Tvær aðalgerðir af bjj keppnum er annars vegar í bjj galla (gi) og án galla (nogi). Hið síðarnefnda heitir oft mismunandi nöfnum svo sem nogi brazilian jiu jitsu, submission wrestling, grappling ofl. Hefðbundin bjj keppni er í gi. Keppt er í þyngdarflokkum,beltaflokkum og kynjaskiptum flokkum. Reglur eru mismunandi eftir mótum, beltaflokkum ofl, en hér eru helstu grunnreglurnar lagðar fram. Mótshaldarar geta fyrir hvert mót gert breytingar á reglum þykir það henta, t.d. hefur enn ekki verið keppt í beltaflokkum á Íslandi. Margra reglurnar eru fengnar af síðu International Brazilian Jiu Jitsu Federation (ibjjf) : www.ibjjf.org TímiHver glíma hefur fyrirfram ákveðin tímamörk; oft 5-10 min. Sigur- Hægt er að sigra glímu með því að hafa skorað fleiri stig en andstæðingurinn þegar tíma lýkur.
- Hægt er að sigra glímu með því að beita löglegu taki sem fær andstæðinginn til þess að gefast upp (submission).
- Hægt er að sigra glímu ef dómari telur þörf til að stöðva glímu til að vernda keppendur gegn meiðslum eða öðrum hættum. Einnig er hægt að vinna glímu ef andstæðingur getur ekki vegna einhverra ástæðna haldið keppni nema það sé vegna afleiðing ólöglegrar tækni eða óíþróttamannslegri hegðun keppenda.
Stigagjöf - 2 stig - Takedown : Kast, eða það að koma andstæðing niður í gólfið úr standandi stöðu
- 2 stig- Sweep : Þegar keppandi sem er í botnstöðu og meðhluta andstæðing á milli fóta sér (guard) snýr við stöðu þannig að andstæðingurinn er kominn í botnstöðu og sá sem framkvæmdi sweepið er komin í toppstöðu.
- 2 stig - Knee on belly : Þegar keppandi í toppstöðu setur hné á kvið andstæðings og tryggir þannig stöðu sína.
- 3 stg - Guard pass :Þegar keppandi í toppstöðu kemst framhjá guard andstæðings; þ.e. framhjá fótum hans og tryggir stöðu.
- 4 stig- Mount :Þegar keppandi kemst í mount stöðu sem er toppstaða þar sem keppandi situr samsíða ofaná mjöðmum andstæðings (ekki side mount). Andstæðingur getur verið á bakinu, á hliðinni eða á maganum.
- 4 stig- Back control w/hooks : Þegar keppandi stjórnar baki andstæðings með báða fætur innan á mjöðmum andstæðings, svokallaðir krókar.
Einnig eru gefin aukastig fyrir submission tilraunir eða aðrar tilraun við tækni sem heppnast næstum . Óleyfileg tækniTil að halda sérstöðu íþróttarinnar og veita sem öruggasta og sanngjarnasta keppni er eftirtalin tækni oftast bönnuð. Óleyfileg tækni og óíþróttamannsleg hegðun getir valdið mínusstigum eða jafnvel brottrekstri úr keppni. - Að kýla,sparka, klóra eða viljandi reyna að meiða anstæðing með óíþróttamannslegri hegðun.
- Að pota í augu eða líkamsop
- Að taka andstæðing í gólfstöðu upp og skella honum
- Að beita snúandi fótalásum
- Að beita tökum sem snúa háls eða setja hann í óþægilega og hættulega stöðu (neck crank)
- Að beita viljandi tökum sem kremja eða valda gífurlegum óþægindum á andlit andstæðings (face cranck)
- Að kasta andstæðing með höfuð viðkomandi í taki (guillotine takedown)
- Að halda taki eða halda glímu áfram eftir að andstæðingur hefur gefist upp, eða glíma hefur verið stöðvuð af dómara með öðrum hætti.
Til umhugsunarÞað að keppa á að vera gamandi og mannbætandi. Allir sem keppa skulu fara á mót með því hugarfari að standa sig vel, og verða betri í íþróttinni. Drengskapur skal í hávegum hafður. Berðu virðingu fyrir dómurum, félögum, andstæðingum og öðrum keppendum, án þessara aðila væri líklegast ekkert mót haldið. Reglurnar sem hér eru taldar geta verið frábrugðnar því sem verður á mótinu sem þú keppir á, því skal alltaf vera búið að kynna sér reglurnar sérstaklega fyrir hvert mót. Ef þú ert í vafa skaltu spyrja þjálfarann þinn eða dómara á mótinu. |