Annríki hjá kórnum á vorönn
Það
er ekki nóg með að kórinn hafi verið með vortónleika og ráðið nýjan
kórstjóra þessa önnina, það var líka farið á Landsmót íslenskra
kvennakóra á Selfossi og í heimsókn til Leeds á Englandi. Umfjöllun um
Landsmótið kemur á heimasíðuna með haustinu og frásögn af ferðinni til
Leeds má lesa undir linknum Good In Parts.
Rokk og Rómantík í Hörðuvallaskóla þann 17. maí
Vortónleikar
Kvennakórs Kópavogs ganga að þessu sinni undir heitinu Rokk og
rómantík, en nafnið vísar auðvitað til dagskrár tónleikanna sem verða
mun í anda hvors tveggja. Tónleikarnir verða að þessu sinni haldnir í Hörðuvallaskóla í Kópavogi, þriðjudaginn 17. maí og hefjast kl. 20:00. Miðaverð er 1.500 kr. en frítt er inn fyrir 12 ára og yngri. Hægt er að panta miða með því að senda póst á netfangið midar.kveko@gmail.com en miðar verða einnig seldir við innganginn. Sjáumst þá! Dagskrá tónleikanna Nýr kórstjóri ráðinn fyrir næsta starfsár Kvennakór Kópavogs hefur ráðið Gróu Hreinsdóttur til starfa kórstjóra næsta starfsár, 2011-2012. Kórinn hlakkar mikið til að kynnast Gróu betur og takast á við ný verkefni með henni næsta vetur. Velkomin í hópinn Gróa! Kvennakór Kópavogs leitar að kórstjóra Stefnt
er að metnaðarfullum og skemmtilegum verkefnum næsta starfsár,
2011-2012, en þá á Kvennakór Kópavogs tíu ára starfsafmæli. Þar sem
núverandi kórstjóri er að hætta vantar kórnum sterkan og hressan
kórstjóra í hans stað næsta vetur.
Nánari upplýsingar um má nálgast með því að senda póst á netfangið kvennakorkopavogs@gmail.com eða með því að hafa samband við formann kórsins, Sigríði Tryggvadóttur, í síma 846-7915.
Umsókn um starfið skal senda á kvennakorkopavogs@gmail.com fyrir 15. apríl næstkomandi.
Hönd í hönd tónleikar færa Mæðrastyrksnefnd 660.000 kr styrk
Í byrjun nóvember stóð Kvennakór Kópavogs fyrir góðgerðartónleikum, undir yfirskriftinni "Hönd í hönd", til styrktar Mæðrastyrksnefnd Kópavogs. Uppselt var á tónleikana og tókust þeir með miklum ágætum. Afrakstur tónleikanna voru 660.000 kr. sem renna óskiptar til Mæðrastyrksnefndar Kópavogs. Fulltrúar kórkvenna afhentu upphæðina þann 30. nóvember sl. og er óhætt að segja að þeim hafi verið með tekið með afar miklu þakklæti og hlýleika enda er þörfin mikil um þessar mundir og þeir margir sem þarfnast aðstoðar Mæðrastyrksnefndar Kópavogs fyrir þessi jól. Auk
kvennakórsins komu fram á tónleikunum Skólakór Kársness, Barnakór
Álfhólsskóla, félagar úr Skólahljómsveit Kópavogs, Margrét Eir, Regína
Ósk, Gðrún Gunnarsdóttir, Kristján Jóhannsson og Gunnar Sigurjónsson
prestur í Digraneskirkju. Kvennakór Kópavogs vill nota
tækifærið og þakka flytjendum, starfsfólki Digraneskirkju, sem og öðrum
þeim sem lögðu hönd á plóginn og gáfu vinnu sína til að gera þessa
tónleika að veruleika, kærlega fyrir sitt framlag. Þá má
ekki heldur gleyma að þakka þeim frábæru tónleikagestum sem á hlýddu og
studdu þannig við bakið á verkefninu og þessu mikilvæga málefni.
Kvennakór
Kópavogs stefnir að gera góðgerðatónleika fyrir Mæðrastyrksnefnd
Kópavogs að árvissum viðburði og er það einlæg von kórkvenna að „Hönd í
hönd“ verði áfram jafn vel tekið af flytjendum jafnt sem tónleikagestum
Kærar þakkir!
Jólasöngur í Hörðuvallaskóla í Kópavogi - aðgangur ókeypis!
Föstudaginn 3. desember næstkomandi tekur Kvennakór Kópavogs þátt í Jólasöng í Hörðuvallaskóla í Kópavogi. Um er að ræða sameiginlegt framtak nokkurra kóra ásamt lúðrasveit og einsöngvurum, þar sem sungin verða og spiluð ýmis jólalög. Húsið er opið frá kl. 18:00 til kl. 21:00 en ekki er um hefðbundna tónleika að ræða og því geta gestir komið og farið eins og þeim hentar á því tímabili. Kaffistund er á milli 18:00 og 18:30 og kaffihlé á milli 19:30 og 20:00. Vakin er sérstök athygli á því að aðgangur er ókeypis svo það er tilvalið að koma við og ná sér í smá jólastemmningu með því að hlýða á skemmtilegan jólasöng. Kvennakór Kópavogs selur kaffiveitingar á hóflegu verði. Hönd í hönd - tónleikar til styrktar Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi
Kvennakór Kópavogs, í samstarfi við Digraneskirkju, stendur fyrir styrktartónleikum til stuðnings Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi sunnudaginn 7. nóvember í Digraneskirkju kl 16:00 – 18:00 Fram koma:
Ræðumaður: Séra Gunnar Sigurjónsson Miðaverð er 2.000 kr sem rennur óskipt til Mæðrastyrksnefndar, en allt það tónlistarfólk sem að tónleikunum kemur gefur vinnu sína til styrktar átakinu. Miða má panta með tölvupósti hondkk@gmail.com og við innganginn meðan húsrúm leyfir. Kórstarf hafið á haustönn Þá er kórstarfið að fara í gang aftur, mikið stendur til og má búast við verulega skemmtilegum vetri. Kórinn ætlar að rokka svolítið þennan veturinn, skellir sér á Landsmót íslenskra kvennakóra á Selfossi vor 2011 og síðast en ekki síst, ætlar kórinn að skella sér í heimsókn til yndislegra vina í Leeds, kórsins Good In Parts. Ferðin verður um miðjan júní 2011. Nú er bara að skella sér í Kvennakór Kópavogs og taka þátt í frábærum komandi vetri! Nýtt æfingahúsnæði Kórinn hefur skipt um æfingahúsnæði, við komum til með að hafa æfingaaðstöðu í Hörðuvallaskóla, Baugakór 38. Við hlökkum mikið til að vera þar, í stórum og góðum sal. Æfingar hefjast að nýju þriðjudaginn 24. ágúst Fyrsta æfing annarinnar verður þriðjudaginn 24. ágúst, klukkan 19:15, í sal Hörðuvallaskóla, Baugakór 38, Kópavogi. Á æfingunni munu fara fram raddprófanir, almennur hittingur og spjall um verkefni kórsins á önninni ásamt stuttri söngæfingu eftir því sem tími vinnst til. Nýjar söngsystur mæta þriðjudag 31. ágúst Þar sem breytingar standa yfir í kórnum þá verður allur kórinn raddprófaður og raðað í raddir upp á nýtt. Þetta tekur dágóðan tíma og því viljum við bjóða nýjar söngsystur velkomnar þann 31. ágúst. Núverandi söngfuglar mæta 24. ágúst í raddpróf og spjall, síðan tökum við vel á móti nýjum söngsystrum 31. Sjáumst! Breskur kór í heimsókn 28. - 30. maí
Það er gaman að segja frá því að við höfum eignast vinakór. Það er breskur kór frá Leeds sem kallar sig Good in Parts og þau heimsækja okkur eina helgi. Við erum búnar að skipuleggja stífa skemmtan alla helgina, óvissuferð austur fyrir fjall með skemmtun í sveitinni um kvöldið. Á sunnudag verður svo hápunktur helgarinnar þar sem við munum halda tónleika með vinum okkar. Karlakór Kópavogs bætist í hópinn og ætlar að syngja með okkur og síðast en ekki síst kemur "bluegrass" band sem ekki hefur fengið nafn ennþá. Þeir ætla að spila þegar kórsöng lýkur. Þetta
verður án efa mjög skemmtilegt kvöld, við ætlum að bjóða gestum uppá
sjávarréttasúpu og brauð, barinn verður opinn og það verður heimilisleg
kaffihúsastemmning.
Tónleikarnir
eru haldnir í sal Breiðabliks í Smáranum í Kópavogi, hefjast klukkan
19:00 og aðgangseyrir er einungis kr. 1.700,- Súpan er innifalin í
verðinu.
Aldurstakmark er 18 ár.
"Gleði og gaman" - Vortónleikar 25. apríl Kvennakór Kópavogs heldur vortónleika í Aðventkirkjunni við Ingólfsfstræti, sunnudaginn 25. apríl. Ýmis létt og skemmtileg lög verða á efnisskránni, þ.a.m. nokkur eftir Sigfús Halldórsson. Stjórnandi: Julian M. Hewlwtt Undirleikari: Guðríður Sigurðardóttir Einsöngur: Ragnhildur B. Þórhallsdóttir Gestakór: Barnakórinn Englaraddir Miðaverð: 1.000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri Sjáumst þá! Tóndæmi frá tónleikum í Kópavogskirkju Hérna má sjá stutt tóndæmi frá aðventutónleikum Kvennakórs og Karlakórs Kópavogs sem haldnir voru í desember 2009. Hér syngur kvennakórinn lagið Mary, Mary. Lag og ljóð eru eftir George LO Strid og Mary Donelly. "Hálar sem álar" Dagana 6-7 mars sl. héldu hressar konur úr Kvennakór Kópavogs austur fyrir fjall til að æfa söng og skemmta sér . Dvalið var á hótel Hlíð í Ölfusi þar sem dekrað var við gesti. Stjórnandi kórsins, Julian M. Hewlett, var að sjálfsögðu með í för og honum til aðstoðar var Ian Wilkinson sem kórnum er að góðu kunnur og hefur m.a. sungið einsöng á tónleikum kórsins. Æft var stíft báða dagana og var kórstjórinn nokkuð ánægður með árangurinn. Á laugardagskvöldinu var hátíðarkvöldverður og var þema kvöldsins "Hálar sem álar". Kórsystur klæddu sig því uppá og puntuu með áli og það var flottur hópur sem átti saman frábæra kvöldstund, eins og sjá má meðfylgjandi mynd. Söngurinn er þó ekki það eina sem kórsystrum er til lista lagt því í ljós kom að þær eru sérstaklega hugmyndaríkar og hæfileikaríkar. Hugmyndaflugið átti sér enginn takmörk þegar kom að klæðaburði og fylgihlutum og hæfileikarnir sýndu sig í dansi, uppistandi, leiklist, ræðumennsku og söng og aftur söng. Það er óhætt að segja að hlátur og gleði hafi einkennt þessa daga og það voru vel nærðar konur, bæði líkamlega og andlega, sem sneru heim á sunnudagskvöldi. Æfingar hafnar á vorönn 2010 Undirbúningur vorannar Kvennakórs Kópavogs hófst þann 12. janúar síðastliðinn en fyrsta söngæfingin verður þriðjudaginn 19. janúar. Kórinn tekur vel á móti nýjum meðlimum og eru áhugasamar konur á öllum aldri hvattar til að kíkja á æfingu og kynna sér starfið nánar. Einnig skal tekið fram að ekki er nauðsynlegt að hafa búsetu í Kópavogi til að fá inngöngu í kórinn. Æfingar kórsins eru í sal Digranesskóla í Kópavogi, Hægt er að fá nánari upplýsingar með því að hafa samband við í formann kórsins, Hallbjörgu Thorarensen, í síma 897-2781 eða með því að mæta á æfingu hjá kórnum, á þriðjudegi kl. 19:15 Hlökkum til að sjá þig - við tökum vel á móti þér!
Aðventutónleikar 6. desember
Kvennakór Kópavogs mun, ásamt Karlakór Kópavogs, halda Aðventutónleika sunnudaginn 6. desember næstkomandi. Tónleikarnir verða haldnir í Kópavogskirju og hefjast kl. 16:00.
Flutt verður verkið Sjá himins opnast hlið eftir Julian M. Hewlett ásamt aðventusöngvum.
Kórstjóri: Julian M. Hewlett
Einsöngur: Ian Wilkinson og Sigurður Þengilsson
Píanóleikari: Guðríur Sigurðardóttir
Selló: Arnþór Jónsson
Lágfiðla: Ásdís Runólfsdóttir
Óbó: Eydís Fransdóttir
Þverflauta: Guðrún Birgisdóttir Almennt miðaverð: 1.500 kr.
Öryrkjar og eldri borgarar: 1.000 kr.
Frítt fyrir 18 ára og yngri.
Sjáumst!
Hönd í hönd - Styrktartónleikar
Kvennakór Kópavogs stóð fyrir tónleikum til styrktar Mæðrastyrksnefnd í Kópavogi þann 8. nóvember síðastliðinn. Hönd í hönd var nafnið sem valið var á skemmtunina en hún var nefnd eftir verkefni sem varð til þegar Kópavogsbær, Prestar í Kópavogi, Menntaskólinn í Kópavogi, Heilsugæslan, Kópavogsdeild Rauða krossins og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs tóku höndum saman til að styðja við Kópavogsbúa í því erfiða ástandi sem skapaðist við hrun fjármálamarkaðarins.
Tónleikarnir voru haldnir í Hjallakirkju við ágætar undirtektir. Á tónleikunum komu fram fjöldi tónlistarfólks en þetta voru:
Kvennakór Kópavogs kann þeim sem á hlýddu bestu þakkir fyrir sem og öllu öllu því tónlistarfólki sem gaf vinnu sína og tók þátt í þessu skemmtilega verkefni með okkur. Sungið við Eiffel-turninn Í tilefni af Kópavogsdögum söng Kvennakór Kópavogs, laugardaginn 9. maí, nokkur lög á ekki ómerkari stað en við Eiffel-turninn! Rétt er þó að taka fram að ekki var um um hið upprunalega eintak turnsins í París að ræða heldur eftirlíkingu hans, smíðaaða úr eldspýtum, sem um þessar mundir er staðsettur í Smáralind.
Með þessari þáttöku í Kópavogsdögum lauk kórinn formlega sínu sjöunda starfsári , veturinn 2008-2009, og fer í stutt sumarfrí.
Kórinn tekur þó að sjálfsögðu aftur til starfa með haustinu og tekur til við að æfa dagskrá áttunda starfsársins, 2009-2010. Njótið öll sumarsins sem best og sjáumst aftur í haust! Hymne L'amour (apríl 2009) Vortónleikar kórsins, sem haldnir voru þann 26. apríl, voru teknir upp á myndband og hér má sjá Kristjönu Stefánsdóttur og Kvennakór Kópavogs syngja lagið Hymne L'amour sungið við texta eins kórmeðlima, Jófríðar Guðmundsdóttur. Vortónleikar (apríl 2009) Vortónleikar Kvennaórs Kópavogs voru haldnir í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju þann 26. apríl síðastliðinn. Tónleikarnir báru yfirskriftina Kvikmynda- og söngleikjasveifla og var dagskráin bæði lífleg og fjölbreytt enda víða komið við í lagavalinu og má þar t.d. nefna lög eftir Bítlana, ABBA o.fl. Kristjana Stefánsdóttir og Natalía Chow Hewlett sungu einsöng og einnig sungu nokkrir kórmeðlimir bæði einsöng og tvísöng. Fjöldi góðra gesta komu til að hlýða á sönginn og er gaman að segja frá því að í fyrsta sinn í sjö ára sögu kórsins var uppselt á tónleikana en salurinn tók hátt á þriðja hundrað manns í sæti. Kórmeðlimir þakka öllum hinum góðu gestum tónleikanna kærlega fyrir komuna og vona að þeir hafi haft sem mest gaman af. Tónleikar framundan (apríl 2009) Kvennakór Kópavogs heldur vortónleika þann 26. apríl næstkomandi í Hásölum við Hafnarfjarðarkirkju. Kórinn ákvað í haust að fara nýjar leiðir varðandi tónleikahald. Kórinn er orðinn 7 ára og okkur fannst vera komin tími til þess að breyta út af vananum og fara út fyrir “þæginda-svæðið”okkar með því að brjóta svolítið upp þá ramma sem við höfum haldið okkur við undanfarin ár. Tekin var sú ákvörðun að vera hvorki með jólatónleika eða vortónleika í maí, heldur hafa eina stærri tónleika í mars-apríl og taka þá fyrir eitthvert þema. Ákváðum við að syngja eingöngu lög úr söngleikjum ýmisskonar. Lögin eru mjög ólík, frá ólíkum tímum, sum í syrpu og önnur stök. Efnisskráin er mikið til á ensku en nokkur lögin hafa þó verið þýdd á íslensku og eitt franskt lag flýtur einnig með. Þetta var allt saman ákveðið fyrir kreppu en kannski höfum við fundið á okkur að tíminn framundan yrði þungur mörgum – því dagskráin er einstaklega hressileg og engum ætti að leiðast. Sagt er að söngur létti lundina og það höfum við kórkonur fengið finna í vetur. Áhyggjur fjúka burt um leið og við setjumst niður og syngjum. Að syngja söngleiki á ensku reyndist ekki næg ögrun því við höfum einnig stigið niður af kórpöllunum og bætt smá hreyfingum við sönginn. Það getur nú verið vandasamt stundum að samhæfa söng og hreyfingar. Með okkur eru tvær söngkonur sem munu syngja á tónleikunum, annars vegar Kristjana Stefánsdóttir og svo kórstjórinn okkar Natalía Chow Hewlett. Æfingabúðir á Leirubakka (febrúar 2009) Í febrúar fóru kórkonur í helgarferð í æfingabúðir á Leirubakka þar sem æft var af kappi og hópurinn hristur saman undir yfirskriftinni „I feel pretty“. Æft var af krafti á laugardeginum og um kvöldið haldin mikil hátíð þar sem kórkonur klæddu sig upp í sitt allra fínasta púss og ríflega það eins og þemað bauð upp á. Á sunnudeginum var síðan haldið áfram með æfingar fram eftir degi. Það voru þreyttar en sælar söngsystur sem héldu heim á leið seinni part sunnudags. Reynir kominn heim! (Júní 2008) Eins og fram hefur komið hér á síðunni, skrapp kórinn í kaffihúsaferð í Borgarfjörðinn í vor og heimsótti þar kvennakórinn Freyjurnar. Það vantaði ekki gestrisnina þar, veitingar í fljótandi og föstu formi, happdrætti og skemmtun. Í lok kvöldvökunnar vorum við leystar út með þessum forláta "knappareyni". Við höfðum samband við Kópavogsbæ og úr varð að Reynir fékk heimili í Kórahverfi, nánar tiltekið við Baugakór! Góður staður fyrir tré kórsins. Núna getur hver sem er farið og skoðað hann Reyni okkar. Hér eru fleiri myndir frá gróðursetningunni. |






