Avon

Samstarf Kvennakórs Kópavogs og Act ehf.

 

Á síðasta ári var komið á farsælu samstarfi Kvennakórs Kópavogs og Act ehf sem er umboðsaðili fyrir AVON, Remington og Varta.  Þessu samstarfi verður áframhaldið þar sem svo vel gekk á síðasta ári.

 

AVON (www.avon.is) er fyrirtæki sem hefur framleitt snyrtivörur í 120 ár.  Í boði eru vandaðar snyrtivörur fyrir húð og hár, förðunarvörur, ilmvörur, og ýmiskonar aðrar vörur.  Eitthvað í boði fyrir alla, börn, unglinga, konur og karla.  Vörur frá AVON eru á einstaklega góðu verði og eru ekki seldar í verslunum og því einungis hægt að versla þær hjá Act ehf.  hér á landi.  AVON styrkir rannsóknir á brjóstakrabbameini og td.er hægt að kaupa núna hlut sem hengdur er á GSM síma og blikkar við hringingu, á kr. 595 og allur ágóði rennur til Krabbameinsfélagsins.

 

Remington er þekkt fyrirtæki fyrir allar sínu fínu hárgræjur.  Má þar nefna blásara, sléttujárn, krullujárn, rakvélar og margt fleira.

 

Varta framleiðir hágæða rafhlöður.

 

Hvernig fer samstarfið fram:

Kórkonur og aðrir á þeirra vegum geta komið við í Act og verslað vörur á heildsöluverði.  Haldið verður utanum sölurnar og lætur Act síðan rausnarlega upphæð af hverri sölu renna til kórstarfsins. 

 

1        Hver kórkona fær bækling frá AVON til að skoða og sýna öðrum.  Hún getur svo tekið niður pantanir fyrir fólk og hringt inn til AVON eða sent á e-mail og munu þau taka til pöntunina sem þarf svo að gera upp þegar hún er sótt. 

2        Eins er hægt að benda vinnufélögum, vinum og vandamönnum að fara beint til ACT á Dalveginum, þar sem þeir geta verslað.  Mjög mikilvægt er að viðkomandi taki fram áður en greitt er að hann/hún sé á vegum kórsins.

3        Sérstakur dagur opinn aðeins fyrir kórkonur og fylgdarfólk þar sem tilboð verða í gangi fyrir þá sem mæta.  Nánari útfærsla verður tilkynnt síðar.

 

Af hverri sölu rennur styrkur Act ehf. í einu lagi til kórsins.  Alltaf að muna að nefna Kvennakór Kópavogs og sjá til að salan sé skráð í þartilgerða bók í versluninni.

 

Gunnar í Act biður fyrir kveðju til kórkvenna og hlakkar til samstarfs á nýju kórári.

Við þökkum Avon fyrir stuðninginn!

 

Með kveðju

Stjórnin