~ Kvennakórinn Heklurnar ~

...Kórinn sem bakar ekki.

Heklur eru jákvæður og skemmtilegur 25-30 kvenna kór, sem var stofnaður í Mosfellsbæ árið 2003. Stjórnandi er Dagný Þórunn Jónsdóttir

Undirtitill kórsins er ,, kórinn sem bakar ekki " og kveða lög kórsins á um að ekki sé stunduð fjáröflun í formi kökubasara eða farandsölu af nokkru tagi á hans vegum.

Kórinn skipa konur úr Mosfellsbæ og nágrannasveitarfélögum, sem hafa yndi af því að syngja í góðum hóp og æfir kórinn vikulega yfir vetrarmánuðina. Æfingar eru í sal Varmárskóla á þriðjudögum klukkan 19:30-22:00.

Starfið er á jákvæðum nótum með það markmið í huga að samvera og söngur hafið sálarbætandi áhrif. Viðfangsefni kórsins hafa verið af ýmsum toga í gegnum tíðina allt efir því hvaða viðburðir eru framundan á starfsárinu.

Kórinn fer í æfingarbúðir yfir eina helgi í lok febrúar. Sungið er við eina messu á starfsárinu. Vortónleikar eru í maí. Aðrir viðburðir eru breytilegir frá ári til árs.