Þessi síða er full nýtt
vinsamlegast færðu þig á nýja smelltu hér BOBBY FISCHER PÓSTKORT OG FRÍMERKI sjá hér Einar S. Einarsson formaður Riddarans og Magnús V. Pétursson styrktaraðili mótsins ásamt snjöllustu í 12 ára og yngri VIII. STRANDBERGSMÓTIÐ Í SKÁK - ÆSKAN OG ELLIN 2011 Það var þröng á þingi á skákmótinu ÆSKAN OG ELLIN sem fram fór í gær í Hásölum Strandbergs, safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju á vegum RIDDARANS, skákklúbbs eldri borgara á Stór-Hafnarfjarðarsvæðinu, eins og þeir segja suður þar. Sjá nánar hérMiðsumarmótið 2011 (sjá hér) YouTube Video(Nánar hér) "Rammislagur" milli Riddarans og Æsa Magnús Gíslason teflir við Matthías Z. Kristinsson. Mynd frá æfingu sl. miðvikudag 16.03.11. Ágætu félagar og skákmenn sterkir. Eins og ykkur er kunnugt styttist mjög í hina árlegu sveitakeppni milli skákklúbba eldri borgara. "Rammislagur" milli Riddarans og Æsa, eins og ég leyfi mér að kalla keppnina fer fram í Ásgarði, félagsheimili FEB í Stangarhyl, á þriðjudaginn kemur kl. 13-16.30. Telfar verða 10 mín. hvatskákir í þrem 6-7 manna sveitum, allir við alla. Nú liggur mikið við. Væntum þess því fastlega að þið fylkið liði með okkur hinum. ese formaður. HEILABROT ERU HEILSUBÓT (Sjá hér(Sjá hér) TOYOTA-skákmót eldri borgara. 2011 (Fleiri myndir hér) (Úrslit hér) Snjallastur árið 2010 Úrslit og myndir hér Ástríðuskákmaður “par excellence” ! SKÁKHARPAN 2010 - ÚRSLIT Kappteflinu
um Skákhörpuna, sem nú var keppt um í þriðja sinn hjá Riddaranum, skákklúbbi eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu að Strandbergi, Hafnarfirði, lauk með glæsilegum sigri Guðfinns R. Kjartanssonar | DYGGUR SKÁKUNNANDI FALLINN FRÁ Fjölnir Stefánsson, tónskáld og fyrrv. skólastjóri er látinn 81 árs að aldri. ![]() KAPPTEFLIÐ UM SKÁKHÖRPUNA 2011- INGIMAR HALLDÓRSSON VANN Skák- og veiðiferð 2011 Sjá nánar hér KAPPTEFLIÐ UM SKÁKHÖRPUNA - fyrsta mót af fjórum - hófst í dag (5.10.11) hjá Ridduranum í Hafnarfirði. Sjá nánar hér Myndir hér úrslit hér Guðfinnur R. Kjartansson sigraði Jóla- og nýársmót Riddarans 2010 Myndir og úrslit hér ÆSKAN OG ELLIN Sjá nánar hér Sjá nánar hér Gunnar Kr. Gunnarsson, "Kóngurinn Lewis", Sigurður A. Herlufsen, Guðfinnur R. Kjartansson og Einar S. Einarsson. Viðeyjarskákmótið 2010 (Sjá nánar hér) | 25. jan. 2011 ÆSIR Hjá ÁSUM, Skákdeild Félags eldri borgara í Reykjavík, með aðsetur í Ásgarði félagsheimili þess við Stangarhyl, er haldin regluleg skákmót vikulega, eftir hádegi á þriðjudögum yfir vetrartímann. Nú eru þar tefldar 10 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma, en voru áður 7 umferðir á 15 mín. og þar áður 6 umferðir á 20 mín. Með fjölgun skáka hefur þátttaka aukist og keppnin orðið líflegri og skemmtilegri. Sumpart eru það sömu öldungarnir sem tefla þar og hjá Riddurunum í Hafnarfirði á miðvikudögum, en ákveðin kjarni teflir bara í öðrum klúbbnum. Góð þátttaka var Stangarhylnum í gær (þriðjudaginn 24. Jan.) eins og sjá má á meðf. mótstöflu, þar sem Þorsteinn Guðlaugsson gerði sér lítið fyrir og skaut öðrum ref fyrir rass ásamt Stefáni Þormar Guðmundssyni, með 8 v. af 11. Í þriðja sæti var svo gamla kempan Haraldur Axel Sveinbjörnsson, sem er jafnan meðal efstu manna. Framundan ( þ. 22. Febrúar) er árlegt kapptefli „Rammislagur“ milli þessara tveggja skákklúbba eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu á 18-20 borðum. Riddarinn vann í fyrra með 108v. gegn 92, en Æsir árið á undan með 56v. gegn 52v. Keppt er um veglegan farandbikar, sem gefinn er af Jóa Útherja. Sjá nánar hér Þór Valtýsson sigraði Kappteflið um Skákseglið 2010
GP-mótaröð til minningar um Grím heitinn Ársælsson, sem hefði orðið sjötugur þann 17.
nóvember nk. hefði hann lifað. Þátttakendur eru nær 30 talsins og hart barist
fyrir hverjum vinningi því lokastaðan í hverju móti gefur stig sem úrslitin
ráðast af. Fylgt er stífustu reglum FIDE, enda gamalreyndir skákmenn að tafli, | ||
|
|
|
|
||
| Sigurður Alfreð Herlufsen "Einna snjallastur 2009" (Myndir og frétt hér) |
Grímur Ársælsson |
Bakhjarlar skákstarfs eldriborgara |
||
| |
Skákþrautir (meira hér) |
|||
| Nýtt veffang gjöf frá Friðgeiri K. Hólm http://www.riddarinn.net |
Skák- og félagsstarf aldraðra RIDDARINN,
skákklúbbur eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, með aðsetri í Vonarhöfn,
Strandbergi, félagsheimili Hafnarfjarðarkirkju, stendur fyrir öflugri tafl- og
félagsstarfsemi allan ársins hring. Auk vikulegra skákfunda eru á dagskrá mörg
formleg skákmót þar af eitt með þátttöku bæði yngri sem eldri keppenda. Er þar
um að ræða Skákmótið ÆSKAN og ELLIN
í október ár hvert, þar sem hinir öldnu etja kappi gegn uppvaxandi æskufólki í
þeim tilgangi m.a. að brúa kynslóðabilið. Þar eru veitt bæði peninga- og
gjafaverðlaun í þremur aldursflokkum yngri jafnt sem eldri þátttakenda til að
örva þátttöku, efla metnað sérstaklega þeirra yngri sem og baráttuvilja allra keppenda.
Nú stendur auk þess fyrir dyrum að efna til sérstaks
VIÐEYJARSKÁKMÓTS
eldri borgara að undirlagi Sr. Gunnþórs Þ. Ingasonar, sérkirkjuprests á þjóðmenningarsviði, fyrrv. sóknarprests í Hafnarfirði, verndara klúbbsins, sem vænst er að geti orðið árlegur viðburður. Áformað er að mótið fari fram um miðjan október nk. með hjálp góðra stuðningsaðila svo hægt verði að standa að mótinu með myndarlegum hætti og veita þátttakendum góð verðlaun og beina. Ferjutollinn greiða þátttakendur hins vegar sjálfir og þar hefur Elding hf heitið afslætti. Því er nú leitað eftir vinveittum styrktaraðilum með bæði stærri og minni framlög sem vilja veita félags- og tómstundastarfi eldri borgara stuðning og efla góð tengsl og viðskipti við þá, nú og í framtíðinni. Önnur mót á dagskrá Riddarans í vetur:
Nöfn styrktaraðila verða að jafnaði höfð uppi á
vettvangi og birt á heimasíðu klúbbsins undir yfirskriftinni: “BAKHJARLAR ELDRI BORGARA” Framsett með fyrirfram þökk og virðingu, Riddarinn netfang: riddarinn@gmail.com Forsvarsmenn/stjórn: Einar S. Einarsson, formaður s. 690-2000 eseinarsson@gmail.com Guðfinnur R. Kjartansson, v.form., Eiríkur Viggósson, gjaldkeri; Sigurberg H. Elentinusson, ritari Össur Kristinsson, meðstj.
Kennitala: 690208-0670 Bankareikningur: 545-14-400398 (Íslandsbanki) Heimasíða: http://sites.google.com/site/riddarinnhafnarfjardharkirkju/adhalsidha-forsidhu-riddarinn---skakklubbur-eldriborgara (www.gallery.skak.net/ nettorg/riddarinn) Viðeyjarmóts að vori Fyrirhugað
er að
efna til “Viðeyjarmóts
að vori”, miðvikudaginn 26. maí nk. kl. 13-17 sem haldið er í samvinnu við Ása og er opið öllum skákmönnum 60 ára og eldri. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður og hluti af sumardagskrá eyjunnar. Mótið verður nánar kynnt þegar nær dregur. Sigurður A. Herlufsen, “einna snjallastur að jafnaði” Mikil gróska er í starfsemi Riddarans, skákklúbbs eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, með aðsetri að Strandbergi, félagsheimili Hafnarfjarðarkirkju, en þar er teflt alla miðvikudaga kl. 13-17, 11 umferðir með 10 mín. umhugsunartíma. Til marks um það má nefna að 29 öldungar mættu þar til tafls nú í vikunni í “Vonarhöfn”, í von um vinning, en svo heitir salurinn sem nú er telft í, helmingi stærri en “Oddi”, fundarstofan sem áður var notuð. Alls lögðu 57 skákmenn þangað leið sína á sl. ári, mismunandi oft eins og gengur, en Guðfinnur R. Kjartansson átti sóknarmetið, sótti staðinn 51 sinni af 52 mótum og hafði 392.5 vinninga upp úr krafsinu af 561 mögulegum, var með 7.7 v. að meðaltali af 11. Einna snjallastur yfir árið að jafnaði var þó Sigurður A. Herlufsen með 8.01 v. að vegnu meðaltali en hann tók þátt í 44 mótum; 3. Stefán Þ. Guðmundsson með 7.44 v. (44) ; 4. Össur Kristinsson með 6.89 v. (45); 5. Sigurður E. Kristjánsson með 6.47 v. (43); 6. Björn Víkingur Þórðarson með 6.32 v. (44) og 7. Páll G. Jónsson með 6.31 v. (49) o.s.frv. Meðaltalsárangur þessi er miðaður við þá sem tók þátt í 26 mótum eða fleiri, þ.e. helmingi þeirra móta sem haldin voru á árinu 2009, sem ákveðið hafði verð að leggja til grundvallar útnefningu skákmeistara klúbbsins. Fenginn hafði verið nýr verðlauna- og farandgripur í þessu sambandi, tréstyttan “Bjarni Riddari”, sem Sigurður fékk fyrstur manna nafn sitt skráð á gullnu letri og honum var afhentur með pomp og prakt á aðalfundi klúbbsins í gær af Einari S. Einarssyni, formanni, sem var endurkjörinn með lófaklappi. Með honum eru í stjórn: Guðfinnur R. Kjartansson, varaform.; Eiríkur Viggósson, gjaldkeri; Sigurberg H. Elentínusson og Össur Kristinsson, meðstj., Varamenn eru þeir: Bjarni Linnet og Sverrir Gunnarsson og endurskoðandi Gísli Gunnlaugsson. Á mótinu í gær var Jóhann Örn Sigurjónsson, hlutskarpastur með 8.5 v.; Þór Valtýsson var jafn honum að vinningum í 2. sæti og þriðji Sigurður E. Kristjánsson með 7.5.v. en hart er barist fyrir hverjum punkti og því hafa skákreglur nýlegar verið hertar til samræmis við reglur FIDE. Engin mildi né miskun þó um vináttuskákmót sé að ræða.
“RAMMISLAGUR” SVEITAKEPPNI ÖLDUNGA Í SKÁK 2010
Hin árlega sveitakeppni við Skákdeild FEB, Stangarhyl, fer fram í 10. sinn miðvikudaginn 17. mars nk. og hefst kl. 13. að Strandbergi, Hafnarfirði. Það er okkar Riddaranna að standa fyrir keppninni í þetta
sinn, sem verður haldin á okkar venjulega skákdegi í húsakynnum Hafnarfjarðarkirkju. Stefnt er að því að 20 skákmenn tefli fyrir hvort lið sem skipt verður í 2 sveitir, þar sem allir teflir við alla, því alls 10 skákir með 10 mín. umhugsunartíma. Samanlögð úrslit ráða. (í stað 3 sveita og 6 skáka áður) Í fyrra bar svo við að Riddararnir töpuðu eftir 5 ára sigurgöngu allt frá 2004, en all nokkur forföll urðu þá í okkar hópi og sum ófyrirsjáanleg. Framundar er því spennandi og skemmtileg keppni því reikna
má með að Æsir mæti með sitt allra sterkasta lið og að þeim hafi jafnvel vaxið ásmegin. Nú hefur þó verið gert samkomulag um að eingöngu þeir skákmenn sem hafa á æfingar þeirra undanfarið ár eða tekið þátt í meistaramóti FEB séu gjaldgengir . Með góðri þátttöku ykkar allra og einbeittum sigurvilja eigum
við "knapar" þó góða möguleika á því að ná vopnum okkar og landa sigri að nýju. Treyst er á að enginn láti sig vanta né sitt eftir liggja.
Svo keppnin geti hafist á réttum tima er áríðandi að allir mæti
tímanleg. Með baráttukveðjum.
Liðsstjórar
RIDDARINN : ÖLDUNGAR HEIÐRAÐIR Í tengslum við nýársmót Riddarans,
skákklúbbs eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu, var ákveðið með fulltingi allra klúbbfélaga
sem eru yfir 30 að tölu að heiðra þá: Bjarna Linnet (82), Hauk Sveinsson ( 86) og Sigurberg H.
Elentínusson (82) með því að sæma þá stór- & heiðursriddaranafnbót í
virðingar- og þakklætisskyni fyrir störf þeirra og þátttöku í klúbbnum allt frá
stofnun hans fyrir meir en áratug síðan. Þeir eru allir í hópi stofnfélaga klúbbsins og hafa telft í honum frá upphafi sjálfum sér og öðrum til yndisauka og verið virkir í skákhreyfingunni um áratugaskeið. Allir eru þeir öflugir og slyngir skákmenn og harðsnúnir á hvítum reitum og svörtum, jafnframt því að vera traustir félagar og hvers manns hugljúfar í góðum skákvinahópi. Þvívoru þeir félagar með viðeigandi seramoníu að viðstöddum Sr. Gunnþór Ingasyni, verndara klúbbsins, slegnir til stór- og heiðursriddara af virðingu og þakklæti fyrir: > framlag þeirra til klúbbsins > drengskap þeirra og fórnfýsi > hughvæmni þeirra og háttvísi >
og snilli þeirra á skákborðinu Því til staðfestu var þeim síðan afhent riddarastytta með áletruðu nafni sínu, klúbbsins og ártali, ásamt viðurkenningarskjali og ósk um að þeim megi ævinlega velfarnast innan og utan skákborðsins enn um langa hríð. Því miður gat Bjarni ekki verið viðstaddur athöfnina en úr því verður bætt fljótlega. Jólasveinar Riddarans 2009 ![]() Magnús Sólmundarson sigraði á JólaSkákmóti Riddarans 2009 (sjá úrslit hér) JÓLASKÁKMÓT ÖLDUNGA
Jólaskákmót öldunga á vegum RIDDARANS í Hafnó fór fram í gær (þriðjudag 22.12.09) og lauk með sigri hins góðkunna skákmanns Magnúsar
Sólmundarsonar, sem segja má að hafi komið séð og sigrað. Magnús
hlaut 9. vinninga af 11 mögulegum. Hinn aldni skákkappi, Björn Víkingur, sem er að nálgast áttrætt
leiddi mótið lengi framan af og sýndi gamla snilldar takta í skákum sínum sem
unun var á að horfa og sannaði að lengi lifur í gömlum glæðum. Þór Valtýsson varð í 2. sæti en Björn í
3.-4. ásamt Guðfinni R. Kjartanssyni, hinum afartrausta atskákmanni. Góð
verðlaun voru í mótinu og allir keppendur leystir út með jólasokkapari frá
stuðningsaðila mótsins, Jóa Útherja. Telft
verður næst miðvikudaginn 30. desember kl. 13-17 en þá fer fram Nýársmót klúbbsins. Allir velkomnir. (ese)
Röð efstu manna var annars þessi: 1. Magnús Sólmundarson 9 2. Þór Valtýsson 8.5 3. Guðfinnur R. Kjartansson 8 4. Björn Víkingur Þórðarson 8 5. Páll G. Jónsson 7 6. Gísli Gunnlaugsson 7 7. Leifur Eiríksson 6.5 8. Haukur Sveinsson 6 9. Össur Kristinsson 5.5 10. Jón Víglundsson 5.5 11. Einar S. Einarsson (form.) 5 Aðrir með minna.JÓLASKÁKMÓT ÖLDUNGA, þriðjudaginn 22. des. 2009
Sérstakt JólaSkákMót fyrir öldunga, 60 ára og eldri, fer
fram að Vonarhöfn,
Strandbergi, félagsheimili Hafnarfjarðarkirkju, þriðjudaginn, 22. desember, kl. 13-17. Venjulega hittast aldnar skákkempur þar til tafls á miðvikudögum, en vegna nándar Jólanna, hefur skákfundurinn verið fluttur fram um dag. Að venju verður telft þar stift til vinnings, en að þessu sinni líka til jólavinninga, þar sem engin mun fara tómhentur heim eða í jólaköttinn. Telfdar verða 11 umferðir, 10 mín. hvatskákir, eins og venjulega og hrókaræður leyfðar undir skákinni. Allir velkomnir
SKÁKSEGLIÐ
– Minningarmót Gríms Ársælssonar
GrandPrix-mótaröð öldunga á vegum Skákklúbbsins
Riddarans að Strandbergi, Hafnarfirði,
er lokið með yfirburðasigri Sigurðar A. Herlufsen. Sigurður vann 2 mót af fjórum, Jón Þóroddsson það fyrsta og Guðfinnur R. Kjartansson lokamótið. Þrjú bestu mót hvers keppanda töldu til stiga og stigagjöf fyfir 8 efstu sætin í hverju móti eins og í Formúlu 1: 10-8-6-5-4-3-2-1 Þátttakendur vour alls 30, að jafnaði 24 í hverju móti. Mótið var helgað minningu Gríms heitins Ársælssonar, skákmanns og trillukarls, forvígismanns klúbbsins, sem lést sviplega fyrir ári síðan á 69 aldursári. Mótið verður haldið árlega í nóvember ár hvert. Lesa má meira um mótið, sjá mótatöflur og fleiri myndir á Nettorginu: www.galleryskak.net undir Riddarinn. SkákSeglið 2009: LOKASTAÐA GP-stig Sigurður A. Herlufsen...........26 Stefán Þ. Guðmundsson......20 Jón Þóroddsson....................18 Guðfinnur R. Kjartansson.....14 Ingimar Halldórsson..............14 Össur Kristinsson..................14 Kristinn Bjarnason.................13 Þorsteinn Guðlaugsson.........10 Kristján Stefánsson................ 8 Páll G. Jónsson ...................... 3 Sigurður E. Kristjánsson .........3 Björn Víkingur Þórðarson........2 Gísli Gunnlaugsson.................1 Haukur Sveinsson...................1 / ESE1.11.09 SKÁKSEGLIÐ – Minningarmót Gríms Ársælssonar
Hafin er
ný GrandPrix 4 mótaröð á vegum Riddararans að Strandbergi,
Hafnarfirði, með sama sniði og áður, þar sem 3 bestu mót hvers keppanda telja til stiga. Mótið er helgað minningu Gríms heitins Ársælssonar, ástríðuskákmanns, sem lést sviplega í fyrra á 69 aldursári. Um er að ræða árlegt mót með verður á dagskrá í nóvember ár hvert, sem er fæðingar og dánarmánuður hans. Grímur lagði stund á
skákina allt frá unga aldri milli þess að hann stundaði erfiðisvinnu og
sjómennsku, síðast sem trillukarl. Hann var einn af
frumherjum að stofnun Riddarans fyrir 12 árum og forvígis- og umsjónarmaður
klúbbsins frá fyrstu tíð til hinsta dags. Telfdi auk þess með KR og í fleiri skákklúbbum. SkákSeglið
Útbúinn hefur verið fallegur farandgripur “SkákSeglið” tileinkaður minningu hins fallna félaga “Grímzó”, sem var dulnefni hans á Netinu og eins og hann var oft kallaður í góðra vina hópi, sem skákfélagar hans hafa kostað. Telft er á miðvikudögum kl.
13 -17, 11 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.
|














