Kettlebells


Þrið/ fimmtudaga kl 18:



BJJ

Þriðjudaga og fimmtudaga kl 19


Brazilian Jiu Jitsu

Um BJJ
BJJ (Brazilian Jiu Jitsu) er bardagaíþrótt sem fer að stórum hluta fram í gólfinu. Aðalmarkmið íþróttarinnar er að ná andstæðing niður í gólfið og fá hann til að gefast upp með því að beita liðamótlás eða kæfingartaki. BJJ var hannað til að nýtast minni og veikari einstaklingum í sjálfsvörn og bardaga.Tæknin sem er notuð hefur verið þróuð út frá því sjónarmiði og er því notast við brögð sem virka í alvöru aðstæðum.
Gott dæmi um það er þegar fyrstu stóru keppnirnar í blönduðum bardagalistum voru háðar í Bandaríkjunum. Þá komu sterkustu einstaklingar úr flestum bardagalistum heims og börðust saman í keppni sem var nánast án reglna. Þessar keppnir (UFC) voru til þess að komast að því hvaða stíll virkaði best. Það kom flestum það ótrúlega fyrir sjónir að sá sem að vann þessa keppni var sá léttasti í hópnum og það sem meira var þá vann hann án þess að kýla eða sparka í andstæðinga sína. Þessi maður heitir Royce Gracie og er hann þrautlærður í BJJ. Eftir þessa keppni gjörbreyttist bardagaíþróttaheimurinn þar sem allir vildu læra það sem hann kunni. Royce afsannaði síðan allar kenningar um að þetta væri heppni með því að vinna keppnina þrisvar í röð. Í dag er BJJ ein mest vaxandi bardagaíþrótt í heiminum. Hún nýtur gríðarlega virðingar á meðal þeirra sem þekkja til um alvöru bardaga og eru menn allir á sama máli um að þetta sé ekkert grín, heldur að þetta virki í raun og veru.
 
Fyrir hverja er BJJ?
BJJ er fyrir þá sem vilja æfa erfið og krefjandi bardagaíþrótt. BJJ er jafnan talin ein besta sjálfsvörn sem til er og hentar vel fyrir konur og karla.

"Tappið"
Lagt er uppúr öryggi. Ef iðkandi er einhverntímann kominn í stöðu sem hann ræður ekki við eða vill losna þarf hann einfaldlega að "tappa" og þá er stoppað. "Tappi" iðkandi í keppni telst hann hafa tapað. Markmið með glímum er að koma andstæðing í þá stöðu að hann "tappi". "Tapp" þýðir í raun "ég gefst upp".
 
Við æfum í íþróttahúsinu á Vallarheiði, nánari upplýsingar eru í s:6906682 eða helgiflex@gmail.com


Hér eru helstu reglur bjj
Hér má sjá ýmsar grunntæknir.



 

Highlight video                                                                                                                      Klippa af Fjölnismótinu febrúar 2009

YouTube Video

YouTube Video



 




















YouTube Video



Subpages (2): BJJ reglur Tæknin