Til leigu er 45 fermetra íbúð í Klambraseli í Aðaldal. Eldhúsið er útbúið eldavél ískáp og frysti. Leirtau, pottar og pönnur eru til staðar. Í íbúðinni er lítið baðherbergi með klósetti og sturtu. Í svefnherberginu er hjónarúm og en einnig er uppábúið rúm í stofunni. Það er líka vel hægt að sofa á dýnum á gólfinu í stofunni. Í öllu húsinu er þráðlaust internet (WiFi) sem er hægt að fá aðgang að endurgjaldslaust. Íbúðin er ætluð 2-5 manns. Íbúðin er með öll tilskilin leyfi fyrir gistingu og eldunaraðstöðu . |