Mjölnir Open 5 var haldið í Ármannsheimilinu um helgina. 5 keppendur frá Sleipni mættu til leiks. Í +60kg flokki kvenna og opnum flokki kvenna varð Rut Sigurðardóttir í 3. sæti. Í -77kg flokki karla varð Helgi Rafn Guðmundsson í 2. sæti, en flokkurinn var sá stærsti á mótinu, með 26 keppendur. Aðrir keppendur Sleipnis stóðu sig einnig vel og mikil bæting hjá keppendum á milli móta. Á mótið mættu um 70 keppendur frá 7 félögum og var mótið því um helmingi stærra en í fyrra. Mikil gróska er í gólfglímuíþróttinni eins og sést og mikið af öflugu keppnisfólki að koma upp.  + 60 kg Konur
1. Auður Olga skúladóttir - Mjölnir
2. Kristín Sigmarsdóttir - Pedro Sauer
3. Rut Sigurðardóttir - Sleipnir
-66 kg Karlar
1. Arnar Bjarnason - Combat Gym
2. Pétur Haukur Jóhannesson - Mjölnir
3. Aron Daði Bjarnason - Fenrir
-77 kg Karlar
1. Arnar Freyr Vigfússon - Combat Gym
2. Helgi Rafn Guðmundsson - Sleipnir
3. Jósep Valur Guðlaugsson - Mjölnir
-88 kg Karlar
1. Gunnar Nelson - Mjölnir
2. James Davis - Mjölnir
3. Sighvatur Helgason - Mjölnir
-99 kg Karlar
1. Þráinn Kolbeinsson - Mjölnir
2. Haraldur Óli - Combat Gym
3. Hrólfur Ólafsson - Mjölnir
+99 kg Karlar
1. Guðmundur Þór Sævarsson - Combat Gym
2. Gunnar Páll Helgason - Mjölnir
3. Heimir Freyr Heimisson - Mjölnir
Opinn Flokkur Kvenna
1. Auður Olga skúladóttir - Mjölnir
2. Kristín Sigmarsdóttir - Pedro Sauer
3. Rut Sigurðardóttir - Sleipnir
Opinn Flokkur Karla
1. Gunnar Nelson - Mjölnir
2. Sighvatur Helgason - Mjölnir
3. James Davis - Mjölnir
Heildarstig
1. Mjölnir = 28 stig
2. Combat Gym = 11 stig
3-4. Pedro Sauer = 4 stig
3-4. Sleipnir = 4 stig
5. Fenrir = 1 stig |