Kettlebells (ketilbjöllur) eru frábært æfingatæki sem gefa ótrúlegan árangur. Hvað eru ketilbjöllur? Ketilbjöllur er eins og fallbyssukúla með handfangi. Bjöllurnar eru til í ýmsum stærðum og þyngdum. Fer það eftir getu hvers og eins og æfingunni eftir hvaða þyngd er notuð. Í hvað eru ketilbjöllur notaðar? Ketilbjöllur er hægt að nota í ótrúlega fjölbreyttar æfingar. Aðalmarkmið með ketilbjölluæfingum er aukinn styrkur, vöðvaþol og samhæfing vöðva. Æfingar með ketilbjöllur reyna flestar á að allur líkaminn virki sem heild. Flestar ketilbjölluæfingar reyna á mestalla beinagrindarvöðva líkamans og mjög vel á "kjarnavöðva" (kvið og bakvöðva), sem eru oft illa þjálfaðir hjá almenningi. Fyrir hverja eru ketilbjöllur? Ketilbjöllur eru svo fjölbreytt æfingatæki að hægt er að finna æfingar handa nánst hverjum sem er. Allt frá óreyndu líkamsræktarfólki til atvinnuíþróttamanna nota ketilbjöllur til að bæta árangur. Sama hvort um er að ræða persónuleg heilsumarkmið eða sigur í sinni íþrótt þá hjálpa ketilbjöllurnar manni að ná markmiðum sínum. Eru þetta ekki hættulegar æfingar? Ketilbjölluæfingar eru ólíkar mörgum hefðbundnum lóðaæfingum. Æfingarnar eru ekki ætlaðar til þess að einangra vöðva og liði heldur til að fá betri líkama í heild sinni. Ketilbjölluæfingar gerðar með réttri tækni og líkamstöðu geta m.a. lagað vöðvaójafnvægi sem myndast oft í einangruðum og einhæfum æfingum.Lagt er uppúr því að iðkandinn læri að beita líkamanum rétt til að mynda sem mestan kraft og koma í veg fyrir meiðsli og leiðinlegra fylgikvilla þess að æfa vitlaust. Skoðið myndbandið. Greinar/tenglar um ketilbjöllur Rannsóknir og saga http://www.sonomafit.com/kettlebellMore.html Frægt fólk með ketilbjöllur http://www.behollywoodfit.com/CELEBRITY+FITNESS+TREND+Kettlebells.aspx Ketilbjöllur fyrir íþróttir
http://www.t-nation.com/free_online_article/sports_body_training_performance/kettlebells_put_to_the_test http://www.t-nation.com/free_online_article/sports_body_training_performance/kettlebells_101 Kettlebells.is og spjallsíða kettlebells
www.kettlebells.is http://www.mjolnir.is/spjall/index.php?PHPSESSID=4d8c2f80e34f729fb6b251543e693164&board=15.0 |

