábær fjöldinn hér
flýtir sér á barinn
troðfullur þá eflaust er
áhorfendaskarinn.
K.H. Þessu er aðeins hægt að svara á einn máta: Áhorfendaskarinn
blindfullur þá eflaust er,
flýtir sér á barinn
þegar eff há flækist hér.
Hrannar Baldursson |
(Sjá nánar og myndir hér) Íslandsmót skákfélaga 2010-2011 KR-ingar kvöddu1. deildina með stórsigri á Haukum með 6½ -1½ SKÁK ANNÁLL 2010 hér Hrannar Baldursson okkar ágæti liðsmaður gerir það gott í Noregi sjá nánar hér. Einar S. Eiarsson skákstjóri 11.ágúst 2010 Skáksveit KR |
||||||||||
| Knattspyrnufélag Reykjavíkur (heimasíða hér) |
Myndir frá viðureignini (sjá hér) |
|||||||||||
| Barna- og unglingastarf Páskaeggjamót 2010 (sjá hér) |
Skákþrautir (meira hér) |
KR-ingar töpuðu naumlega... | ||||||||||
|
KR- ingar báru sigur af Garðbæingum (Úrslit og myndir hér) KR-ingurinn Hrannar endaði í 3. sæti
|
|
|
Úrvalið tapaði fyrir pressuliðinu
Berlínarferð 7. til 10 maí 2010 Ferðaáætlun og dagskrá (sjá nánar hér) |
|||||||||
FORMANNSPÓSTUR - BERLÍNARSLAGUR -
Frostaskjóli, 18. janúar 2010
Ágætu skákbræður
Í verkahring stjórnar er að hvetja ykkur til dugnaðar og hetjudáða á nýju ári.
Eins og ykkur er kunnugt hefur Skákdeildin á undanförnum árum staðið fyrir fræknum utanlands- og keppnisferðum og er nú í bígerð ein slík ferð til Berlínar að vori, nánar tiltekið þann 7.-10. maí nk.
Flogið verður utan með Express. Viðræður hafa staðið yfir að hálfu formanns ferðanefndar til að tryggja sem hagkvæmast verð og kjör. Flugferð er um 21.500 kr hvora leið og hótel mun láta nærri að kosta um 9.000 kr.á ferðalang pr. nótt.
Samist hefur um að mjög hagstætt heildarverð eða alls kr. 83.700 fyrir allan pakkann, þ.e. flug m.sk; gistingu m.mv, akstur til og frá flugvelli, kynnisferðir og ísl. fararstjórn.
Áform okkar eru að fara fyrir fríðum og harðsnúnum flokki og tefla á allt að 25 borðum við einn elsta og virtasta skákklúbb Berlínar, Kreuzberg Schack Club. Við treystum því og vitum að mikill áhugi er fyrir ferðinni og því eru menn hér með hvattir til þess að kynna sér vel meðf. ferðaáætlun og skrá sig sem fyrst hjá ESE til þátttöku. Góðvinir okkar og skákfélagar úr öðrum klúbbum eru einnig velkomnir.
Til að létta okkur róðurinn og hjálpa okkur að rata um refilstigu Berlínar hefur orðið að ráði að semja við (eitt sinn) unga snót, Lilju Hilmarsdóttur, sem aðalfararstjóra, en hún veit allt um borgina og söguna, sem þörf er á að vita og mikið meira til. Utan þess að lemja á þarlendum á hvítum reitum og svörtum mun ferðin í bland verða hin besta skemmti- og menningarreisa ef að líkum lætur, með hliðsjón af fyrri ferðum til Danamerkur og Skotlands og fleiri landa, þar sem við höfum jafnan haft sigur.
Þá vill stjórnin greina frá að áhugi er fyrir því hjá Taflfélagi Garðabæjar að tefla við liðsveit okkur á allt að 25 borðum í æfingarskyni og til yndisauka fyrir herförina miklu á hendur Þjóðverjum. Fyrirkomulag þeirrar skákkeppni á eftir að útfæra. Menn eru beðnir um hugmyndir og hvattir til þess vera með þegar þar að kemur og skrá sig sem fyrst til þátttöku í herferðina miklu til Þýðverjalands.
f.h. Stjórnar SD-KR
KSt – formaður (Forri der Fürer)
27.12.09 Ágætu vinir og skákfélagar. ese.
20.12.09 JÓLAKAPPTEFLI KR 2009 Jólamót Skákdeildar KR fór fram með pomp og prakt á mánudagskvöldið var (21.12.09). Afar góð og mikil jólastemmning var á mótstað og á þriðja tug þátttakenda. Kappteflinu lauk með glæsilegum sigri Siginga Sigurjónssonar, sem hlaut 12 vinninga af 13 mögulegum. Fast á hæla honum fylgdu gamalkunnar skákkempur, þeir Bragi Halldórsson með 11.5 v. og Gunnar Kr. Gunnarsson með 9.5. Allir þátttakendur voru leystir út með jólaglaðningi.Skákdeild KR: JÓLAKAPPTEFLI á vetrarsólstöðum
Skákkvöldin í KR hafa verið lífleg að venju í haust. Um 20 skákkempur eða fleiri etja þar vikulega kappi að jafnaði og hart tekist á, snertur maður hreyfður og ekkert gefið eftir. Mótin fara fram á mánudagskvöldum kl. 19.30 allan ársins hring, nema helgidagar hindri, þá frestast þau til þriðjudags. Telfdar eru 13 hraðskákir / 7 mín.
Á mánudagskvöldið kemur, 21. desember, á vetrarsólstöðum, verður haldið sérstakt hraðkapptefli með jólaívafi. Efstu menn kvöldsins verða leystir út með jólakonfekti og vinningahapprætti í gangi. Allir velkomnir.
Sigurvegarar undanfarið hafa verið þessir: Dr. Ingimar Jónsson; Vilhjálmur Guðjónsson (2); Jón G.
Friðjónsson (2); Gunnar Kr. Gunnarsson(2); Gunnar Skarphéðinsson; Jón
Torfason. Sigurður A. Herluvsen; Siguringi Sigurjónsson;
Ingimar Halldórsson, Guðfinnur R. Kjartansson; Stefán Þormar
Guðmundsson; Ingólfur Hjaltalín hafa fylgt þessum þekktu skákmönnum fast
eftir og Ólafur Gísli Jónsson; Kristinn Bjarnason; Jón Steinn Elíasson,
Páll G. Jónsson, sem og hirðskáldið Kristján Hreinsson að ógleymdum
formanninum Kristjáni Stefánssyni, hafa átt þar afar athyglisverða og góða
spretti.
Hrannar Baldursson (2110) sigraði Jathavan Suntharalingam (1944) í
sjöundu og síðustu
umferð meistaramóts Osló-skákklúbbsins sem fram fór í gær. Hrannar hlaut 3 vinninga og hafnaði í 9.-10. sæti Sigurvegari mótsins varð Nicolai Getz (2170) en hann hlaut...
Sæbjörn Guðfinnsson lagði alla andstæðinga sína á atkvöldi Hellis sem
fram fór 23. nóvember sl.
og sigraði með 6v. Annar varð Vigfús Ó. Vigfússon með 5v og jafnir í 3. og 4. sæti voru Magnús Sigurjónsson og Örn Stefánsson með 4v. Þátttakendur frá... |
|












