Forsíða‎ > ‎

Good in parts


KveKó í Leeds
Loks kom að því að við myndum endurgjalda heimsóknina. Helgina 10 - 13 júní vorum við hjá þessu yndislega fólki í Leeds. Það var tekið á móti okkur með pompi og pragt, yndislegur matur og nýr drykkur kynntur kórnum - Pims - voða gott :o)
Allur hópurinn var yndislegur, þarna voru meðlimir sem ekki voru með kórnum þegar hann heimsótti okkur en það skipti engu máli, það var eins og við þekktum þau líka. Um kvöldið var að sjálfsögðu farið á ekta enskan pöbb þar sem smakkað var á mjöð af ýmsum toga. 
Snemma næsta morgun var farið í skemmtilega ferð á Ilkley Moore, skoðað niðurrifið klaustur, Bolton Abbey og sungið í guðsgrænni náttúrunni fyrir endur og kýr... Um kvöldið voru svo aðal tónleikarnir, góðgerðartónleikar í fallegri kirkju, St. Edmunds Church, Roundhay, ásamt Good In Parts, Leeds City Harmony og Knock on Wood Drumming Group. Tónleikarnir tókust vonum framar hjá okkur, sumar upplifðu bestu tónleikaupplifun lífsins og okkur tókst að fá standandi lófaklapp, hróp og köll í miðjum lögum :o)
Eftir gott partý og lítinn svefn var hist aftur á sunnudeginum, núna til að syngja í garði Harewood House. Harewood House er herragarðssetur með miklum íburði innanhúss, stórum garði og heilli hæð fyrir þjónustufólkið. Mjög gaman að syngja þar þótt rignt hafi á okkur. Að því loknu var farið inn í Harewood House til að skoða herlegheitin. Um kvöldið var svo "Open mic" og indverskur matur. Það steig hver á fætur öðrum á stokk og skemmti hinum. Kórinn endaði samstarf sitt við Julian þetta kvöld með hressandi tónleikum sem líka gáfu okkur tár í auga. Við sungum að sjálfsögðu "For Good" og til einkuðum það vinum okkar í Good In Parts og þegar hópurinn áttaði sig á því að þetta væri síðasta skipti sem við værum að syngja hjá Julian var grátið og farið í hópknús! Skemmtilegur endir á frábæru samstarfi við hann Julian okkar!
Á mánudagskvöldinu var okkur svo boðið á kóræfingu hjá Good In Parts. Þar kenndu þau okkur lag sem Brian kórstjóri tileinkaði okkur. Lagið heitir "Famba Naye", er afrískt og textinn þýðir: "Farið í friði og megi ljósið skína innra með ykkur!" Þegar þessum söng var lokið féllust allir í faðma og sumir réðu ekkert við tárin sem streymdu fram.

To our beautiful friends in Good In Parts; thank you all for an unforgettable weekend - see you all in 2013!



Hér er hægt að hlusta á upptökur af góðgerðartónleikunum

Kvennakór Kópavogs og Good in Parts á Þingvöllum


Þessi skemmtilegi kór kemur frá Leeds í Yorkshire. Þau heimsóttu okkur eina helgi og höfum við í Kvennakór Kópavogs eignast nýja vini í Englandi. Þau voru yfir sig ánægð með heimsóknina, rétt eins og við vorum ánægð að fá þau. Við enduðum þeirra heimsókn með kaffihúsaskemmtikvöldi sem tókst vonum framar.
Við í Kvennakórnum hlökkum til að heimsækja Good in Parts næsta ár!