Gróa Gróa Hreinsdóttir var ráðin kórstjóri vorið 2011. Hún hefur víðtæka menntun og reynslu sem kórstjóri og undirleikari og hefur starfað við það í mörg ár, bæði á höfuðborgarsvæðinu og úti á landi. Gróa kemur með ferskan blæ inn í kórinn, nýjar og skemmtilegar áherslur í söng og lagavali. Julian Michael Hewlett tók við sem stjórnandi Kvennakórs Kópavogs haustið 2009 og var stjórnandi kórsins fram til haustsins 2011 Julian hefur stundað tónlistarnám frá barnsaldri og útskrifaðist árið 1988 frá The University of Kent á Englandi, með B.A gráðu í tónlist. Hann fluttist til Íslands að námi loknu og hefur starfað hér sem píanóleikari, organisti, tónskáld, kórstjóri og enskukennari undanfarin 18 ár. Julian hefur lengi unnið að tónsköpun og hafa tónverk hans, m.a. kórverk, verið flutt víða í Englandi, Wales, Canada og Bandaríkjunum svo og hér heima. Þrátt fyrir að vera nýtekinn við starfi kórstjóra kvennakórsins hefur Julian fylgt kórnum um langt skeið en hann hefur verið undirleikari kórsins frá upphafi þ.e.a.s. frá árinu 2001. Natalía
Natalía Chow Hewlett stofnaði Kvennakór Kópavogs árið 2001 og stjórnaði honum fram til haustsins 2009. |